Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Síða 56
Hilmar Snorrason skipstjóri
H Jtan úr
heimi
Stærri Panamaskurður
Orðið PANAMAX mun brátt fá nýja merkingu en hún táknar
hámarksstærð skipa sem geta siglt í gegnum Panamaskurðinn.
í nýlegum kosningum í Panama samþykktu 78% landsmanna
að ráðist yrði í stækkun Panamaskurðarins þrátt fyrir að landið
sé í fjárhagsvandræðum. Byggð verður þriðja skipastigaleiðin
við skurðinn sem á að vera mörgum sinnum stærri en þær tvær
skipastigaleiðir sem nú eru.
Rekstraraðilar skipaskurðarins vonast til að geta hafið verkið
þegar á næsta ári þannig að hann verði tilbúinn í breyttri mynd
á 100 ára afmæli skurðarins árið 2014. Áætlanir gera ráð fyrir
að breytingarnar kosti um 5,25 miljarða bandaríkjadala sem
þarlendir ætla að fjármagna með lántöku. Þar af leiðandi munu
skurðagjöld hækka um 3,5% árlega næstu 20 árin. Þetta þýðir
fjórföldun á verði fyrir gámaskip eða sem nemur 100 USD pr.
TEU. Stærsti notandi Panamaskurðarins, danska skipafélagið
A. P Moller-Mærsk, hefur aðvarað þarlend yfirvöld vegna fyr-
irhugaðra hækkana sem gætu leitt til þess að útgerðir breyttu
siglingaáætlunum sínum og sigldu lengri leiðir til Kyrrahafs.
Nýjustu skip útgerðarinnar, E gerðin sem sagt var frá í síðasta
blaði, eru til að mynda of stór fyrir núverandi skurð og því sigla
þau suður fyrir Ameríku.
í dag eru stærðarmörk gámaskipa um skurðinn 4.000 TEU’s
skip en eftir breytingarnar eiga 10.000 TEU’s skip að geta kom-
ist í gegn. Nýjustu skip A. P. Moller-Mærsk gætu því ekki nýtt
sér skurðinn, þrátt fyrir breytinguna, og eflaust eiga gámaskipin
enn eftir að stækka eitthvað á næstu 8 árum.
Annar skipaskurður
Það er þó ekki víst að Panama verði lengi eina ríkið sem geti
boðið upp á siglingar milli Atlantshafs og Kyrrahafs. Forseti
Nígaragúa, Enrique Bolanos, kynnti aðeins þremur vikum áður
en Panamabúar gengu til atkvæða að þar í landi væri búið að
gera metnaðarfulla áætlun um byggingu skipaskurðar sem
myndi keppa við Panamaskurðinn. Áætlanir þeirra gera ráð
fyrir að nýi skurðurinn sem kallaður hefur verið Inter-Oceanic
Nicaragua skipaskurðurinn muni kosta um 18 milljarða dollara
og taka 12 ár að gera. Þessi nýi skurður myndi jafnframt taka
stærri skip en Panamaskurðurinn gerir i dag eða allt að 250
þúsund tonna skip. Forsetinn hefur biðlað til alþjóðlegra fjár-
festa að styrkja framkvæmdina og þar með snúa efnahagslífinu
á þessu svæði til betri vega. Skurðurinn myndi stytta siglingar
milli Kína og Evrópu um fleiri hundruð milur.
Nígaragúa hefur lengi átt þann draum að eignast eigin skipa-
skurð en skurður í gegnum landið var talinn álitlegur kostur
áður en ráðist var í hönnun Panamaskurðar.
Ásigling
Það eru ekki skemmtilegir tímar hjá þýska skipstjóranum
Wolfgang Schroder. Hann var skipstjóri gámaskipsins Zim
Mexico 111 og varð fyrir því óhappi þegar hann var að taka skip
sitt frá bryggju í Mobile Alabama að það rakst utan í gámakrana
sem féll saman við ákomuna. Ekki vildi betur til en að rafvirki
sem var að vinna á bryggjunni lést er kraninn féll. Schroder
var þegar handtekinn og færður fyrir dómara. Þrátt fyrir að
Schroder, sem er 59 ára og búsettur á írlandi, afhenti dóm-
ara vegabréf sitt taldi dómarinn næsta auðvelt fyrir kallinn að
hverfa úr landi með þau alþjóðatengsl sem skipstjórinn hefði.
Dæmdi hann því Schroder í gæsluvarðhald þar til dómur verður
upp kveðinn i febrúar n.k. Búist er við að hann fái allt frá 41 til
51 mánaða dóm en atvik sem þetta gæti varðað allt að 10 ára
fangelsi.
Launahækkanir
Skortur á sérþjálfuðum sjómönnum er orðinn verulegur sem
hefur jafnframt hækkað launin. Sjómenn á risaolíuskipum
(VLCC) fengu til að mynda 20% launahækkun á árinu 2005 en
það sem af er þessu ári hafa laun þessa manna hækkað um 9%.
Engir skipstjórar á lausu
Það er víða sem skortur er á sjómönnum og þá sérstaklega
menntuðum. í Þýskalandi eru menn komnir á þá heljarþröm
að þurfa að flagga skipum út á nýjan leik bara fyrir það eitt að
gífurlegur skortur er orðinn á þýskum skipstjórum. Talsmenn
kaupskipaútgerðar þar í landi hafa bent á að stöðugt þrengi að
og það sé farið að bjóða í menn þannig að ef ekki er gert vel við
menn eiga útgerðir á hættu að missa þá yfir til samkeppnisaðila.
Gámaskip hafa veríð að missa gámafyrír borð þar sem gámafestingar hafa
gefið sig.
Gámaskór til vandræða
Áður hefur verið fjallað um nýju gerðir gámafestinga
(gámaskó) á þessum síðum. Á undanförnum árum hafa verið
að ryðja sér til rúms sjálfvirkar gámafestingar sem kallast FAT
(Fully-automatic twistlocks). Kostur við þessa gámafestingar
er að þær læsa gámum saman án þess að hafnarstarfsmenn eða
skipverjar þurfi að príla fleiri tugi metra eftir gámastæðum til
að losa gámafestingar milli gáma.
En ekki er allt gull sem glóir því eftir að þessi gerð gámafest-
inga tók að verða almenn um borð í gámaskipum fóru stöðugt
fleiri gámaskip að lenda í þeim vandræðum að missa gáma fyrir
borð. Nú hafa mörg skipafélög tekið þessar gámafestingar úr
umferð og jafnframt farið þess á leit að gerðar verði rannsóknir
á gæðum þessa búnaðar. Vandamálið virðist þó fyrst og fremst
vera að mörg flokkunarfélög hafa viðurkennt þennan búnað og
þar með verða skipstjórar að sætta sig við vandann.
Bureau Veritas hefur nýlega lokið rannsókn á þremur atvikum
þar sem meira en 200 gámar fóru fyrir borð. Þrír megin þættir
þess að gámar fóru fyrir borð voru notkun sjálfvirkra gámafest-
inga, gámar voru staðsettir fyrir aftan yfirbyggingu og að veður
var mjög slæmt og skipin ultu mikið. Þá kom einnig í ljós að
gámaskór voru orðnir lélegir vegna slits.
56 - Sjómannablaðið Víkingur