Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Blaðsíða 10
Hafrannsóknastofnunin
Stofnmæling botnfiska á
íslandsmiðum 2003 - togararall
Stofnmæling botnfiska á íslandsmiðum
(togararall) fór fram í 19. sinn dagana
3.-22. mars s.l. Fimm togarar voru leigð-
ir til verkefnisins: Páll Pálsson ÍS 102,
Ljósafell SU 70, Brettingur NS 50, Bjart-
ur NK 121 og Breki VE 61. Breki tók
stöðvar á norðvestur svæði til saman-
burðar við Pál Pálsson.
Aldursgreiningu fiska og úrvinnslu
gagna er ekki lokið en hér á eftir verður
stutt samantekt á þeim niðurstöðum sem
liggja fyrir.
Hitastig
Hitastig sjávar allt í kringum land var
hærra en verið hefur frá upphafi rallsins.
Þorskur
Nokkuð meira aflaðist af þorski en
árið 2002 og hækkaði heildarvísitala
þorsks um 9% frá fyrra ári. Mest fékkst
af þorski djúpt út af Suðausturlandi og
Vestfjörðum og einnig fékkst nokkurt
magn djúpl út af Norðausturlandi.
Lengdardreifing þorsksins staðfestir að
árgangur 2001 sé mjög lélegur en ár-
gangur 2002 virðist vera meðalárgangur.
Holdafar þorsksins var svipað og í fyrra
og eins og þá var það frernur slakt á stór-
um svæðum út af Norðurlandi. Loðnu-
magn í þorskmögum var það minnsta frá
1990 en þá var loðnustofninn í lægð.
Ýsa
Stofnvísitala ýsu jókst um 70% frá ár-
inu 2002 en þá var hún sú hæsta frá
upphafi stofnmælingarinnar. Pessi aukn-
ing skýrist af 3 sterkum árgöngum, frá
árunum 1998 - 2000. Talsverð breyting
varð á útbreiðslu frá fyrra ári. Ýsumagn
minnkaði fyrir norðan land en jókst ann-
ars staðar, einkum við suður og vestur-
land. Lengdardreifing ýsu bendir til að
árgangur 2002 sé sterkur en árgangur
2001 aftur á móti lélegur.
Gullkarfi
Stofnvísitala gullkarfa hækkaði um
50% frá árinu 2002 og var ein sú hæsta
frá upphafi rallsins. Stofnvísitala gull-
karfa var í lágmarki árin 1992-1995 en
hefur hækkað verulega síðan. Vísitöl-
urnar eru töluvert breylilegar frá ári til
árs þar sem tiltölulega mikið af karfaafl-
anum kemur á fáum stöðvum. Engar vís-
bendingar eru nú um sterka nýliðun í
gullkarfastofninn og var 1990 árgangur
sá síðasti sterki.
Að lokum
Niðurstaða stofnmælingarinnar sem
hér er kynnt til bráðabirgða, er einn þátt-
ur árlegrar úttektar Hafrannsóknastofn-
unarinnar á ástandi nytjastofna við land-
ið. Það sem einkennir þessa stofnmæl-
ingu er hátt hitastig sjávar, verulegur
samdráttur í útbreiðslu loðnu sem er
langmikilvægasta fæða botnfiska á þess-
um árstíma og góður ýsu og karfaafli.
Þessa dagana stendur yfir frekari úr-
vinnsla gagna svo sem aldursgreining
helstu tegunda. Lokaúttekt á niðurstöð-
um og tillögur Hafrannsóknastofnunar-
innar um aflamark fyrir næsta fiskveiðiár
verða kynntar í byrjun júní n.k.
Mynd 1. Heildarvísitala þorsks 1985-2003
Mynd 2. Lengdardreifing þorsks í stofnmœlingu botnfiska árin 2001 - 2003.
10 - Sjómannablaðið Víkingur