Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Qupperneq 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Qupperneq 16
Bergur Krístinsson, Halldór Cuðbjörnsson og Valdimar Aðalsteinsson. arðsemiskrafa fyrirtækjanna eigi í það ó- endanlega að vera það eina sem einblínt er á, burtséð frá öllum öðrum þáttum s.s. velferð einstaklinga og byggðarlaga. Ráðstefnufulltrúar hvetja stjórnvöld til að beita sér nú þegar fyrir fjárhagslegum aðskilnaði veiða og vinnslu, og stuðla þannig að því að aðstæður skapist fyrir eðlilegri verðmyndun á sjávarafla í gegn- um fiskmarkaði. Með siendurteknum afskiptum sínum af kjaradeilum sjómanna og útvegs- manna, bera stjórnvöld ótvírætt ábyrgð á því meingallaða kerfi sem nú er í gildi, þar sem hluti sjómanna sem landar ferskum fiski er stórlega hlunnfarinn. Ráðstefnan telur að hvergi annarsstaðar fyrirfinnist kerfi þar sem stjórnvöld með beinum aðgerðum aðstoða vinnuveitend- ur við að hlunnfara launþega sína. Formannaráðstefnan skorar því á sjáv- arútvegsráðherra og ríkisstjórn að endur- skoða enn á ný lögin um stjórn fiskveiða með það að meginmarkmiði að starfsum- hverfi greinarinnar verði í takt við al- mennar leikreglur lýðræðisins. Ráðstefnan gagnrýnir harðlega þá inn- rás erlendra leiguskipa á íslenskan flutn- ingamarkað sem nú á sér stað. Erlend skip með erlendum áhöfnum eru komin í fastar ferðir með íslenskar afurðir og innflutning á lífsnauðsynjum þjóðarinn- ar, auk þess að þjóna strandsiglingum. Afleiðing þessa er m.a. að íslenskir skipstjórnarmenn með margra ára verk- og bóknám að baki, ganga atvinnulausir meðan erlendir menn annast þau störf sem þeir áður sinntu. Af þessu leiðir að afrakstur tekna þeirra skilar sér ekki inn í íslenskt þjóðfélag. Auk þess mun siglingaþekking íslend- inga líða undir lok ef fram fer sem horfir þar sem ungir menn og konur leggja ekki fyrir sig nám í greinum þar sem enga vinnu er að fá. Ábyrgð stjórnvalda er mikil í þessu efni þar sem ekki hefur verið brugðist við í tíma til að bæta samkeppnisstöðu íslenskra kaupskipaútgerða með hlið- stæðum hætti og gert hefur verið á öðr- um norðurlöndum og víðar í vestur Evr- ópu. Ráðstefnan skorar á ríkisstjórnina að beita sér fyrir viðunandi landhelgisgæslu með auknum fjárveitingum til Landhelg- isgæslu íslands og útboði á nýju varð- skipi þannig að hægt verði að halda uppi fullnægjandi eftirliti með efnahagslög- sögunni og tryggja örugga leitar- og björgunarþjónustu fyrir sjófarendur við ísland, með útgerð a.m.k. þriggja varð- skipa. Ráðstefnan lýsir furðu sinni á þeim samdrætti sem orðið hefur og fyrir- hugaður er á þessu sviði sem birtist í mjög takmörkuðum fjárveitingum til Landhelgisgæslunnar og treystir því að þessi mistök verði lagfærð. Um tvískráningu fiskiskipa Formannaráðstefnan hafnar alfarið öll- um hugmyndum um tvískráningu fiski- skipa og ítrekar þá skoðum FFSÍ að þær vinni gegn hagsmunum sjómanna og ís- lensks samfélags. Greinargerð. ítrekað hefur komið fram vilji LÍÚ að hægt verði að tvískrá fiskiskip, þannig að skipin geti stundað veiðar í lögsögu ann- arra ríkja án þess að þau séu tekin af ís- lenskri skipaskrá og komið síðan aftur til veiða í íslenskri landhelgi að því loknu. Flættan sem skapast við þessa tilhögun gagnvart íslenskum sjómönnum er sú, að ráðnir verði erlendir sjómenn á mun verri kjörum en íslenskir á rneðan skipin stunda veiðar erlendis og tilhneigingin verði sú að þrýsta á að þeir haldi pláss- um sínum þegar skipin koma til veiða í íslenskri landhelgi. Nú þegar hefur tölu- verður fjöldi sjómanna misst vinnu sína og er ekki á bætandi. Bent skal á að á þeim stöðum sem sjómönnutn hefur fækkað á landinu, berjast sveitarfélögin í bökkum vegna minni skatttekna og tekj- um af umsvifum útgerða. Pað er því al- farið á ábyrgð stjórnvalda hvort þau enn og aftur láta undan skammtimagróða- sjónarmiðum LÍÚ. Lífeyrismál Formannaráðstefna FFSÍ bendir á þann geysilega mun sem viðgengst á skuld- bindingum lífeyrissjóða. Forsendur fyrir afkomu lífeyrissjóða eru mjög mismun- andi og er þáttur örorkubótanna lang- veigamestur. í lífeyrissjóði sjómanna er hlutfall örorkubóta 43% af heildarút- gjöldum sjóðsins. Greiðslur til örorkulíf- eyririsþega þeirra sjóða sem ekki tengjast sjómennsku eru ekki nema brot af þeim útgjöldum sem Lífeyrissjóður sjómanna þarf að inna af hendi. Þetta himinháa hlutfall örorkubóta er meginvandamál sjóðsins. Því er skorað á stjórn sjóðsins að standa fyrir rannsókn á orsökum og leita allra leiða til að skilgreina vanda- málið og ná niður þessum stærsta út- gjaldalið sjóðsins. Allar rannsóknir á á- hrifum starfsumhverfis á heilsufar eru skref i rétta átt. Þar sem alla breytingar varðandi Lífeyrissjóð Sjómanna þurfa af- greiðslu Alþingis er ljóst að taka þarf málið fyrir á þeim vettvangi. Vegna sér- stöðu starfa við sjómennsku og hás hlut- falls örorku í greininni er eðlilegt að spurt sé hvort sértækra aðgerða sé þörf af hálfu hins háa Alþingis. Vakin er sérstök athygli á hinu háa hlutfalli stoðkerfis- sjúkdóma, en 33 % örorkulífeyrisþega í Lífeyrissjóði sjómanna eru haldnir þeim. Séreignasparnaður Formannaráðstefna FFSf vekur athygli á þeirri stöðu sem komin er upp varð- andi séreignalífeyrissparnað sjómanna. Sjómenn sem ekki hafa til þessa greitt í séreignasparnað fá nú mánaðarlega greitt eitt prósent af kauptryggingu í séreigna- lífeyrissparnað, án mótframlags þeirra. Þetta ákvæði á við um alla sjómenn nema skipstjóra og stýrimenn. f jafn eld- fimu máli og réttindum til lífeyris verður að teljast einkennilegt að forsvarsmenn LÍÚ telji það hæfa að 2 til 4 menn í á- höfn hvers skips búi við lakari réttindi en aðrir áhafnarmeðlimir, hvað varðar lífeyrissparnað. Um auknar veiðiheimildir í ufsa og ýsu Formannaráðstefnan ályktar að þar 16 - Sjómannablaðið Víkingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.