Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Side 63
Framtak
Síun kerfisolíu
Síun er nauðsynleg á olíukerfum nútímans
til að verja viðkvæma skriðla og loka svo
ekki sé minnst á dælur eða rótora, því sé ol-
ían óhrein má búasl við rekstrartruflunum
og stöðvunum með tilheyrandi tapi.
Fyrirtæki sem ætla sér að vera í farar-
broddi verða að gera sér grein fyrir þvi að
losun oltu er ekki umhverfisvæn og því ber
að nýta hana eins lengi og hægt er að halda
henni innan þeirra óhreinindamarka sem
framleiðendur gefa upp. Hægt er að marg-
falda endingartíma olíu með réttri síun.
Til að auðvelda mat á ástandi vökva hafa
verið búnir til staðlar eins og ISO 4406 og
NAS1638 þar sem olían er flokkuð eftir því
magni af óhreinindum af mismunandi stærð-
um sem i henni eru og gefa flestir framleið-
endur upp þær kröfur sem þeir gera til olí-
unnar samkvæmt þessum stöðlum.
Því hvetjum við alla umsjónarmenn
vökvakerfa til að kynna sér staðlana og þau
mörk sem framleiðendur tækjabúnaðar setja
varðandi rnagn óhreininda í olíunni og þeg-
ar olíuprufur eru sendar til rannsóknar, að
niðurstöður þeirra séu gefnar upp sam-
kvæmt stöðlum. Hægt ætti að vera að nálg-
ast þessar upplýsingar hjá olíufélögunum,
en undirritaður svarar með ánægju þeim fyr-
irspurnum sem honum berast.
Til að halda olíu innan uppgefinna marka
er rétt síun og vönduð ineðhöndlun kerfi-
vökvans eini raunhæfi kosturinn. V/S Fram-
tak tók á þessu ári við þjónustu og sölu fyrir
síuframleiðandann C.C.JENSEN (CJC) í
Danmörku, en fjöldi vélstjóra þekkir fram-
leiðslu þeirra af eigin raun. CJC sérhæfir sig
i framleiðslu svokallaðra “Offline” kerfa, sem
vinna til hliðar við og óháð aðal kerfinu.
Síun með þessum kerfum er 3pm absalut og
0,8pm nominal. Pessi kerfi eru í nær öllum
tilfellum sett á forðatank viðkomandi kerfis
til að fjarlægja óhreinindi sem þangað ber-
ast.
Framleiðslu CJC má skifta í “Filter
Separators” sem eru sambyggð finsía og
vatnsskilja og “Fine Filters” sem eru fínsíur
sem taka til sín vatn upp að ákveðnu magni.
Margar útfærslur eru fáanlegar innan þess-
arra kerfa, þannig að framleiðslan hentar fyr-
ir síun á flestum kerfisvökvum s.s. smurolíu,
glussa, brennsluolíu.
“Filter Seperator” er mjög áhugaverður
kostur til hreinsunar á vökvakerfum þar sem
hætta er á að sjór eða vatn berist í kerfið. 01-
íunni er þrýst í gegnum síuna og vatnið fellt
út í kjarnanum á svo kölluðu “Coaleser” .
Hrein vatnsfrí olía rennur frá síunni að ofan
en vatninu sem sest í neðri hluta hennar er
tappað undan handvirkt eða sjálfvirkt.
Eini hreyfanlegi hluturinn í þessum
búnaði er fæðidælan, þannig að við-
hald er í algjöru lágmarki. Reynslan
hefur sýnt að við eðlilegar aðstæður er
nóg að skifta um element einu sinni á
ári. CJC síubúnaður hentar vel á
brennsluolíukerfum þar sem þessi
búnaður skilar olíunni ekki síður
hreinni en skilvinda og er fyllilega
samkepnisfær í innkaupum og rekstri.
Dæmi um vökvakerfi sem hentug
eru fyrir “Filter Separator” eru skut-
hlið, lúgur, hliðarskrúfukerfi ,fiskidælu-
kerfi o.s.fr.
Ef menn vilja afla sér nánari upplýs-
inga er þeim bent á að snúa sér lil V/S
Framtaks og munum við með ánægju
upplýsa þá um möguleikana sem fyrir
hendi eru.
Jóii A. Jónsson
Höfundur er vélfrœðingur og vinnur sem
þjónustufulltrúi hjd V/S Famtah Hafnar-
firði sem selur og þjóriustar síubúnað frá
C.C.Jcnssen
Finsíur og
siuskiljur
Eigum á lager eða útvegum með stuttum
fyrirvara hinar velþekktu CJC fínsíur og síu-
skiljur.
Síurnar eru 3p „absolut" og 0,8 „nom-
inal" vatn er skilið frá á sérstakan hátt í síu-
skiljunum þannig að það hefur ekki áhrif á
endingu fínsíunnar. Einfaldar og ódýrar í
rekstri.
Henta á smurolíu, vökva og eldsneyt-
iskerfi, af öllum stærðum.
50 ára reynsla, mikil gæði.
Hagstætt verð.
GÓÐ ÞIÓNUSTA
VEGUR ÞUMGT
FRAMTAK
VÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA
Drangahrauni I -1 b Hafnarfjörður
Sími: 565 2556 • Fax 555 6035
Netfang: jonadalsteinn@framtak.is
Pjónustusíður