Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 38
ÖRLAGANÓTTÁ EYSTRASALTI Ferjan Estonia ferst 28. september 1994 Estonia. Sœnska ferjan Estonia fórst í miklu óveðri um miðja nótt utan við Álandseyjar í Eystrasalti. 852 farþegar og sjómenn fórust. Einn þeirra 137, sem komust af, Daninn Morten Boje Hviid, lýsir hrœði- legri nœturvist í hálffullum björgun- arbát í ólgusjó. Sjórinn var ekki kaldur og það var hvorki vindur né öldur. Loftið var þægi- lega hreint. I’ótt munnurinn væri enn samanherptur og þurr, fann ég bæði fyrir lofti og sjó. Ég var nýkominn í sjóinn, en mundi ekki nákvæmlega hvernig það gerðist, hvorki hvaðan ég stökk af skip- inu né stökkið sjálft. Kannski stökk ég alls ekki, heldur gekk beint út i sjóinn, en skipshliðin maraði í sjávarborðinu. Hafði ég gengið út af reykháfnum? Það var nótt, en samt var eitthvað sem gaf birtu. Kannski tunglið eða ljóskastari á skipinu. Allt var hljótt. Það heyrðist hvorki óp frá fólki né hávær vélarhljóð, aðeins lágt suð frá loftræstikerfinu. Og svo þetta hriktandi og eymdarlega málmhljóð, sem ég heyrði um leið og ég hljóp út úr klef- anum mínum. Það var eins og skips- skrokkurinn, sem flaut rétt hjá mér, and- varpaði með hálfrar mínútu millibili, líkt og einhver drægi hann hægt niður. Björgunarvestið hélt mér á floti og ég barðist um með fótunum. Björgunarbátar voru nálægt mér, en þá rak hratt í burtu. Það heyrðist daufur hvinur frá þeim þeg- ar þeir flutu hjá. Nokkrir björgunarbátar, sem líktust venjulegum árabátum, tnör- uðu á hvolfi. Allt í einu birtist stór gúmmíhringur fyrir framan mig. lTöfuð birtust yfir innri brún hringsins. Fólkið var undir beru lofti. Það voru margir um borð, kannski 16- 20 manns. Ég greip i kaðal og tveir menn drógu mig inn fyrir. Það var jafnmikil þörf fyrir björgunarvestið inni í bátnum og fyrir utan. Við stóðum í sjó upp í háls. Það var plastdúkur í hliðunum og kaðlar til að halda sér í og það var hægt að spyrna í slappan dúkinn og halda sér þannig uppréttum og efri hluta likamans upp úr sjónum. Það var fátt um orð, dá- lítið muldur og einstök hróp endrum og sinnum - nokkrum sinnum athugasemd- ir: „Fjandinn sjállur, hann er sprung- inn!”. Ég þekkti aftur þessa björtu og á- köfu rödd, en hugsaði ekki frekar um það. Lágvært muldrið þagnaði fljólt. Fjótt eftir að ég var kominn um borð rak bátinn hratt af stað - burtu frá skip- inu. Það virtist í fyrstu sem við færum um umferðargötu með árabátum og einkum þó björgunarbátum, sem flutu burt eins og lítil vaggandi indjánatjöld. Tómu bátarnir - en þeir virtust vera nrargir - þeyttust hratt í burtu. Aðrir bát- ar þar sem ætla mátti að fólk væri undir appelsínugulu þakinu - ef okkur bar nógu nálægt gátum við heyrt raddir inn- an úr þeim - rak á hóflegri hraða. Smám saman fækkaði bátunum og allt í einum vorum við alein á hafinu rétt eins og við hefðum sjálf sett okkar eigin röngu stefnu út í tómið. Enn sáum við Estoniu, en heyrðum ekki lengur málmhljóðið eða suðið frá loftæstikerfinu.Það var nánast ljósbjarmi umhverfis skipið. Estonia barðist enn, þótt óveðrið skylli aftur á. Ég stóð stöðugur upp í vindinn. Ég yrti ekki á neinn, skynjaði aðeins nær- veru fólksins. Sá eini, sem ég hafði ein- hver samskipti við, var sjómaðurinn, sem stóð við hliðina á mér. Hann var í appel- 38 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.