Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Síða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Síða 19
Árni Bjamason nýkjörinn forseti slítur 40. þingi FFSÍ. Árni Bjarnason forseti FFSÍ er ekki hallur Arni Bjarnason nýkjörinn forseti FFSÍ er fæddur árið 1952 og fór fyrst til sjós árið 1968 á togaranum Harðbak. Hann lauk námi frá Stýrimannaskólanum 1973 og árið 1985 lauk hann nárni í út- gerðartækni frá Tækniskólanum. Árni er skipstjóri á frystitogaranum Akureyrinni og hélt strax til sjós eftir að þingi Far- manna- og fiskimannasambandsins lauk til að klára sinn síðasta túr. Sjómanna- blaðið Víkingur náði stuttu spjalli við hann þar sem hann var að veiðum fyrir vestan land og spurði hvort þetta hafi verið erfið kosningabarátta? „Það var erfið ákvörðun að láta slag standa og fara fram. Eg var ekki með mikla kosningabaráttu. Tók strax þann pól í hæðina að ef það dygði ekki að þeir sem þekktu mig fyrir treystu mér í slarfið yrði bara að hafa það.” - Þú hefur sagt að þú viljir reyna að korna á betri samskiptum við útvegs- menn? „Ég vil helst geta verið í sambandi við alla sem fjalla um þessi mál, hvorl heldur er útgerðarmenn, stjórnvöld, Sjómanna- sambandið eða jafnvel vélstjórar. Það hlýtur að vera lykillinn að því að eitt- hvað gerist að nrenn geti hist og talað saman.” - í fréttum sjónvarps fagnaði Friðrik J. Arngrímsson því að þú hafðir verið kjör- inn forseti FFSÍ. Þurfa þínir félagar að hafa einhverjar áhyggjur af fögnuði frarn- kvæmdastjóra LÍÚ? „Það kvikna ótal aðvörunarljós þegar hann fagnar. Við Friðrik kynntumst svo- lítið fyrir nokkru og þau kynni byrjuðu ekki vel því hann ætlaði að hjóla í mig. Ég skrifaði einhverja grein í Moggann sem hann var ákaflega óhress með. I þessari grein sagði ég eitthvað á þá leið að það væri einsdæmi í kjaradeilu að lýsa því yfir að ekki þýddi að tala um neitt sem kostaði eitthvað og síðan ættu menn að reyna að ná árangri í framhaldi af því. í þessu sambandi tíundaði ég hvað þetta væru yfirgengilega fíflalegar aðferðir sem þeir notuðu. Friðrik var svona ægilega reiður að ég hélt hann ætlaði í mig þegar við hittumst, en svo gátum við farið að tala sarnan. En ég fer ekki að flaðra upp um hann þótt hann fagni núna. Ég er ekki hallur undir neinn nerna rnína menn og vona að þeir sem þekki mig helst geti staðfest það. Einhverjir reyndu víst að gera það tortryggilegt að ég vinn hjá Samherja. En ég get fullyrt að á þeim bæ hef ég sagt mína meiningu og það hefur ekki hjálpað mér á framabraul- inni.” - Hvenær kemur ] t til starfa fyrir Farmanna- og fiskin .sambandið? „Það verður eflir árumót. Ég klára túr- inn og held svo jólin. Ég er svona að horfast i augu við það eftir að ég er kom- inn út á sjó að þetta snýr öllu á hvolf í tilverunni hjá mér rniðað við það sem hefur verið. Fyrstu vikurnar í nýja starf- inu fara eflaust meira og minna í að korna mér inn í starfið og ræða við menn sem reynsluna hafa á þessum vettvangi. Þetta er mjög spennandi verkefni og krefjandi urn leið. Eins og ég sagði við einhvern í morgun þá er það svo að ef ég stend mig sæmilega er kannski ein- hver von um að ég fái pláss aftur. Ef ég stend mig þokkalega er það nánast von- laust og ef ég stend mig vel get ég gleymt því”, sagði Árni Bjarnason.-SG Sjómannablaðið Víkingur - 19

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.