Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Page 18
vík dagana 28. - 30. nóvember 2001,
skorar á sjávarútvegsráðherra að beita sér
fyrir því að vigtun á uppsjávarfiski verði
komið í viðunandi horf þannig að afli sé
vigtaður á réttan hátt upp úr hverju
fiskiskipi.
Greinargerð:
Á undanförnum árum hafa skipstjórn-
armenn loðnu-, síldar- og kolmunnabáta
margoft orðið þess áskynja að vigt úr
fullfermistúrum hefur lækkað þegar afla
er landað í íslenskar fiskmjölsverksmiðj-
ur, en þó með fáeinum undantekningum.
Þessi þróun hefur leitt til þess að sjó-
menn verða fyrir verulegri tekjuskerð-
ingu og tilkynntur afli er rangur.
5.3 Um tekjur sveitarfélaga og hafn-
arsjóða
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands haldið í Reykja-
vlk dagana 28. - 30. nóvember 2001,
beinir því til sveitarstjórna að þær styðji
samtök sjómanna i þeirri kröfu að verð-
lagning á fiski fari fram á eða í tengslum
við fiskmarkaði.
Greinargerð:
Þar sem hafnarsjóðir fá tekjur sínar af
verðmæti landaðs sjávarafla, þá hlýtur
það að vera hagur þeirra að sem hæst
verð fáist fyrir aflann eins og gerist á
fiskmörkuðum. Einnig má benda á að
útsvarsgreiðslur sjómanna til sveitarfé-
laga munu tvímælalaust hækka verði all-
ur fiskur verðlagður á fiskmörkuðum.
5.4 Um haf- og fiskirannsóknir
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands haldið í Reykja-
vík dagana 28. - 30. nóvember 2001,
skorar á stjórnvöld að efla haf- og fiski-
rannsóknir á íslandsmiðum. Þingið legg-
ur áherslu á að stjórnvöld styðji í ríkara
mæli við bakið á fleiri aðilum en Haf-
rannsóknastofnun til að stunda haf-og
fiskirannsóknir.
Þingið lýsir yfir áhyggjum varðandi á-
stand helstu fiskistofna við ísland, sem
kallar á aukna vitneskju um lífríki hafs-
ins, samspil fiskistofna og áhrif veiðafæra
á fiskislóðir.
Önnur mál
6.1 Um NAVTEX sendingar
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasantbands íslands, haldið í Reykja-
vik dagana 28. - 30. nóvember 2001,
skorar á hlutaðeigandi stjórnvöld að sjá
til þess að NAVTEX sendingar náist alls-
staðar við landið.
6.2 Um sjónvarpssendingar
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldið í Reykja-
vík dagana 28. - 30. nóvember 2001,
skorar á stjórnvöld að koma sjónvarps-
sendingum út á miðin í gegnum gervi-
hnött.
Guðmundur Jónsson á spjalli við Guðjón A. Kristjánsson.
genginna 6 mánaða. Greiðsla af þessu
tagi skal tryggð af ríkissjóði íslands. Það
sama gildi um skipstjóra.
Sjávarútvegsmál
5.1 Um vigtun og stærðarmat á sjáv-
araíla
40. þing Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands haldið dagana 28. - 30.
nóvember 2001, beinir því til sjávarút-
vegsráðherra að endurskoðuð verði
reglugerð nr. 522/1998 um vigtun sjávar-
aíla. Sett verði skýrari ákvæði í reglu-
gerðina hvernig staðið skuli að úr-
taksvigtun og nýtt ákvæði um stærðar-
mat á þeim afla sem landað er og starfs-
reglur þar að lútandi.
Greinargerð:
Ekki kemur fram í reglugerðinni eða
auglýsingu nr. 768 frá 18. des. 1998 á
hvern hátt skuli staðið að stærðarmati
samhliða úrtaksvigtun. Yfirleitt sér
starfsmaður fyrirtækisins sem landað er
hjá bæði um úrtaksvigtun og stærðarmat.
Mjög misjafnlega er staðið að stærðar-
mati á ferskfiski eftir hvar landað er
sumstaðar er viðhaft sjónmat annarsstað-
ar er hver fiskur vigtaður í úrtaki. Dæmi
eru um að aðeins lítii prósenta úr kari sé
notuð við stærðarmat en ekki allt inni-
hald karsins. Það er að sjálfsögðu krafa
að sá sem hefur með höndum stærðar-
mat og úrtaksvigtun sé hlutlaus aðili t.d.
starfsmaður viðkomandi hafnar h'kt og
þegar landað er frosnum fiski. Það verk-
lag sem nú viðgengst við úrtaksvigtun er
algjörlega óviðunandi fyrir sjómenn
vegna þess að tekjur þeirra byggjast að
stórum hluta á stærð fisks sem landað er.
Einnig má benda á að með þessu móti
getur viðkomandi útgerð skammtað sér
þann afla sem dregst frá kvóta í ljósi þess
að undirmál dregst ekki að fullu frá
kvóta. Það er því nauðsynlegt að breyta
reglugerðinni á þann veg að það sé óháð-
ur aðili sem annist vigtun og nákvæmar
reglur verði settar um verklag.
5.2 Um vigtun uppsjávarfisks
40. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambandi íslands haldið í Reykja-
Ární Bjarnason fylgist með umrœðum á þingi
FFSÍ
18 - Sjómannablaðið Víkingur