Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 27

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 27
NÁTT Ú R U FRÆÐINGURIN N 71 vitanlega gufumökkurinn, sem hjúpaði jörðina, og jafnframt tók að draga mesta máttinn úr regninu. Og þar kom að lokum, að mökk- urinn varð svo þunnur, að sólargeislunum opnaðist leið þar í gegn. Naktar, lífvana auðnirnar og endalaus flötur hafsins sveipuðust nú fyrsta sinni sólarljósi. Löng dauðans nótt var að baki, en framundan rofaði fyrir tímum lífs og þróunar undir ylgeislum sólar. Morgunn lífsins. Enda þótt ekki sé ljóst, livenær hinar fyrstu lífverur þessa linattar urðu til, eru vísindamenn þó á þeirri skoðun, að síðan séu liðn- ar fimmtán lmndruð milljónir ára eða meira. Slíkur óratími er mannlegum skilningi ofvaxinn. Fyrstu óvéfengjanlegu menjarn- ar um líf finnast í berglögum frá frumlífsöld. Þessir elztu þekktu steingervingar sanna tilveru þörunga (1400 milljón ára gamlir) og nokkurra lítt þroskaðra dýrafylkinga, þar á meðal frumdýr, sem höfðu um sig fasta skurn. Einnig hafa fundizt frá þessum tímum leifar af holdýrum, skrápdýrum, krabbadýrum og ormum. Ljóst rná vera, að löngu áður en þessu stigi þróunarinnar var náð, liafa lifað aðrar enn ófullkomnari tegundir lífvera, og það eru einmitt þær, sem eru forfeður alls lífs á jörðinni. Þessir frumbyggjar liafa örugglega verið plöntur, örsmáar slímagnir, líkar svipuþörung- um nútímans. En hvernig hinar fyrstu lífverur hafi orðið til, á morgni þróunarinnar, er mönnum hulið. Ýmsar getgátur um það hafa þó að sjálfsögðu komið fram og ein er sú, að ofursmár lífs- neisti hafi upphaflega borist hingað frá öðrum hnöttum og orðið sá mikli orkugjafi, sem æðra og fullkomnara líf er komið frá. Þessi kenning er langt sótt og liarla ólíkleg þegar hugleiddar eru þær óraleiðir, sem aðskilja hnetti alheimsins, og jafnframt hafður í huga sá helkuldi, sem ríkir í geimnum. Öll rök virðast því fremur hníga að því, að lífið liafi upprunalega kviknað á jörðinni sjálfri og þá vafalítið í hinum volgu frumhöfum hennar. Vaggu lifsins — hafið. Þótt enn sé margt myrkri hulið í sambandi við lrumlíf jarðar- innar, er þó nokkurn veginn öruggt, að allar fyrstu lífverurnar hafi lifað í sjó og vötnum. Hafið er því talið vera vagga lífsins. Þegar í byrjun fornaldar, á kambríska tímanum svonefnda, liafði dýra- og plöntulíf sjávarins náð allmikilli fjölbreytni. Frá þessu tímabili

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.