Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Page 40
Ishúsið sækir fram,
líka á leigumarkaði
Ishúsið ehf. var stofnað upp
úr innflutningsdeild Kælivéla
ehf, en Kælivélar höfðu verið
með innflutning í áratug á und-
an. Innflutningurinn var orðinn
það mikill, og auk þess voru for-
sendur til að auka vöruúrvalið,
og því orðið tímabært að stofna
sjálfstætt fyrirtæki utan um inn-
ffutninginn. Tómas Haffiðason,
þá framkvæmdastjóri Kælivéla,
lét af því starfi og hefur frá upp-
hafi stýrt íshúsinu.
Greiðið fýrir eina kw
en fáið fjórar
Strax frá upphafi var tekin sú stefna
að vera með litla yfirbyggingu og bjóða
vörur á góðum verðum. Bæði hefur verið
leitað beint til framleiðenda og stórra
birgja til að fá góðar vörur á lágu verði
með stuttum afgreiðslutíma. Auk þess
hefur íshúsið flutt mikið inn af vörum
frá Kína og er nú komið með fjölmarga
birgja í Kína, og eru orðnar tíðar sending-
ar af vörum frá Kína.
Síðan raforkulögunum var breytt hefur
orðið gríðarleg aukning hjá íshúsinu á
varmadælulausnum, en á köldum svæð-
um eru varmadælur mjög hagkvæmar
kostur. Sem dæmi má nefna eitt kerfi
þar sem greitt er fyrir 1 kw, en gefur 4
kw í varma. Miklu máli skiptir í þessum
kerfum að vanda valið og velja kerfi með
mikla nýtingu og réttan kælimiðil. Þessi
kerfi virka einnig sem loftkælikerfi á
sumrin og því er alltaf rétt hitastig inni í
húsinu.
íshúsið hefur boðið upp á hefðbund-
in loftkælikerfi, en á íslandi hefur þessi
Tómas Hafliðason, framkvæmdastjóri íshússins.
markaður vaxið jafnt og þétt undanfarin
10 ár. íshúsið hefur verið leiðandi á
þessuin markaði og býður nú upp á kerfi
frá Fujitsu, Panasonic, Samsung ásamt
hagkvæmari kínverskum vörumerkjum.
Einna vinsælustu loftkælitækin eru fær-
anleg loftkælitæki en þau eru ódýr og
henta vel hvort sem er á heimilum, tölvu-
rýmum eða sumarbústöðum.
A undanförnu hefur mestur vöxtur
verið á sölu á tilbúnum kælikerfum. Þetta
eru kerfi sem koma tilbúin að utan og
það eina sem þarf að gera er að rafmagns-
tengja þau.
í stærri klefum þarf einnig að tengja
kælilagnir á milli vélakerfis og eimis í
kæliklefa. Þessi kerfi eru orðin rnjög
algeng erlendis en hafa verið að
ryðja sér til rúms hér á landi.
Þau eru mjög hagkvæm í inn-
kaupum þar sem alll fylgir með
í pakkanum og ekki um neinn
falinn kostnað að ræða. Þetta
sparar verulegar fjárhæðir þegar
kemur að uppsetningu á kerf-
unum.
Lofthreinsitækin griðarlega
vinsæl
Fyrir utan kælilausnir hefur
íshúsið boðið upp á ýmsar aðrar
lausnir, til dæmis ódýra hitaofna
og lofthreinsitæki, en þau tæki
hafa náð gríðarlegum vinsældum.
Þau hjálpa meðal annars þeim
sem hafa ofnæmi, þar sem ryk er
í íbúðum eða íbúðir þar sem svif-
ryk hefur verið að trufla.
Rakatækin hafa einnig verið
vinsæl á stöðum þar sem er
saggi, svo sem í bílskúrum, úti-
húsunt eða vörulagerum. Jafnvel
er hægt að fá lítil kerfi sem henta
i skápa þar sem raki getur skemmt föt.
Vöxtur íshússins hefur verið einna
mestur á leigumarkaðinum en íshúsið
hefur boðið kælitæki til leigu, bæði
loftkælitæki og hitara. Menn hafa því geta
leigt sér tækin í skamman tíma þegar þörf
er á búnaðnum en ekki er nauðsynlegt að
fjárfesta í dýrum tækjum.
Framundan eru mjög spennandi timar
hjá fshúsinu en fyrirtækið hefur vaxið
jafnt og þétt á undanförnum árum.
Nýjasta línan hjá fyrirtækinu eru breskir
iðnaðarkæliskápar sem fyrirtækið hefur
boðið á góðum verðum, en jafnframt
hefur verið boðið upp á útlitsgallaða
skápa sem hafa verið fluttir útlitsgallaðir
til landsins og þá á frábærum verðum.
40 - Sjómannablaðið Víkingur