Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 59
Fiskislóð 14 • 101 Reykjavík • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is • www.isfell.is
Á barnum
Skömmu eftir að Guðmundur Ólafsson á Grund í
Reykhólasveit keypti hótel Bjarkalund langaði hann til
þess að fá sér í glas. Hann fór á barinn til unnustu sinn-
ar, hótelstyrunnar Ástu Sjafnar Kristjánsdóttur og ætlaði
að panta romm af tegundinni Captain Morgan. Guð-
mundur er frernur fljótfær og sagði hátt og skilmerki-
lega:
Ég ætla að fá tvöfaldan Morgan Kane!
um að stykkið yrði flutt þaðan á bát í veg fyrir skipið þegar það
kærni norður á Patreksfjarðarflóann, svo ekki þyrfti að sigla inn
á Patreksfjörð.
Björn heitinn Björnsson, skipstjóri og útgerðarmaður, var
fenginn til þessarar ferðar á bát sínum Mumma BA. Mummi er
nú varðveittur á byggðasafninu á Hnjóti í Öriygshöfn. Björn
fékk með sér í þennan túr Hjört Skúlason frá Stökkum á Rauða-
sandi. Hjörtur var svolítið gefinn fyrir sopann, eins og svo
margir fleiri góðir menn.
Ferðin út í togarann gekk að óskum. Skipstjórinn ákvað að
launa þeim Birni og Hirti ferðina aukalega og lét slaka niður til
þeirra viskíflösku með þeim fyrirmælum að þeir ættu þessa
flösku saman.
Björn stóð siðan landstímið en Hjörtur fór ofan í lúkar og sást
ekki meir. Þegar komið var í höfn á Patreksfirði kallaði Björn í
Hjört til að binda bátinn. Illa gekk að ná hásetanum út en eftir
japl og jaml og fuður kom hann upp úr lúkarnum reikull á fót-
um. Björn segir þá við hann:
Ertu orðinn fullur Hjörtur?
Hálsrígur
Brynjólfur Þór Brynjólfsson, útibússtjóri Landsbank-
ans á ísafirði, er nokkuð snöggur upp á lagið og kann
vel að svara fyrir sig. í kaffitíma í Landsbankanum á
ísafirði settist ein starfsstúlkan og neri ákaft hálsinn,
kvartaði sáran undan hálsríg og bætti við:
Ég veit bara ekki hvernig ég hef legið i nótt.
Kona þessi er gift togarasjómanni. Brynki spurði kon-
una hvort dallurinn væri ekki inni.
Jú, hann kom inn í gær.
Þá muldraði Brynjólfur:
Það er þá nokkuð ljóst hvernig þú hefur legið.
Hálfa flaskan
Eitt sinn fyrir mörgum árum var togari sunnan úr
Reykjavík á leið vestur á Halamið. Þegar skipið var
komið norður á miðjan Breiðafjörð vantaði varahlut í
vélina. Var þá haft samband við Pareksfjörð og beðið
Löngu seinna varð Össur umhverfisráðherra. Þá féll snjóflóð
á Seljalandsdal og sumarbústaðahverfið eyddist. Skipulagsyfir-
völd tregðuðust við að heimila endurbyggingu bústaðanna. Öss-
ur flaug að lokum vestur til fundar við bæjarstjórnina og ætlaði
að telja hana á sitt mál. Fundurinn varð erfiður og bæjarstjórn-
armenn þungir yfir afstöðu ráðuneytisins. Beint á móti Össuri
sat maður með glampandi skalla. Hann þagði framan af en svo
hallaði hann sér fram og horfði hvassbrýnn beint í augu ráð-
herrans, sem þóttist kannast við stingandi augnaráðið, þó hann
kæmi manninum ekki alveg strax fyrir sig. Þarna var kominn
Kristján Kristjánsson frá Litlabæ í Súðavík, lífgjafi ráðherrans
og einn af bæjarfulltrúum íhaldsins á ísafirði.
Kristján hvæsti loks á Össur ráðherra:
Ég var ekki að draga þig á hárinu upp úr sjónum fyrir tuttugu
árum til að þú kæmir svona fram við okkur, helvítið þitt!
Riðið til kirkju
Eitt sinn var verið að messa i Reykhólakirkju og stóð stór
hópur fólks á kirkjuhlaði áður en það gekk í kirkjuna. Þar á
meðal var Lilja Þórarinsdóttir á Grund. Lilja er snögg í
tilsvörum og á til að vera fljótfær.
Fólkið á hlaðinu veitti athygli miklurn jóreyk á mel-
unum í áttina að Skerðingsstöðum og velti fyrir sér hver
væri þar á ferð. Fljótt kom í ljós að þarna var Finnur
Kristjánsson á Skerðingstöðum að koma ríðandi til
kirkjunnar. Hesturinn undir Finni var ekki fulltaminn
og snerist undir bónda og réð hann ekki almennilega
við reiðskjótann.
Þá skaust upp úr Lilju:
Hu, allt sem hann Finnur ríður hringsnýst alltaf und-
ir honum.
vöruhús fyrir sjávarútveginn
Hafiö samband við sölumenn
Sjómannablaðið Víkingur - 59