Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 60
Já, svaraði Hjörtur. Þegar búið var að ganga frá bátnum fór Björn ofan í lúkar og sá að flaskan þeirra var tóm. Hann sagði þá reiðilega við Hjört: Ertu búinn úr flöskunni? Vissir þú ekki að ég átti helming- inn? Bjössi minn, svaraði Hjörtur, ég varð að drekka þinn part líka. Hann var ofan á mínum helmingi. Uppi á annarri Finnur Magnússon á ísafirði, golfáhugamaður og leikari, hef- ur lengi unnið í ritfangadeild Bókhlöðunnar á ísafirði. Eitt sinn skrapp Finnur yfir í bókadeildina að spjalla við Berglindi Óla- dóttur afgreiðslustúlku og bar þar að Jónas Gunnlaugsson versl- unarstjóra og sá hann þau skötuhjúin standa þarna á spjalli. Skömmu síðar kom viðskiptavinur og bað Finn ljósrita fyrir sig skjöl. Ljósritunarvélin er uppi á annarri hæð og fór Finnur upp til þess að vinna verkið. Meðan Finnur var uppi þurfti Jónas, sem hafði farið niður í kjallara, að hafa tal af honum. Jónas spurði Sigrúnu Halldórsdóttir afgreiðslustúlku hvar Finn- ur væri, og bætti svo við: Er hann enn yfir í bókadeildinni að klappa Berglindi? Nei, svaraði Sigrún snöggt, hann er uppi á annarri. Guli bíllinn Gísli heitinn Hjaltason, sjómaður og hafnarvörður í Bolungar- vík, var maður nokkuð víðförull. Eitt sinn eftir að hafa farið til Rússlands fór Gísli til Ameríku með Hofsjökli, einu af skipum Jökla hf., en hann vildi helst alltaf ferðast sjóleiðina ef því varð við komið. Hofsjökull sigldi til New York og lagðist að bryggju þar í höfninni. Gísli fór nokkuð um borgina meðan skipið stóð þar við. Þegar hann kom heim sagði hann mönnum í Bolungarvík, að þetta hefði verið mjög lærdómsrík ferð. Minnisstæðast var honum hversu bílstjórinn á gula bílnum hefði verið elskulegur og þægilegur við sig. Svo bætti hann við: Ef þið komið til New York strákar skuluð þið endilega reyna að ná í þennan strák á gula bílnum. Hann leysir allra vanda. Að nenna niður á bryggju Jón Kr. Elíasson Qónsi Elli), látinn fyrir nokkrum árum, var einn af þeim mönnum sem svip settu á mannlífið í Bolungarvík. Hann var sjómaður allan sinn starfaldur og eftir að hann að hætti sökum aldurs til sjós var höfnin honum hugleikin og átti hann oft leið niður á Brimbrjót að huga að aflabrögðum og fleiru er að sjósókn lýtur. Stefán Kristjánsson (Stebbi Kitt), bróðir Kitta Þ. sem lengi bjó frammi í eyrarodda á Langeyri við Álftafjörð, var Bolvíkingur sem hafði flutt til Ameríku og bjó þar alla tíð. Steinar Jóhanns- son, ungur Bolvikingur frá Höfða í Jökulfjörðum, hafði verið í siglingum á fraktskipum og siglt víða unt heimshöfin. Einhverju sinni þegar Steinar var í fríi hjá foreldrum sínum í Víkinni hitti hann Jónsa Ella og þeir tóku tal saman. Jónsi Elli spurði Steinar hvort hann hefði siglt til Ameríku. Jú, Steini hafði siglt á Ameríku. Þá spurði Jónsi Elli: Hittirðu nokkuð hann Stebba Kitt þegar þú komst til Amer- íku, elska? Nei, Steini hafði ekki hitt Stebba Kitt. Þá sagði Jónsi Elli: Nei, elska, hann hefur ekki nennt oneftir. Tilhleypingar Kristján heitinn Sigurðsson (Kitti Sali), sjómaður í Bolungar- vík, var sómamaður og hörkukarl. Oft var erfitt hjá honum að sjá fyrir stórum barnahópi. Kitti hélt því til búdrýginda tíu eða fimmtán ær í fjárhúskofa í Víkinni. Kitti Sali var mikill kvennamaður, að eigin sögn, og hafði þá raun um fengitímann, að þegar hrúturinn var búinn að embætta þrjár eða fjórar kindur, þá þurfti hann að skreppa heim til hvílubragða. Birgir Bjarnason, bóndi í Miðdal, átti á sama tíma nokkur hundruð ær. Eitt sinn þegar Kitti Sali skrapp heim úr fjárhúsinu um fengi- tímann varð honum á orði: Ekki skil ég hvernig hann Birgir fer að. Hitaveitur • Pústkerfi • Vatnslagnir Olíulagnir • Frystikerfi • Loftlagnir Viðgerðir og smíði á þenslumúffum Ry ð fríi r stálbarkar Barkasuða Gudmundar ehf. rvör 27 • 200 Kópavogur 3338 • Fax: 554 4220 896 4964 • 898 2773 Kt. 621297 2529 60 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.