Náttúrufræðingurinn - 1931, Síða 26
104
NÁTTÚRUFR.
kljúfa eggjahvítuefnin niður í polypeptid og aminosýrur, sem
berast út í líkama dýrsins og mynda þar eggjahvítuefni á ný,
en þau eru oft annars eðlis en eggjahvítuefni jurtanna. Það
sama gildir einnig, þegar dýrin leggja sér hvert annað til munns,
nema hvað minni eðlisbreyting verður á eggjahvítuefnunum.
Af eggjahvítuefnum eru til margar tegundir og er bygg-
ing þeirra mjög margbrotin, svo að hún þekkist aðeins að litlu
leyti.
En nú losnar allt aftur og molnar niður, því að jurtirnar
og dýrin deyja og líkamir þeirra rotna. Öll úrgangsefni, sem
dýrin losa sig við í lifanda lífi, fara auðvitað sömu leiðina.
Rotnunina orsaka ýmsar bakteríur og sveppir, sem alls staðar
eru á sveimi, en ná ekki að hefja starfsemi sína í líkömum jurta
og dýra fyr en þau eru dauð.
Þegar eggjahvítuefnin rotna, þá myndast ýms einfaldari
köfnunarefnissambönd, en síðasta stigið er venjulegast ammon-
iak, sem þá getur gengið í samband við ólífrænar sýrur í jarð-
veginum og myndað sölt (ammoniumsölt). En nú koma aðrar
bakteríur til sögunnar, en það eru svonefndar nitritbakteríur
og nitratbakteríur. Þær fyrnefndu breyta ammoniaki í nitrit:
NH3 + 30 = HN02 + H20
þær síðarnefndu nitritunum í nitröt:
HNOo + O = HNOs
Við þessi efnaskifti, sem nefnd eru sýring (oxydation), eða í
þessu tilfelli öllu heldur öndun, vinst orka, sem þessar bakter-
íur nota til þess, að vinna koltvísýringinn úr loftinu, en þær
hafa enga blaðgrænu og geta því ekki unnið hann á sama hátt
og aðrar jurtir. Nú taka jurtirnar aftur til sí'n nitrötin og breyta
þeim í lífræn efnasambönd, og hefst þá sama sagan aftur.
Þessi hringrás köfnunarefnisins er nú samt ekki alveg
lokuð, þannig að ekkert af köfnunarefni tapist úr henni eða
nýtt bætist við, því að hvorttveggja á sér stað, og skal fyrst
vikið að því fyrnefnda, köfnunarefnistapinu.
Hér eru aftur bakteríur að verki. Eins og nitrit- og nitrat-
bakteríurnar breyttu ammoniakinu í nitrit og nitröt, geta aðr-
ar tegundir baktería unnið í gagnstæða átt og myndað amm-
oniak aftur úr súrefnissamböndunum. En komi ammoniak sam-
an við sýruna HN02 getur köfnunarefnið losnað á þennan hátt:
NH8 + HN02 = NH.,N02 = N2 + 2H20
Þessi efnaskifti eru samt talin frekar sjaldgæf, því að venju-
lega sýrist ammoniakið aftur og myndast þá nitröt, eins og