Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Síða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Síða 24
Sverrir Ólafsson Rabbað við Rabba Ágrip af sjóferðasögu Rafns Kristjdns Kristjánssonar stýrimanns 1943 - 1968 Fyrsti hluti hafði gerzt eitt og annað frásagnarvert. Hann hafði jafnan eytt því; taldi það ekki ómaksins vert; ekki frá miklu að segja. En nú var svo komið að ég sat með glósubók og penna í notalegri íbúð hans við Dalbraut í Reykjavík, tilbúinn í slag- inn að tala niður glósur eftir reynslubolt- Það er á ofanverðum ýli á því herrans ári 2007 og þorrinn er ekki langt undan. Hann situr á friðarstóli, hann frændi minn, eftir nærfellt átta áratuga vegferð á sjó og landi. Mæður okkar voru systur og mjög nánar og ég hef jafnan litið á hann sem stóra bróður minn með tals- verðri lotningu hafandi rúman áratug umfram mig í aldri og jafnan í miklu og nánu samneyti í uppvextinum. Svo var hann sjómaður en ég var bara landkrabbi. Ég kallaði hann Dedda á upphafsárun- um, enginn veit hvers vegna enda festist nafnið ekki við hann. Hann var alla tíð mér afar vinsamlegur, átti þó til að vera nokkuð stuttur í spuna og fara eigin leiðir í dægurmálum. Lotningin hefur líklega komið, þegar hann keyrði mig um í hjólbörum, er ég var nýlega hættur að vera ómálga og farinn að bera virðingu fyrir þeim, sem hærri voru í loftinu. Það hafði nokkrum sinnum borist í tal, að við skröfuðum saman um sjó- mennskuferilinn, því ég vissi til að þar Kolvitlaust veður, en þá er betra að slóa undir land og helst inn á skjólscelanfjörð. Sviðifórst í desember 1941. Hann var að koma af miðunum þegar hann hvarf en aldrei upplýstist hvað kom fyrir skipið. anum og togarasjómanninum Rafni Kristjáni Kristjánssyni stýrimanni. Lygasaga og önnur sönn - Eg er fæddur að Vesturgötu 48 í Reykjavík, uppi á lofti, 28. júní árið 1927, segir hann óspurður. Við förum fljótt yfir æsku- og upp- vaxtarár enda þau ekki á dagskrá í bili. Vestfirskt sjómannsblóð var í föðurætt- inni en sunnlenzkt í móðurættinni og landkrabbar ekki fyrr en einhvers staðar í framættum. - Ég fór í fyrsta túrinn sem hálfdrætt- ingur á togaranum Snorra goða árið 1943, er ég var á 16. ári. Á móti mér var annar hálfdrættingur og góður vinur minn, Þorsteinn Ingvarsson, kallaður Steini. Yfirleitt vorum við á Halamiðum og vesLur af landinu. Hlutverk okkar var að vera í pontinum og þvo fisk, slægja og henda niður í lest. Við gerðum lítið annað en að vinna og sofa. Þetta var áður en vökulögin komu og unnum við í 12 tíma og hvíldum okkur í sex en urðurn að nota hluta hvíldartimans í að matast. Á vaktinni fengum samt mat og kaffi líka. Eftir að vökulögin komu var unnið í sex tíma og hvílst í aðra sex og það var mik- ill munur enda hitt fyrirkomulagið ekki mönnum bjóðandi, þótt maður léti sig hafa það. 24 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.