Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2003, Page 35
lægjandi stöðu sína, er honum fannst svo
vera, en fljótlega sofnaði hann svo út frá
þeim hugsunum sínum.
Hann vaknaði við það, að stúlkan
brölti fram úr rúminu. Hún hafði ekki
fyrir því að tína á sig spjarirnar, heldur
fór hún nakin að ofninum og lagði í
hann bréfarusl og smáspýtur til upp-
kveikju. Hún fyllti málmvarða fötu af
vatni, lét hana yfir hellu á eldavélinni og
kveikti undir henni. Fljótlega varð nota-
legt i herberginu og gufu lagði brátt upp
af vatninu í fötunni þegar það fór að
hitna. Stúlkan opnaði fataskáp og tók að
velja sér fatnað við hæfi til hinnar fyrir-
huguðu læknisskoðunar. Halli lá rólegur
úndir sænginni og lét sér vel líka að
virða stúlkuna fyrir sér nakta við vafstur
sitt. Heldur sótti á hann þorsti sem rekja
mátti til rommdrykkjunnar kvöldið áður.
Hann iðraðist þess nú stórlega að hafa
ekki keypt sér nokkra bjóra til nestis
áður en haldið var lil dyngju fegurðardís-
arinnar.
Stúlkan kippti fötunni af eldavélinni
og snaraði henni út á á mitt gólf. Hún
náði sér í tusku og ilmsápu og hóf að
þvo sér hátt og lágt upp úr fötunni. Eftir
að hafa snurfusað efri hluta líkamans vel
og vandlega, settist hún á fötuna, rak
hönd sina niður á milli læra og skvetti
með henni upp undir botn sinn. Hún
brosti mildilega til Halla og augnaráðið
var nú allt blíðara en kvöldið áður. Hún
greip svo duluna og þvoði sér vandlega
um miðhlutann. Hún þurrkaði sig vand-
lega, seildist svo í greiðu og renndi henni
nokkrum sinnum gegnum fagurhærðan
brúskinn. Að lokum tók hún ilmvatns-
úðara og dældi úr honum nokkrum
gusum yfir nýgreitt svæðið og þá var hún
loks reiðubúin að halda á vit doktorsins
til skoðunar.
„Ég kaupi fyrir þig bjór,“ sagði hún
um leið og hún smeygði sér í kápuna.
Hún virtist hafa greint þörfina fyrir þann
drykk eftir útliti höfuðsins, sem stóð
dapurlegt upp undan sænginni. „Svo för-
um við að leika okkur þegar ég kem til
baka.“ Bætti hún við. Hún hvarf út úr
dyrunum og hann heyrði að hún snéri
lykli í skránni. Hann fann lil hálfgerðra
ónota að finna sig læstan inni. Hann lá
kyrr um stund í bólinu, en fann hve
þorstinn ágerðist. Honum fannst hann
skyndilega finna til innilokunarkenndar
við að vita af læstum dyrunum, jafn vel
þó hann hefði ekki í hyggju að hreifa sig
frá húsi. Hann hlakkaði til endurkomu
stúlkunnar, en honum fannst biðin verða
æ lengri og hann gerðist óþreyjjufullur
eftir komu hennar. loks spratt hann fram
úr rúminu og dreif sig í fötin. Hann á-
kvað þá að láta stúlkuna lönd og leið og
reyna að koma sér í burtu. Hann greip
um hurðarhúninn aðeins til að fullvissa
sig um að honum væri sú leið bönnuð.
Þá athugaði hann glugann, sem reyndist
vera á lömum og hann var hæfilega stór
til að hægt væri að skríða út um hann.
Hann renndi honum upp á gátt og ískalt
loftið streymdi að honum að utan. Hann
skreið út, lokaði glugganum á eflir sér og
þrammaði út í frostið.
Heimur á heljarþröm...
Heimurinn hlýtur að vera kominn á heljarþröm þegar...
