Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Page 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Page 34
Smásaga eftir Hafliða Magnússon Stúlkan Veitingahúsið Vitinn í Bremerhaven var vinsæll staður. Hann var nokkuð langt uppi í bænum, í talsverðri fjarlægð frá hafnarhverfinu. Par spilaði hljómsveit stundum amerísk dægurlög á kvöldin og fallegar stúlkur sveimuðu þar um salinn. Halli bátsmaður sat þar einn við borð kvöld nokkurt um miðjan vetur. Kalt var úti þó logn væri, biturt frost, sem beit í kroppinn og einhvernvegin virtist það loftslag vera mun svalara þar ytra en í heimalandinu við sömu skilyrði. Hann pantaði sér svo nefnt Grogg, sem var romm í heitu vatni. Pað var kennt við Grogg stýrimann, sem hafði verið á her- skipi og þar kenndi hann skipsmönnum að safna saman daglegum rommskammti þeirra út vikuna og að drýgja hann svo með heitu vatni. Þá komust þeir á gott kenderí um helgar í stað áhrifalítils sopa á degi hverjum. íslendingar höfðu farið að velja sér þennan drykk öðrum fremur á Vitanum um tíma í hvaða árstíð sem var og orsökuðu við það bros þjóna, sem fræddu þá um , að drykk þenna notuðu heimamenn aðeins i bitrum kuldum til að örva blóðrásina. Halla fannst þá rétti tíminn á þessu kalda vetrarkvöldi að dreypa á svo ágætum hitagjafa og reyna að ná í sig varma innan frá eftir að hafa þrammað nokkurn spöl til veitingahúss- ins í frostinu. Hann naut þess að sitja þarna í friði, bragða öðru hvoru á romm- inu og hlusta á hljómsveitina spila gömlu, amerísku lögin, sem hvert um sig vöktu hjá honum ýmsar minningar frá liðnum atburðum úr heimalandinu. Þýsku lögin voru heldur strembrari og sum í hálfgerðum stríðsmarsastíl þó oft færi best á því að hlýða á tónlist þeirrar þjóðar, sem maður var staddur hjá hverju sinni. Hann fór stundum einn síns liðs upp í borgina til að forðast óróa- sama skipsfélaga, sem stundum orsök- uðu vandræði með ruddalegri framkomu sinni. Einkum var þó óæskilegt að lenda í félagsskap lítt kunnugra manna ef oft skiftist um menn í áhöfninni. Hann þekkti þá lítið til hegðanar þeirra er á barina var komið og sumir gátu þá orðið til stórra leiðinda. Stundum höfðu komið fyrir vandræðaleg atvik þegar einhverjir þeirra virtust ekki kunna fótuin sínum forráð eftir að hafa innbirt fáein glös. Þá var mönnum jafnvel vísað út af veitinga- húsunum og leiðindin bitnuðu jafnt á hinum, sem kunnu þó að haga sér skikk- anlega. á vatnsfötunni Hann hafði setið þarna dágóða stund þegar hann sá hvar stúlka stóð upp frá barnum og stefndi í áttina að borði hans. Hún var há, ljóshærð og hin glæsilegasta í útliti. ,,Má ég sitja hjá þér?“ spurði hún og settist að vísu um leið við hlið hans. Hann kinkaði kolli. Þó hann hafði ekki endilega æskt þessa félagsskapar var þó alltaf notaleg tilfinning að hafa fallega stúlku að sessunaut á veitingahúsi þar sem leikin var ljúf tónlist og gott vín var á borðum. „Býðurðu mér upp á drykk?“ spurði hún brosandi. Halli gaf þjóninum merki og hann taldi sig svo sem vita fyrir fram hvað hún myndi panta. Þær báðu vanalega um Piccolo, sem var hálf kampavínsflaska og í dýrari kantinum. Sú spá rættist fyrr en varði. Hún dreypti á glasinu og virti hann fyrir sér. Svo lagði hún handlegg sinn utan um hann og sagði mjúkri röddu: „Komdu með mér heim!