Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Síða 64
Hilmar Snorrason skipstjóri
Utan úr
Árekstur í Hormuz sundi
Það á ekki af kafbátaflota Bandaríkjamanna að ganga hvað
varðar árekstra. Það lýtur einna helst út fyrir að eitthvað hafi
klikkað í því að kenna þeim að koma úr kafi. Þann 8. janúar sl.
kom kafbáturinn Newport News SSN 750 heldur ógætilega upp
undir yfirborðið eða réttara sagt upp undir 300 þúsund tonna
olíuskipið Mogamigawa. Voru skipin á siglingu í Hormuz
sundi þegar atvikið átti sér stað og urðu talsverðar skemmdir á
olíuskipinu þegar turn kafbátsins fór í gegnum botninn á tank-
skipinu. Kafbáturinn var við eftirlit í sundinu en tankskipið á
leið til Singapúr. Það var ekkert verið að bíða eftir sjóprófum
heldur var skipherra kafbátsins umsvifalaust tekinn í land,
lækkaður í tign og framundan bíða hans eflaust störf bak við
skrifborð það sem eftir lifir þjónustu hans í sjóhernum.
Flugmóðurskipið Invincible virðist vera dlvalinn hafnargarður.
Hafnargarður
Það eru heldur betur stór áform sem fiskimenn í Brixham í
Devon á vesturströnd Englands hafa. Þeir hafa óskað eftir því
að fá flugmóðurskipið Invincible keypt og ætla að sökkva því til
að mynda hafnargarð og verja þar með höfnina hjá sér. Bygging
hafnargarðs hefur verið metinn á um 20 milljón pund en
brotajárnsverð fyrir Invincible er aðeins um hálf milljón punda.
Hugmyndin er alls ekki svo galin þegar horft er á þá kosti sem
skipið gefur til viðbótar því að verja höfnina. Þetta 20 þúsund
tonna flugmóðurskip væri til viðbótar nýtanlegt sem bílastæði
við höfnina þar sem flugskýlin stæðu upp fyrir sjólínu. Þá hafa
þeir í hyggju að nota flugþilfarið til að koma upp sjóminjamið-
stöð. Invincible var lagt árið 2005 og eru nú helstu vangavelt-
urnar þær hversu lengi megi búast við að skipið geti legið á
hafsbotni sem hafnar- og varnargarður.
Dýrt skip
Samkvæmt upplýsingum frá samtökum skipasmiðja í Suður
Kóreu var dýrasta skip sem smíðað var á síðasta ári háþróað
borskip sem fjármagnað var af sænskum fjárfestum og kost-
aði það litlar 630 milljónir dollara. Skipið sem er 228 metra
langt var smíðað hjá Samsung Heavy Industries sem jafnframt
er að smíða fjögur næst dýrustu skipin sem einnig eru borskip
og er kostnaðurinn við þau á bilinu 550 til 590 milljón doll-
ara. Sjötta dýrasta skipið sem þar í landi var smíðað á árinu er
LNG gasskip sem sama skipasmíðastöð byggði fyrir fyrirtæki í
Quatar. Kostaði það einungis 284 milljónir dollara.
Þessi skipasmíðastöð hefði ekki tekið eftir því þótt nýja
Grímseyjarferjan hefði verið sett inn í smíðaverkið og sá kostn-
aður hefði bara týnst í reikningasúpunni þeirra.
Varðveitta skip
Nú eru bundnar miklar vonir við að takast megi að varðveita
enn eilt Liberty skip. Bandaríska þingið samþykkti heimild,
fyrr á þessu ári, þess efnis að ánafna skipinu Arthur M Huddell
til ríkisstjórnar Grikklands. Fyrirhugað er að fara með skip-
ið til Piraeus þar sem gera á fljótandi safn um kaupskipasögu
þjóðarinnar og áhrif þau sem siglingar hafa haft á hana. Þá er
litið á þessa heimild sem tákn um þau góðu samskipii og vin-
áttu sent ríkir á milli ríkisstjórna Grikklands og Bandaríkjanna.
Arthur M Huddell var smíðaður hjá St. John’s River árið 1943
en ári síðar var skipinu breytt til lagningu olíuleiðslna yfir
Ermarsund í tengslum við D daginn. Var skipinu lagt í Suisun
Bay árið 1946 og eftir 10 ára legu var skipið tekið í notkun sem
kapalskip. Var því endanlega Iagt árið 1984.
Nýir markaðir
Stærsta skemmtiskipaútgerð í heimi, Carnival crusie Linse,
eru nú að gera sig klára til að storma inn á skemmtiskipa-
markaðinn í Evrópu. Útgerðin sem upphaflega var nreð
Karabískahafið sem meginmarkaðssvæði sitt hefur á síðustu
árum verið að horfa meira til Evrópu. Á næsta ári munu þeir
setja 113 þúsund tonna nýsmíði, Carnival Splendor, í siglingar
um Miðjarðarhaf með Evrópu sem aðalbækistöð. Mega þvi
skemmtiskipaútgerðir sem hingað lil hafa hafl það rólegt og
gott í Miðjarðarhafinu búa sig undir harðnandi samkeppni um
farþega.
Duglegir Iöggæslumenn
Sem aldrei fyrr hefur bandaríska strandgæslan lagt hald á gíf-
urlegt magn af eiturlyfjum á aðeins tveimur mánuðum. Það
var áhöfn strandgæsluskipsins Sherman sem í þremur eftirlits-
ferðum um borð í skip fundu tæp 19 tonn af kókaíni sem talið
er vera að verðmæti um 500 milljónir dollara. Það var 19.
febrúar sem Sherman kom að ekvadorianska fiskiskipinu Don
Juan K undan Kyrrahafsströnd Mexíkó þar sem áhöfnin var að
umskipa kókaíni í litla hraðbáta. Þegar áhöfn fiskiskipsins varð
strandgæsluskipsins vör kveikti hún í skipinu og reynda að
komast undan í hraðbátunum. Tókst áhöfn Sherman að stöðva
hraðbátana og handtaka áhafnarmeðlimina, 14 talsins. Don
Juan K sökk í kjölfarið en áður tókst strandgæslumönnunum að
ná alls 400 kílóum af kókatni bæði frá hinu brennandi skipi og
eins úr hraðbátunum. Það var svo rétt mánuði síðar, eða þann
18. mars, sem Sherman áhöfninni tókst að leggja hald á meira
kókaín. Það sem meira var að það magn sem þá náðist mun
vera heimsmet í eiturlyfjafundi um borð í einu skipi. Það var
Panamaskipið Gatun, sem er um 100 metra flutningaskip, sem
var þá slöðvað í Kyrrahafi og fundust 765 ballar af kókaíni i
tveimur gámum sem samtals vógu unt 17,5 tonn. Var farið með
skipið til hafnar i Panama þar sem 14 manna áhöfn þess bíður
nú ákæra. Þriðja skipið sem var hraðskreitt skemmtiskip var
siðan stöðvað viku síðar en það var án þjóðernis. Þar fundust
um borð 900 kg til viðbótar því sem áður hafði verið lagt hald
á.
Mörg skip heimsótt
Hafnarríkiseftirlilsmenn eru oftar en ekki meðal óvinsælustu
gesta sem koma um borð í kaupskip. Ekki nóg með að þeir
taka mikinn tíma frá uppteknum áhöfnum heldur einnig að
þeir finna því miður oft eitthvað alhugavert um borð. Allt er
64 - Sjómannablaðið Víkingur