Besti rappari í heimi er hvítur.
Besti golfari í heimi er svartur.
Frakkar saka Bandaríkjamenn um hroka.
Þýskaland vill ekki fara í stríð.
Ekkjan og homminn
Stórbóndinn andaðist skyndilega á besta aldri. Ekkjan, bráð-
'úyndarleg kona á fertugsaldri vildi gjarnan halda búskapnum á-
kam en þekkti lítt til verka. Því brá hún á það ráð að auglýsa
eftir ráðsmanni. Tvær umsóknir bárust. Önnur var frá drykk-
klldum náunga en hin frá ungum homma. Ekkjan velti þessu
fyrir sér og hugsaði sem svo, að sennilega væri hún öruggari um
S1g með hommanum en þeim drykkfellda. Hún réði þvi
hommann til starfa. Hann reyndist í alla staði hinn besti verk-
,T>aður og búreksturinn dafnaði sem aldrei fyrr. Ekkjan var him-
úiilifandi og föstudag einn spurði hún ráðsmanninn hvort hann
v>ldi ekki skreppa til bæjarins um kvöldið og sletta úr klaufun-
Urn. Hann var til í það og hvarf á braut þegar leið á kvöldið.
Ékkjan sat við arininn og beið heimkomu hommans. Klukkan
varð eitt og hún varð tvö, en það var ekki fyrr en klukkan að
Verða fjögur að hann kom heim. Konan kallaði á hann og sagði
Þonum að koma inn lil sín, sem hann gerði.
~ Hnepptu blússunni minni frá, sagði hún.
Hann fálmaði eftir tölunum og hneppti frá.
~ Losaðu svo brjósahaldarann minn.
Skjálfandi fingrum tókst hommanum að losa haldarann.
~ Svo er það niður með pilsið.
Hann opnaði lásinn og renndi pilsinu niður.
~ Siðan er það niður með nærbuxurnar mínar.
Þrátt fyrir fát og fum runnu buxurnar niður á hæla.
- Svo ætla ég bara að láta þig vita það, að ef þú ferð aftur í föt-
unum mínum í bæinn rek ég þig á stundinni, sagði ekkjan á-
kveðin.
Heiðarleiki
Forstjórinn sendi konu sinni svohljóðandi fax:
- Til elskulegrar eiginkonu minnar.
Þú skilur væntanlega að eftir 54 ár í hjónabandi eru ákveðnar
þarfir sem þú getur ekki lengur uppfyllt.
Ég er mjög hamingjusamur með þér og virði þig sem góða
eiginkonu. Þess vegna vona ég að eftir að hafa lesið þetta fax,
munir þú ekki gera mikið úr þeirri staðreynd að ég mun eyða
kvöldinu með 18 ára gömlum ritara mínum á Hóteli Borg. Farðu
ekki í uppnánt út af þessu, góða mín. Ég verð komin heim fyrir
miðnætti.
Þegar maðurinn kom heim fann hann eftirfarandi skilaboð á
borðstofuborðinu:
- Minn kæri eiginmaður.
Ég hef móttekið faxið frá þér og þakka hreinskilnina. Ég vil
nota tækifærið og ntinna þig á að þú ert líka 54 ára.
í leiðinni langar mig að segja þér, að þegar þú lest þetta verð
ég á Hótel Holti með tenniskennaranum mínum honum Mich-
ael, sem er 18 ára eins og ritarinn þinn.
Sem gamalreyndur bissnesmaður og með þína frábæru þekk-
ingu í stærðfræði muntu sjá að við erum í samskonar málum -
þó með einum smá mun:
18 gengur oftar upp i 54 heldur en 54 upp í 18.... og þvi verð
ég ekki komin heim fyrr en um hádegi á rnorgun!
Koss og knús frá eiginkonunni sem virkilega skilur þig.
Sjómannablaðið Víkingur - 35