Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Side 56
Sjórdnin á Karabíahafi náðu hámarki á 17. öld (1625-1698) stóðu i rúm 70 ár. í lok aldarinnar samþykktu Evrópuríki yfirlýsingar um að sjórœn-
ingjar vœru óvínir alls mannkyns „hostis humani generis”.
ist allt í einu gegn þeim. Alger ósigur
blasti við. Stjórnlaus tryllt naut voru allt
í einu komin inn í raðir þeirra. Skyndi-
lega fældust nautin og snerust gegn
Spánverjunum. Morgansmenn fylgdu fast
eftir og nýttu sér glundroðann, sem varð
í liði Spánverja. Jarðvegurinn varð eitl
svað vegna undangenginna rigninga svo
Spánverjarnir gátu ekki beitt hestunum
sem skyldi. Rigningin hafði verið blessun
í dulargervi fyrir ræningjana. Eftir æðis-
genginn bardaga voru Spánverjarnir sigr-
aðir. Því næst réðust þeir sem trylltir á
borgina sjálfa og þar stóð linnulaus bar-
dagi í nokkrar stundir þar til Spánverjar
voru endanlega sigraðir. Af þeim lágu
600 í valnum og nokkur hundruð særðir.
Hið ótrúlega hafði gerst - ræningjarnir
höfðu sýnt fádæma hreysti og úthald og
gersigrað ofureflið. Þeir dvöldu í þrjár
vikur í borginni og leituðu að fjársjóð-
um, en lítið fannst. Borgarbúar voru
pyntaði hroðalega til þess að segja til um
felustaði, en rýr varð árangurinn. Því
næst brenndi liðið borgina til grunna.
Ferðin til baka til Karíbahafs var við-
burðarlítil. Eftir hættur og allt erfiðið
höfðu þeir minna upp úr krafsinu en
þeir bjuggust við. Þegar komið var á
ströndina var gengið til náða fyrir nótt-
ina þvi að morgni næsta dags skyldi lagt
af stað heim á leið. Um nóttina hurfu
Morgan og fylgismenn hans leynilega á
brott út í myrkrið á þremur skipum með
megnið af ránsfengnum og skildu lítið
eftir. Þannig kom Morgan fram við þá
sem barist höfðu með honum og hætt lífi
sínu ekki síður en hann. Þannig var
Panamaferðin ekki aðeins hans glæstasta
för líka hans auðvirðilegasta.
Landstjóri á Jamaica
Þegar komið var til Port Royal var
hann og landstjórinn kallaður til
London. Þeir höfðu gerst brotlegir vegna
samingsins við Spán (1670). Ónáðin stóð
samt ekki lengi. Englandskonungur Karl
11 aðlaði Henry Morgan 1674. Morgan
sneri aftur til Jamiaca varð landstjóri þar
og æðsti yfirmaður enska setuliðsins á
eyjunni. Margir af fyrri liðsmönnum
hans, sem sneru aftur til Jamaica til þess
að fá leiðréttingu sinna mála lentu í
snörunni, því að nú var Sir Henry Morg-
an orðinn helsti óvinur sjóræningja á
Karabíahafi. Sir Henry Morgan bjó á
Jamaica, virtur maður og auðugur þar til
hann andaðist í svefni í ágústmánuði
1688. Fjórum árum síðar eða 1692 reið
mikill jarðskjálfti yfir Port Roayl. Margir
létust og stór hluti af sjóræningjaborg-
inni sökk í hafið.
Þeir sem tekið hafa málstað Morgans
hafa bent á að hann hafi verið einn af
bestu liðsmönnum ensku krúnunnar í
stríðinu við erkióvininn Spán, stuðlað að
yfirburðum enska flotans, tryggt stöðu
bresku nýlendanna í Vesur-Indíum og
stöðvað sjórán á Karíbahafi. - Og hin al-
menna skoðun á Henry Morgan sem
blóðþyrstum sjóræningja sé að mestu
byggð á frásögn eins úr skipshöfninni,
sem var andstæðingur hans. Rúsir gömlu
Panamaborgar hafa verið gerðar að þjóð-
garði. Þær eru skammt frá nútímaborg-
inni, sem ber sama nafn. Þangað leita
margir ferðamenn er berja vilja augum
rústir þessarar borgar við Kyrrahaf sem
eitt sinn var óhemjurík. Þangað fóru ger-
semar sent Spánverjar tóku úr Suður-
Ameríku einkurn gull og silfur. Því var
eftir miklu að slægjast fyrir ræningja eins
og Henry Morgan.
Skömrnu eftir heimsslyrjöldina fyrri
fundust fjársjóðir í rústum hinnar gömlu
Panamaborgar. Þar var á ferðinni Eng-
lendingur með málmleitartæki. Miklir
fjársjóðir voru undir rústum biskupshall-
arinnar. Kort hafði einnig fundist, sem
sýndi að borgarbúar höfðu falið dýrgripi
sína í göngum og hvelfingum neðanjarð-
ar, en ógerlegt reyndist að staðsetja þá
vegna breytinga og rasks í jarðvegi, sem
orðið hafði síðan atburðurinn gerðist
þegar borgin var brennd til grunna.
Einnig er talið sennilegt að miklum verð-
mætum hafi verið komið undan fyrir á-
rásina, því að borgarbúar höfðu fengið
vitneskju um fyrirhugaða árás með til-
tölulega góðum fyrirvara. Helsti dýrgrip-
urinn var samt ofanjarðar þar sem allir
gátu séð hann auðveldlega. Þetta var hið
mikla gyllta altari, sem íbúar borgarinnar
höfðu rnálað yfir og er enn til sýnis í
Panama.
56 - Sjómannablaðið Víkingur