Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Qupperneq 16
Gestur Gunnarsson skrifar
SAGAN ENDALAUSA
Fyrir nokkrum áratugum átti sá er
þetta ritar eitthvert erindi við Pál S. Páls-
son hæstaréttarlögmann. Páll var um
þessar mundir að verja bændur fyrir á-
sælni íslenska ríkisins, en fulltrúar þess
vildu ná undir ríkið einhverjum afréttar-
löndum. Það sem Páll hafði sínum skjól-
stæðingum til málsbóta var það, að þeir
og þeirra forfeður hefðu nytjað þetta
land til beitar og með þvi haft sitt lifi-
brauð af landinu. Pessi afnot mynduðu
því eignarrétt. Pví ekki er hægt að svifta
fólk framfærslu, samkvæmt þeim skráðu
og óskráðu reglum sem gilda hér á landi.
Ein af greinum stjórnaskrárinnar fjallar
um eignarréttinn, þar segir að eignarrétt-
ur sé friðhelgur nema almannaheill liggi
við. Önnur grein stórnarskrárinnar fjallar
um atvinnufrelsi, inntakið er þar að eng-
ar hömlur megi leggja á atvinnufrelsi.
Nú svo er öllum skylt að sjá fyrir sér
Úfbúum
lyfjakisfur
fyrir skip og báfa
Eigum ávallt tilbúna sjúkrakassa
fyrir vinnustaði, bifreiðarog heimili.
Lyf & heilsa
• Kringlan 1. hæð, sími: 568 9970
• Hafnarstræti Akureyri, sími: 460 3452
VLyf&heilsa
_____ APÖTEK
B E T R I LÍÐAN
Gestur Gunnarsson.
og sínum. Lengi hafa verið í gangi hug-
myndir um það, að ef mennirnir minnk-
uðu fiskveiðar þá myndu veiðar aukast
seinna. Svona hugmyndir hafa fætt af sér
ýmiskonar fiskveiðistjórnunarkerfi sem
engum árangri hafa skilað hvað varðar
aukna veiði. Einasti árangurinn er sá að
svo kallaðar fiskveiðiheimildir hafa safn-
ast á hendur fárra stórra fyrirtækja. Há-
marksyfirráð eins aðila eru samkvæmt
núgildandi lögurn 12% af heildarkvóta
og eru farnar að heyrast raddir sem
finnst það of lítið.
Nýlega fréttist af því að mógúlar í mat-
vöruverslun hafi ætlað að múta Davíð
forsætisráðherra gegn því að hann léti þá
í friði. Nú er það mismunandi hvað bítur
á menn, 300 milljónir freistuðu ekki for-
sætisráðherrans, en hann varð hugsi og
gat ekki sofnað. Nú er fjármögnun
stjórnmálabaráttu á íslandi nánast öll
undir borðinu og á margra vitorði að öfl-
ug fyrirtæki kosta stjórnmálabaráttu og
gera með því stjórnmálamennina skuld-
bundna sér. Nútíma stjórnmálabarátta
virðist ganga út á það að endurtaka sömu
vitleysuna það oft að fólk fari að trúa
sömu vitleysu. Petta svokallaða lýðræði
virðist því vera að breytast í einhvers-
konar „fjárræði" þar sem atkvæðum er
náð með þindarlausum áróðri. Svo þegar
menn hafa náð kosningu er farið að
möndla við einhverja löggjöf sem er
kostendum þóknanleg. Nú eru það ekki
mútur heldur stuðningur við heilbrigða
stjórnmálastarfsemi og allir sofa vært.
Pað liggur fyrir að sjómennska er
einhver hættulegasta atvinnugrein sem
til er, menn verða öryrkjar tiltölulega
ungir, eru þá settir í land og draga fram
lífið á örorkubótum og margir hreinlega
veslast upp. Nú eru þessir menn í fullum
rétti að stunda þá atvinnugrein er þeir
hafa valið sér að ævistarfi. Óljósar hug-
myndir svo kallaðra fiskifræðinga um
það hvernig hugsanlega sé heppilegast að
nýta fiskistofna geta ekki ógilt atvinnu-
frelsiákvæði stjórnarskrárinnar. Hér á
landi hefir það nefnilega tíðkast að sjó-
menn komnir á efri ár hafi séð fyrir sér
og sínum með trilluútvegi. Petta er bara
eitt af ótalmörgu sem gleymdist þegar á-
kveðið var að stjórna lífinu í sjónum
með lagaboði. Þegar menn fara að stunda
einhverja atvinnugrein myndast hjá þeim
eign sem er þekking og færni í viðkom-
andi grein og þessi eign verður ekki tek-
in bótalaust.
KEMHYDRO - salan
Snorrabraut 87 • 105 Reykjavík
Sími: 551 2521 • Fax: 551 2075
Tæringarvarnarefni
fyrir gufukatla
16 - Sjómannablaðið Víkingur