Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Síða 17
skipstjórnarnámið átt undir högg að
sækja á undanförnum árum.
2.2 Um einkavæðingu Slýrimanna-
skólans í Reykjavík
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldið í Reykja-
vík dagana 28. - 30. nóvember 2001, tel-
ur óásættanlegt ef sarntök skipstjórnar-
manna verði ekki höfð með í ráðum
varðandi áform menntamálaráðuneytisis-
ins um einkavæðingu Stýrimannaskólans
í Reykjavík.
Stjórn fiskveiða
3.1 Um stjórn fiskveiða
Reynslan af uppbyggingu botnfisk-
stofna samhliða þeirri fiskveiðistjórnun
sem nú er og átti að stuðla að því að
tryggja til framtíðar hámarksafla úr fiski-
stofnunum er slæm. I ljósi þess leggur
40. þing Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands til að ef ekki tekst að lag-
færa núverandi kerfi svo ásættanlegt sé,
verði teknar upp aðrar veiðistýringarað-
ferðir sem betur tryggja uppbyggingu og
bætta umgengni um botnfiskstofnana.
Óbreyttri framkvæmd núverandi fisk-
veiðistjórnunarkerfis er hafnað og þess
krafist að skýr ákvæði um þjóðareignar-
rétt á auðlindum verði fest í stjórnarskrá.
Þingið telur að tryggja verði með löggjöf
að óumdeilt verði að fjölda skipa, stærð
og aflvísi fiskiskipaflotans megi takmarka
svo unnt verði að stjórna fiskveiðum í
framtíðinni. Strax verði tekið á brott-
kastsvandanum og leyft verði að landa
afla utan aflamarks. Takmarka verður
framsal veiðiheimilda og auka veiði-
skyldu á hvert skip. Tryggja skal fjár-
hagslegan aðskilnað veiða og vinnslu í
landi og fiskverð skal ráðast á fiskmark-
aði.
3.2 Um niðurstöðu sátlanefndar
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands haldið í Reykja-
vík 28. - 30. nóvember 2001, ályktar eft-
irfarandi um tillögur stjórnskipaðrar
nefndar sem skipuð var til að endur-
skoða lög nr. 38/1990, um stjórn fisk-
veiða, með það að markmiði að skapa
sem víðtækasta sátt um fiskveiðistjórn-
unarkerfið meðal þjóðarinnar.
Þingið telur að tillögur meirihluta
nefndarinnar séu fjarri því að stuðla að
því markmiði sem nefndinni voru settar.
Þvert á móti muni tillögurnar, nái þær
fram að ganga, auka enn á það ósætti
sem verið hefur um árabil um stjórn fisk-
veiða.
Þingið hafnar veiðileyfagjaldi, hvort
sent það er kallað hóífegt eða óhóflegt og
sér með engu móti með hvaða hætti slíkt
gjald eykur líkur á sátt um fiskveiði-
stjórnun, eða hvað slík skattheimta yfir
höfuð keinur fiskveiðistjórnunarkerfi
við.
Örn Einarsson og Guðlaugur Jónsson i þinghléi.
Þingið hafnar því að heimilað verði að
framselja aflahlutdeild fiskiskipa til fisk-
vinnslustöðva.
Þingið hafnar rýmkun á hámarksafla-
hlutdeild fyrirtækja.
Þingið hafnar lækkun á veiðiskyldu, en
bendir á og ítrekar fyrri kröfur sínar um
að veiðiskylda verði hækkuð verulega
(100%) frá því sem nú er og samhliða
því verði framsal aflamarks afnumið og
einungis heimiluð jöfn skipti á alfamarki.
Þessi tvö atriði eru grundvöllur þess að
nálgast einhverja sátl unt fiskveiðistjórn-
unarkerfið.
Þingið hafnar því að úthlutaðar veiði-
heimildir í úthafinu verði framseljanlegar
miffi skipa sem skráð eru undir mismun-
andi þjóðfánum.
3.3 Um hvalveiðar
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands haldið í Reykja-
vík 28.-30. nóvember 2001, krefst þess
að hvalveiðar verði hafnar á næsta ári á
íslandsnhðum. Greinargerð:
Stækkandi hvalastofnar á íslandsmið-
um valda nú þegar miklum skaða og
minnka nýtingu okkar og aflamagn úr
mörgum fiskistofnum m.a. úr þorsk-
stofnum. Frekari töf á þvi að hefja hval-
veiðar vinnur gegn heildarhagsmunum
þjóðarinnar.
Kjaramál
4.1 Um Lífeyrissjóð sjómanna
40. þing Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands haldið dagana 28.-30. nóv-
ember 2001, lýsir yfir áhyggjum af
slæmri stöðu Lífeyrissjóðs sjómanna sem
að óbreyttri stöðu stefnir í að enn á ný
verði að skerða lífeyrisréttindi sjóðsfé-
laga.
Þingið beinir því til Alþingis íslend-
inga að veita brautargengi frumvarpi
Guðjóns Arnars Kristjánssonar alþingis-
manns, um hækkun á mótframlagi út-
gerðarmanna úr 6% í 8%. En það verður
að teljast eðlilegt, þar sem sjóðurinn hef-
ur virkað sem slysatryggingasjóður fyrir
útgerðina.
4.2 Um Verðlagsstofu skiptaverðs
40. þing Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands haldið dagana 28. - 30.
nóvember 2001, beinir til Alþingis að 3.
gr. laga nr. 13. frá 27. rnars 1998 um
Verðlagsslofu skiptaverðs verði breytt
þannig að allir þeir fiskverðssamningar
sem í gildi eru verði aðgengilegir á
heimasíðu stofunnar eða á annan sam-
bærilegan hátt. Þingið felur jafnframt
stjórn sambandsins að beita sér af fullu
afli þannig að þessi breyting geti gengið
eftir.
Greinargerð:
Það er algjörlega óviðunandi að ekki sé
hægt að fá upplýsingar um fiskverð ein-
stakra áhafna fiskiskipa öðruvísi en að
leita eftir þeim hjá viðkomandi. Með
þessu fyrirkomulagi er kornið í veg fyrir
eðlilegt upplýsingastreymi og gerir
ntönnum erfiðara fyrir þegar fengist er
við fiskverðssamninga. Upplýsingar um
fiskverð eiga að vera opinberar og öllum
aðgengilegar öðruvísi en í meðaltölum.
4.3 Um 26. grein sjómannalaga
40. þing Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands haldið dagana 28.-30. nóv-
ember 2001 felur stjórn Farmanna- og
fiskimannasambands íslands að gera til-
lögu til Alþingis á yfirstandandi þingi, í
samvinnu við lögfræðing ef þurfa þykir,
um breytingu á 26. grein sjómannalaga á
þann veg að skipverjum verði tryggðar
tekjur í a.m.k. þann tíma sem samnings-
bundinn uppsagnarfrestur þeirra segir til
um, þó aldrei skemmri tíma en sem
nernur 2 mánuðum. Kaup þetta skal
vera meðaltal tekna viðkomandi undan-
Sjómannablaðið Víkingur - 17