Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Page 6
Árni Bjarnason forseti FFSÍ
Hval líður
sameiningarmálum
Eins og eðlilegt verður að teljast þá
berast annað slagið fyrirspurnir frá
mönnum varðandi títtnefnt sameiningar-
ferli, ferli sem reyndar á sér ansi langa
sögu.
Pví er til að svara, að vinna við fyrir-
hugaða sameiningu er í þeim farvegi sem
til stóð og stefnan sett á, að þau þrjú fé-
lög sem aðild eiga að málinu hafi lokið
því sem ljúka þarf fyrir áramót og muni
frá og með þeim tíma vinna að hagsmun-
um skipstjórnarmanna sem eitt félag sem
hefði innan sinna vébanda yfir 1.000 fé-
lagsmenn. Drög að lögum hins nýja fé-
lags eru nánast tilbúin auk þess sem á-
ætlanir um starfsemi og verkaskiptingu
eru vel á veg komnar. Ákveðið er að fé-
lögin sendi til sinna félagsmanna kjör-
seðla þann 2. maí og atkvæðagreiðslu
Ijúki þann 11. júlí.
Þar munu félagsmenn hvers félags fyrir
sig kveða upp úr með hvort af samein-
ingu verður eður ei. Verði af sameiningu
mun öllum aðildarfélögum FFSÍ sem
þess óska vera boðin aðild að hinu nýja
félagi. Komi fram ósk um aðild innan 12
mánaða frá stofnun mun það félag sem
um ræðir teljast til stofnfélaga hins nýja
félags.
Öllum sem eitthvað fylgjast með á
Árni Bjamason.
annað borð er ljóst viðhorf undirritaðs til
þessa máls. Mér og fleirum finnst það al-
gjör tímaskekkja, í því starfsumhverfi
sem nú á tímum er boðið upp á, að þeir
rúmlega 1.600 skipstjórnarmenn, sem
eru heildarfjöldi stéttarinnar, skuli vera
tvístraðir í tiu smáfélög með 10 mismun-
andi lög, 10 útfærslur á félagsgjöldum.
10 mismunandi reglur um sjúkra- og
styrktarsjóð svo eitthvað sé nefnt. Auk
þess sem það getur vart talist vænlegt til
árangurs að sérhvert aðildarfélag innan
FFSÍ, sem ekki er fjölmennara en raun
ber vitni, hafi í hendi sér hvort heildar-
samtökunum sé veitt samningsumboð
þegar kjaradeilur eru í gangi. I því návígi
sem til staðar er hérlendis milli sjó-
manna og útgerða kann þetta ekki góðri
lukku að stýra, enda hafa viðsemjendur
okkar nýtt sér það og valdið með þvi
sundrungu og upplausn í liði sem svo
sannarlega veitir ekki af allri þeirri sam-
stöðu sem mögulegt er að virkja þegar í
harðbakkann slær. Með sameinuðu félagi
vaxa stórlega að mínu mati möguleikar
manna til bættrar þjónustu og aukinna
félagslegra réttinda. Ég geri mér grein
fyrir að til eru menn innan okkar raða
sem finnst ekki ástæða til breytinga af
þessu tagi. Rök þeirra hef ég aldrei skilið,
en virði engu að siður þeirra skoðanir og
hvet alla félagsmenn í félögunum þremur
til að greiða atkvæði í þessu afdrifaríka
máli.
Málfundir um
öryggismál sjómanna
Málfundir um öryggismál sjómanna verða haldnir víða
um land á árinu. Sjómenn, útgerðarmenn og aðrir sem
láta sig öryggi sjómanna varða eru hvattir til að mæta og
koma sjónarmiðum sínum að. Boðað var til fyrsta fund-
arins í Grindavík 31. mars, en næstu fundir eru áætlaðir
á Snæfellsnesi í april, á ísafirði í maí, á Akureyri, Eski-
firði og Vestmannaeyjum í haust.
Fundirnir eru haldnir í tengslum við langtímaáætlun í
öryggismálum sjófarenda og að þeim standa: Samgöngu-
ráðuneyti, Siglingastofnun, Slysavarnarfélagið Lands-
björg, Landhelgisgæslan, Landssamband smábátaeig-
enda, Sjómannasambandið, Farmanna- og fiskimanna-
sambandið, Vélstjórafélag íslands og Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna.
6 - Sjómannablaðið Víkingur