Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Síða 70

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Síða 70
Þeir fiska sem róa Láki SH-55 Út er komin bókin Þeir fiska sem róa, sem fjallar um smábátaútgerð á íslandi. Með útgáfu þessarar bókar er ætlunin að varpa ljósi á þátt útgerðar á minni bátum í framfarasögu þjóðarinnar ásamt því gefa lesandanum kost á að kynnast lífi og starfi trillukarla vítt og breitt um landið. Fyrri hlutinn fjallar um fyrirtæki og stofnanir sem tengjast smábátaútgerð á einhvern hátt. Sagt er frá umgjörðinni og tækninni sem tengist útgerð bátanna. Par er einnig rakin saga smábátaútgerðar frá upphafi til dagsins í dag. í síðari hluta bókarinnar er fjallað um trillukarlana sjálfa og bátana sem þeir gera út. Þeir segja sögur af sjónum, sögur um góðan afla, hjátrú, baráttuna við náttúruöflin og duttlunga stjórnmála- manna. Þeir segja einnig álit sitt á kvóta- kerfinu sem að margra mati hefur vegið að rétti þeirra til að draga fisk úr sjó og haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir þá, fjölskyldur þeirra og afkomu fólks um allt land. Sagt er frá rúmlega fjörtíu höfnum hringinn í kringum landið og fjöldi út- gerðarmanna sem fjallað er um í máli og myndum skipta hundruðum. Bókin er 525 blaðsíður að stærð i A4 broti og prýdd fjölda litmynda af bátum, útgerðarmönnum þeirra og af þeim höfn- um sem þeir gera út frá. Þetta er eiguleg bók fyrir þá sem fylgjast með útgerð ís- landi og fullyrða má að hún gefi lesand- anum gleggri mynd af lífi trillukarla á ís- landi í dag. Bókin fæst hjá útgefendum í Mörkinni 3, sími 533-1401 og í bóka- verslunum Máls og menningar. Með mynd af lúðu á náttborðinu Feðgarnir Ólafur Gíslason, Gísli, Krist- inn og Skarphéðinn Ólafssynir eiga út- gerðarfyrirtækið Láki ehf. í Grundarfirði. Gísli segir að fyrirtækið hafi verið stofn- að 1997 utan um útgerð sem hann og faðir hans voru búnir að reka í tíu ár. „Við keyptum fyrsta bátinn 1986, hann hét Láki þegar við fengum hann og við héldum nafninu. Hann var 2,7 tonn og við rérum tvö sumur á honum á grá- sleppu og svolítið á handfæri seinni hluta sumars. í lok árs 1988 kaupum við annan bát sem fékk líka nafnið Láki, hann var tæplega helm-ingi stærri, 5,9 tonn, og þá fórum við að róa á handfæri og línu með grásleppunni. Við keyptum svo þriðja bátinn sem fékk nafnið Birta 1995 og Kristinn bróðir kom inn í fyrir- tæk-ið. Sá bátur er eingöngu á handfær- um og línu.” Þegar hér er komið sögu eiga feðgarnir tvo báta og stofna útgerðarfyrirtækið Láki ehf. um rekstur þeirra. Árið 1998 byggja þeir hundrað og áttatíu fermetra hús og hefja saltfisk-verkun. „Ári seinna stækkuðum við húsið í þrjú hundruð og sextíu fermetra og í dag erum við að taka um átta hundruð tonn til verkunar á ári.” Til að byrja með réru feðgarnir eftir dagakerfi og voru næsthæstir yfir landið þrjú ár í röð. „Á tímabili máttum við róa í fjörutíu daga og þegar mest var vorum við að fá 3,3 tonn að meðaltali á dag. Árið 1999, þegar óvissan kom upp og til stóð að setja alla á kvóta, ákváðum við að velja viðmið- unina og sameinuðum kvótann yfir á Birtu en gerðum Láka út á grásleppu.” Að sögn Gísla selja þeir allan afla á Fisk-markað Breiðafjarðar og kaupa einnig hráefni til saltfiskverk-unar af markaði sem þeir selja fullunninn til Portúgals og Spánar. „Við seldum Láka árið 2000 og keyptum 9,9 tonna bát sem fékk sama nafn og er gerður út á grásleppu og þorskanet samkvæmt aflamarki og um sama leyti gekk Skarphéðinn bróðir inn í fyrirtækið.” Þegar Gísli er beðinn um að rifja upp minnis- stætt atvik af sjónum hugsar hann sig um svolitla stund og segir svo: „Tengdafaðir minn, sem er frá Suður-Afríku, var hér einu sinni í heim- sókn og kom með okkur í róður. Hann hafði aldrei farið á sjó áður og framan af var þetta einhver sá daprasti róður sem ég man eftir. Við vorum búnir að þeytast um allan Breiðafjörð, frá Odd- bjarnarskeri, norður á Fláka og Látra- bjarg og inn undir Skor en hvergi var fiskur. Þegar líða tók á daginn fannst mér við vera búnir að keyra nóg og ég ákvað að leggja mig en þeir ætluðu að skaka svolítið á Blett-unum áður en við færum heim. Eftir tæpan hálf- tíma vekja þeir mig og segja allt fast í botni eða eitthvað stórt á. Ég fór út og sá að það var ekki fast, færið var á u.þ.b. níutíu faðma dýpi og gekk hægt upp. Tengdapabbi var svo spenntur að hann hopp- aði hreinlega um dekkið og tíndi til alla gogga og krökur. Aflinn reyndist vera um hundrað kílóa lúða sem við náðum inn eftir mikið bras og karl- inn var svo montinn með veiðina að við tókum mynd af honum með lúð- una. Hann gengur með eina í veskinu og er með aðra á náttborðinu suður í Afríku.” Gísli segir að framtíðin í smábátaút- gerð sé björt svo lengi sem Alþingi sé ekki að hræra of mikið í greininni. „Það væri mjög gott ef þingmenn gætu einu sinni sett lög sem standa til framtíðar og við fengjum að njóta öryggis og að vera í ná-lægð við fiskimiðin. Mér finnst það réttur hvers íslendings að fá að veiða sér í soðið og að handfæraveiðar ættu því að vera utan við kvóta.” 70 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.