“ Halli hafði ekkert verið á þeim buxun- um að fara að flækja sig i kvennamál að sinni. Hann virti þó stúlkuna betur fyrir sér og innan skamms fóru um hann heit- ir straumar. Hann smellti kossi á kinn hennar og fann hve mjúk hún var og ilmandi. Þau luku úr glösum sínum og fóru út fyrir og tóku einn af leigubílun- um, sem biðu fyrir utan. Það var alllöng keyrsla til vistarveru stúlkunnar. Þau stigu út úr bílnum í brunakuldann, sem beit í andlitið úti fyrir. Hún stakk lykli í skrána og opnaði dyrnar. Þar reyndist vera gengið beint inn úr veggnum í her- bergið án gangs eða forstofu. Kolaofn stóð þar í horni vel kyntur og voru við- brygði að koma beint úr frostinu inn í funa hita vistarverunnar. Herbergið var fremur lítið. Rúm var þar upp búið, borð og tveir stólar og fataskápur. Lítil eldavél stóð á gólfi við hliðina á ofninum. „Þú mátt fara í rúmið.“ Sagði stúlkan og byrjaði að tína af sér spjarirnar. Halli lét ekki standa á sér að gera slíkt hið sama og smeygði sér svo ber undir sæng- ina. Stúlkan var dágóða stund að afklæða sig og virtist njóta þess að fara sér hægt og að hafa áhorfanda. Svo brá hún sér einnig í bólið og tilkynnti um leið og hún dró sængina upp að höku: „Það má ekkert koma nálægt mér í nótt. Ég fer til læknis í fyrramálið til að láta fylgjast með, að ég sé hrein og heil- brigð og ég vil ekkert láta snerta við mér fram að því.“ Það var komið fram á varir Halla, að þetta þætti honum þunnur þrettándi, en hann hugsaði með sér, að allt að einu væri þó notalegra að blunda hér við hlið fallegrar stúlku en að vefja að sér í með- allagi hrein sængurföt í þröngri koju um borð í skipinu. Þó gat hann ekki orða bundist og sagði: „Ég hélt að þú hefðir ætlað mér betri viðtökur fyrst þú fórst að bjóða mér heim með þér.“ „Það bíður allt betri tíma,“ sagði stúlk- an. „Ég verð betri við þig þegar ég kem frá lækninum í fyrramálið.“ Hún seildist undir kodda sinn og dró þaðan nokkur umslög, velkt nokkuð og greinilega mikið handfjötluð. Hún tók sendibréf úr einu þeirra og hóf lestur. Öðru hvoru kyssti hún bréfið og renndi þá storkandi augnaráði til legunautarins við hlið sér. Þetta virtust greinilega vera ástarbréf frá fjarlægum elskhuga og Halli hafði á tilfinningunni, að nú vildi hún gera tilraun til að gera sig afbrýðisaman, enda stóð hann sig að því að geðjast eng- an vegin að þessu tiltæki. Hún lauk lestr- inurn á fyrsta bréfi, stakk því í umslagið, dró fram annað og kyssti það enn á- fergjulegar en hið fyrra. Hún sparaði heldur ekki augnaráðið til hins dapra elskhuga við hlið sér. Honum fannst hann hlyti að vera ósköp aumur og lítil- fjörlegur í augum stúlkunnar í saman- burði við hinn ástheita bréfritara. Hann saknaði Móniku allt í einu, rúm- lega tvítugrar stúlku, dökkhærðrar og fallegrar, sem hann hafði eitt sinn kynnst á Vitanum. Hann var þrem árum eldri en hún. í fyrsta skifti sem hann sá hana var hún klædd hvítum kjól með bláum rós- um sem hann vissi fegurstan klæðnað stúlkna og hann minntist þess hve vel hann féll að vel vöxnum líkama hennar. Hún bauð honum heim í litla íbúð sína og innan skamms hafði hún brugðið sér afsíðis, kom svo nakin fram og þannig gekk hún um íbúðina eftir það. Hún var svo blíð og góð og hann varð svolítið ást- fanginn af henni. Hann hitti hana nokkrum sinnum, en einn góðan veður- dag var hún horfin, hann vissi ekki hvert. Að lokum hafði stúlkan fengið nægju sína af upprifjunum úr ástarbréfum sín- um. Hún slökkti ljósið og var ofnuð inn- an skamms. Halli íhugaði þessa niður- 34 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.