Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Page 28
Hinir aflasœlu Auðunsbrœður, sem allir xoru skipstjórar, í spjalli
xið Sjómannablaðið Víking
Við vorum í bullíandi
Fjórir bræður voru heiðraðir af sjó-
mannadagsráði Akureyrar árið 2002.
Þetta voru þeir Sæmundur, Þorsteinn,
Gunnar og Auðun Auðunssynir sem
starfað höfðu sem skipstjórnarmenn hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa á sjötta ára-
tugnum. Sæmundur bróðir þeirra, sem
lést árið 1977, varð fyrsti skipstjóri ÚA
og fyrir hans tilstilli komu hinir þrír
norður. Bræðurnir, sem gengu undir
heitinu Auðunsbræður, voru fimm sem
upp komust og allir urðu þeir skipstjór-
ar. Elstur þeirra var Sæmundur, fæddur
1917 og næstur í röðinni var Þorsteinn,
fæddur 1920, þá Gunnar, fæddur 1921,
Gísli fæddur 1924 og Auðun sem fæddur
er 1925. Tveir bræður þeirra Halldór og
Pétur Guðjón létust báðir um tvítugt.
Systurnar voru sex en ein þeirra, Petra,
dó á barnsaldri. Þrjár elstu systurnar, Ó-
lafía, Elín og Kristín, giftust skipstjóra-
lærðum mönnum en yngstar í þessum
stóra systkinahóp voru Guðrún og Stein-
unn. Foreldrar þeirra voru Auðun Sæ-
mundsson, skipstjóri og bóndi á Minni-
Vatnsleysu, og kona hans Vilhelmína Sig-
ríður Þorsteinsdóttir. Auðun, faðir þeirra
bræðra, fór á sjó á barnsaldri, varð for-
maður árið 1903, þá fjórtán ára gamall.
Hann hætti skipstjórn árið 1940 og varð
háseti á togara en síðustu árin á sjó var
hann bræðslumaður á togurum.
Aralagið með móðurmjólkinni
Það er líklega einsdæmi að fimm bræð-
ur hafi lokið Stýrimannaskólanum og
gerst farsælir skipstjórnarmenn í kjölfar-
ið. Blaðamaður Sjómannablaðsins Vík-
ings settist niður með bræðrunum Þor-
steini, Gunnari og Gísla einn fallegan
haustdag. Auðun gat ekki verið með í
þessu spjalli vegna veikinda sem hafa
Friðrik Ólafsson skólastjóra Stýrimannaskólans ogAuðun Sœmundsson með sonum sínumfimm. Friðrik hafði sótt það stíft að hann ogfeðgar
færu í myndatöku þegar allir bræðurnir höfðu lokið skólanum. Frá vinstri í efri röð: Gísli, Þorsteinn, Auðun, Sœmundur og Gunnar.
28 - Sjómannablaðið Víkingur