Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Side 21
Ögmundur Jónasson alþingismaður og formaður þingflokks
Vinstrihreyfingarinnar - grcens framboðs
1.
Allar stéttir hljóta að horfa á stefnu
stjórnmálaflokkanna heildstætt og máta
hana við lífsviðhorf sín almennt. Við
mótun stefnu flokksins var sérstaklega
horft til hagsmuna sjómanna en þeir eru
nátengdir hagsmunum einstakra byggð-
arlaga og hagsmunum atvinnulífsins í
heild sinni. Við teljum að kvótakerfið
eins og við þekkjum það hafi verið skað-
valdur i íslensku atvinnulífi og gengið
þvert á þá byggðastefnu sem við höfum
viljað stuðla að í landinu. Tilvera heilla
byggðarlaga hefur verið háð duttlungum
kvótahafa og þegar þeir hafa framselt
kvótann úr byggðarlaginu hefur stoðun-
um verið kippt undan öllu atvinnulífi
viðkomandi staða. Kvótakerfið hefur haft
ýmsar aðrar slæmar afleiðingar og stríðir
gegn hagsmunum sjómanna.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð hef-
ur lagt fram skýra stefnu um afnám
kvótakerfisins og jafnframt tillögur um
nýtt fyrirkomulag um sljórn fiskveiða.
Stefna flokksins byggir á fyrningu veiði-
heimilda á tuttugu árum. Veiðiheimild-
irnar verði fyrndar út úr kvótakerfinu og
þeim endurráðstafað þannig að þriðjund-
Ur þeirra verði byggðatengdur, þriðjung-
ur boðinn til leigu og þriðjungur boðinn
núverandi handhöfum til afnota með
leigusamningum. Núverandi kerfi hefur
leitt til þess að jafnt og þétt hafa afla-
heimildir safnast á stöðugt færri hendur.
Stefna VG byggir á því, að hægt sé að
skila nýtingarréttinum til þeirra byggða
sem hafa verið sviptar grundvelli at-
vinnulífs síns vegna kvótasölu. Stefna
gefur aukna möguleika fyrir sjómenn
að koma inn í greinina, þar sent framsal
veiðiheimilda verður ekki leyfilegt.
Fiskveiðistefna VG stuðlar einnig að
hættri umgengni um auðlindir hafsins,
sem til lengri tíma styrkir grundvöll fisk-
veiða með markvissri uppbyggingu fiski-
stofnanna. Pess vegna höfum við lagt lil
hreytingar á reglum um meðafla og lönd-
un á smáfiski til að stemma stigu við
hrottkasti. Einnig teljum við mikilvægt
að taka upp nýtingarstuðla sem hvetja til
Hotkunar vistvænna veiðarfæra. Þannig
Ögmundur Jónasson.
leggur Vinstrihreyfingin - grænt framboð
til að fyrir 1 tonn sem tekið er á hand-
færi dragist aðeins 0,8 t frá aflaheimild-
um, fyrir hvert tonn á línu dragist 0,85 t
frá og fyrir hvert tonn sem tekið er í
önnur kyrrstæð veiðarfæri reiknist 0,95 t
af veiðiheimildunum nýtt. Afli sem tek-
inn er í dregin veiðarfæri dragist hins
vegar að fullu frá aflamarki viðkomandi
skips.
2.
Stefna Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs gerir ráð fyrir því að framsal á
óveiddum fiski sé ekki heimilað. Ónýtt-
um aflaheimildum verði skilað inn, og
þær verði til ráðstöfunar fyrir aðra. Þing-
flokkur VG hefur flutt frumvarp um
þetta á Alþingi. VG vill gæta hófs í álög-
um á sjávarútveginn. Þegar því hins veg-
ar er haldið fram að útgerðin þoli ekki
neins konar álögur þá vill það gleymast
að hluti útgerðarfyrirtækja, einkum hin
smáu, búa þegar við mikla gjaldtöku.
Hér er vísað í gjald fyrir leigu eða kaup á
kvóta. Það eru ekki raunverulegir eig-
endur auðlindarinnar, það er að segja
sjálf þjóðin, sem nýtur góðs af sölu eða
leigu á veiðiheimildum heldur tíma-
bundnir handhafar réttindanna. Þessir
aðilar háfa inn gróðann sem þeir iðulega
flytja út úr greininni og færa jafnvel út
fyrir landsteinana. Þessir aðilar eru í
reynd að ráðstafa eignum sem ekki eru
þeirra þótt þeir hafi af þeim ómældan
hagnað.
3.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
leggur áherslu á að skilið verði á milli
veiða og vinnslu, þannig að verð afurðar-
innar verði í samræmi við stöðuna á
markaði. Nú þegar veiðar og vinnsla
hafa safnast á æ færri hendur, þá er
nauðsynlegt að verðmyndun á fiskinum
sé gagnsæ og er það því afar mikilvægt
fyrir hagsmuni sjómanna, að skilið verið
á milli veiða og vinnslu.
4.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð telur
afar mikilvægt að kaupskipafloti landsins
sé á hendi íslendinga og mannaður ís-
lenskum farmönnum og að þar gildi ís-
lenskir kjarasamningar. Flokkurinn er
tilbúinn að leita allra leiða til þess að
stuðla að því að flotanum veriði flaggað
heim eins og það er orðað. Bæði þarf að
beita skipafélögin þrýstingi og fortölum
og hafa þingmenn flokksins tekið undir
kröfur sjómannasamtakanna hvað þetta
snertir.
Einnig þarf að huga að því af raunsæi
hvað þurfi að gera til þess að skipafélög-
in sjái sér hag í því að sigla kaupskipa-
flotanum undir íslensku flaggi. Að sjálf-
sögðu eiga þau að sjá sóma sinn í því
skjóta sér ekki undan siðferðilegum
skyldum sinum við íslenska sjómenn
hvað þetta snertir. Það hefur verið dapur-
legt að fylgjast með tilraunum íslenskra
skipafélaga til að sniðganga íslenska
kjarasamninga en þeim mun aðdáunar-
verðari hefur verið þrotlaus barátta sjó-
rnanna til að standa vörð um eigin kjör
og réttindi og svara kalli Alþjóðaflutn-
ingaverkamannasambandsins og annarra
fjölþjóðlegra verkalýðssamtaka sem hald-
ið hafa á lofti baráttufána sjómannna um
heim allan.
Nýlegt frumvarp rikisstjórnarinnar um
útflöggun var samið í anda atvinnurek-
enda og gengur þvert á kröfur sjómanna.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð reynir
ekki að gera öllum til geðs í þessari deilu
heldur tekur afdráttarlausa afstöðu með
íslenskum sjómönnum og samtökum
þeirra og heitir því að vinna að lagasetn-
ingu sem yrði til þess fallin að treysta
réttindi sjómanna í sessi.
Sjómannablaðið Víkingur - 21