Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Page 50
Slysavamaskýlið var reist á rústum gamla bæjarins í Kejlavík.
hins magra sem við erum í þann veginn
að yfirgefa.
Næsti viðkomustaður er nefni-
lega Keflavík. Þar stóð kvennadeild
Slysavarnafélags Akureyrar fyrir því árið
1951 að reisa skipbrotsmannaskýli en það
var Drangur sem flutti vinnuhópinn, 39
konur og karla, út eftir. Til eru frásagnir
af erlendum sjómönnum er gengu þarna
á land seint á 19. öld og voru með derr-
ing. Ég segi aðeins: Þeim hefði verið nær
að fara í berjamó því aldrei á æfinni hef
ég séð stærri krækiber en í Keflavík. Þetta
eru hnullungar á stærð við væn bláber.
Þessi skenrmtilegu náttúruundur, sem
krækiberin eru, urðu mönnum snemma
ljós en mannvistarleifar frá 10. öld hafa
fundist í Keflavík.
Þorgeirsfjörður
Þriðji og seinasti lendingarstaðurinn
er i Þorgeirsfirði þar sem ísak Jónsson
bjó og dó en hann kenndi Islendingum
að frysta matvæli. Annar frumkvöð-
Berin eru stærri í Kejlavík en í öðrum íslenskum berjalendum. Hér haja
SigriðurJúlia Heimisdóttir, rauðklædd, ogjúlia JónsdóttirJyllt vænan bauk
aj berjum og voru ekki lengi að þvi.
Skipstjórinn íjerðinni var Jón Þorsteinsson.
50 - Sjómannablaðið Víkingur