Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 23
„Það er óneitanlcga mikill ágreiningur (við Norðmenn) og má segja að hann hefjist með síldinni en svo kemur loðnan inn í þetta líka. herra að ekki hafi komið fram krafa um aukna kvótahluldeild einstakra fyrirtækja í kjölfarið og jafnvel þótt svo væri hefði hann ekki hug á að leggja fram tillögur um breytingar á núverandi löggjöf um þetta efni. En stefnir þetta í að innan skamms verði þrjú til fjögur stórfyrirtæki allsráðandi í sjávarútvegi hér? „Nei, ég sé það ekki fyrir mér. Regl- urnar eins og þær eru núna takmarka að það geti orðið svo fá fyrirtæki. Ég tel lík- legt að hér verði tvö til fjögur stórfyrir- tæki og síðan önnur minni og allt niður í einstaklingsútgerðir. En í þessu sam- hengi er athyglisvert að horfa til þess, að jafnvel þar sem mest er talað um einstak- lingsúgerðir í smábátunum og sóknar- dagakerfinu verður vart við samþjöppun líka. Það er nokkuð sem menn hafa ekki verið að horfa á og ég veit ekki hvað mönnum finnst um þá þróun. Hins vegar er það þannig með samþjöppun og slíkt, að þetta gengur oft í bylgjum í atvinnu- lífinu. Það er rnikil samþöppun í ákveð- inn tíma sem gengur svo til baka og fyr- irtæki fara að brotna aftur upp. Við höf- um ekki séð mikið um það i sjávarúiveg- inum en hefur gerst í öðrum greinum. Þar kemur upp í hugann starfsemi sjúkrahúsa beggja megin Atlantshafsins, bæði ríkis- og einkarekin. Það gekk ntikil sameiningarbylgja yfir en nú er aftur ver- ið að skipta sjúkrahúsunum upp í ntinni einingar. En vænlanlega er verið að satn- eina sjávarútvegsfyrirtæki til að ná frarn aukinni hagkvæmni. Ef svo er ekki sé ég engan tilgang í þessu og vonandi eru teknar réttar ákvarðanir á þeim forsend- um. Svo ef kemur í ljós að teknar hafi verið rangar ákvarðanir verður væntan- lega snúið til baka því þessi fyrirtæki eru rekin lil þess að hagnast á þeim.” - íslenskar útgerðir hafa sótt talsvert út i heim og gera út þaðan. Kemur þá eklti upp sú krafa að erlend fyrirtceki fái að gera út héðan? „Það hafa ekki verið uppi sterkar kröf- ur um það og raunar mjög litlar. Þess vegna kemur þessi krafa frá Evrópusam- bandinu á óvart. Þetta hafa aðildarþjóðir þess ekki lagt áherslu á í viðræðum við okkur þótt það hafi vissulega borið á gónta. En ég hef aldrei orðið var við að því fylgdi neinn þungi. Ég hef skýrt það þannig, að víðast hvar í heintinum er sjávarútvegur ekki þannig staddur að menn sækist beinlínis eftir þvi að fjár- festa í honum. Sérstaklega í Evrópusam- bandinu er þetta ríkisstyrkt atvinnugrein þar sem kvótinn hefur verið að skerðast og stefnir í núll á sumum svæðum. Ef ntenn sjá ekki vænlega fjárfestingarkosti í atvinnugrein heinta hjá sér eru þeir síð- ur líklegri til að fjárfesta í slíku annars staðar. En auðvilað eru undantekningar á þessu sent öðru. Einnig hantlar lagaum- hverfi víða erlendar fjárfestingar. Fisk- veiðirétlindi eru lítt skilgreind og því eru menn síður viljugir til að hætta fjármun- um sínum.” - Ert þú fylgjandi því að útlendingar geti lagtfé í íslenskan sjávanitveg? „Eins og staðan er í dag held ég að út- lendingar hafi þar mjög mikla möguleika og sé enga ástæðu til að breyta því. Það er ákveðin hætta fólgin í því fyrir okkur þvi auðvelt er að nýta fiskinriðin annars staðar frá eins og gert var um aldir þar sem lítið af því sem auðlindin gaf af sér skilaði sér til okkar. Mér finnst við hafa tekið rétta stefnu með því að fara mjög Sjómannablaðið Víkingur - 23

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.