Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Blaðsíða 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Blaðsíða 45
Gert er ráð fyrir að nemendur í grunn- námi hafi lokið framhaldskólaprófi, en einnig er tekið tillit til almennrar reynslu og aldurs umsækjenda. Reynslan hefur sýnt að þroskaðir nemendur sem koma í skólann hafa staðið sig mjög vel þrátt fyrir að þeir hafi ekki mikla skólagöngu að baki. Nám á háskólastigi Hólaskóli býður einnig nám á háskóla- stigi í fiskeldi. Sem stendur er um eins árs nám að ræða sem lýkur með diplómaprófi. I’etta nám er ætlað útskrif- uðum fiskeldisfræðingum frá Hólum og þeim sem lokið hafa eða eru í háskóla- námi í öðrum greinum. Námið er ætlað þeim sem vilja stunda framhaldsnám á háskólastigi í fiskeldi, en fjöldi fram- haldsnema hefur stundað nám sitt við Hólaskóla á undanförnum árum. Nem- endur tengjast í náminu fjölbreyttu rann- sóknastarfi fiskeldisdeildar Hólaskóla. Ráðgert er að auka við þetta nám og bjóða þriggja ára BS nám í fiskeldi við Hólaskóla innan skamms. Nemendur á fiskeldisbraut eru á ýms- um aldri. I’eir yngstu eru um tvítugt, en þeir elstu á sextugsaldri. í skólanum gefst gott tækifæri fyrir þá sem vilja hefja skólagöngu á ný og afla sér menntunar. Hólaskóli. Kennt er í litlum hópum, gott tækifæri gefst til þess að sinna hverjum nemanda og tekið er tillit til þess að nemendur hafa mismunandi bakgrunn. Aðstaða fyrir nemendur Hólaskóla er góð. Nemendagarðar eru á Hólum bæði fyrir einstaklinga og fjölskyldur og það eru leikskóli og grunnskóli á staðnum. Einnig geta nemendur fundið sér hús- næði á Sauðárkróki. I C E L A N H IC U M BÚÐIR Pöntunarsími: 560-7881 Fax: 581-4215 Netfang: packaging@icelandic.is Sjómannablaðið Víkingur - 45

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.