Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 32
76
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
3. mynd. Hreistursalamöndrur frá steinkolatímabilinu.
síki. Veðráttan var mjög hlý og loftið sírakt og mollulegt. Slík
skilyrði eru gróðrinunt einkar hentug, enda hófst hann brátt til
mikils þroska. Löndin klæddust víða þykkum gróðurfeldi og heilir
frumskógar mynduðust. Þetta tímaskeið í sögu jarðarinnar nefnist
steinkolatímabilið.
Gróður steinkolatímabilsins var mjög 'frábrugðinn gróðri nútím-
ans og harla einkennilegur, því að flest þau tré, sem mynduðu skóg-
ana, voru raunverulega risavaxnir jafnar, elftingar og burknar.
Hvarvetna á landi voru gróplönturnar einvaldar. Náðu mörg þessi
tré svo mikilli stærð, að hæð þeirra nam tveim til þrem tugum
metra. Hafa skógar þessir að öllu útliti verið næsta kynlegir og
yfir þeirn hefur jafnan ríkt djúp kyrrð og forneskjulegur drungi.
Víða hefur verið skuggalegt milli trjánna og í heild sinni hafa fenja-
skógar þessir verið fárri prýði gæddir samanborið við skóga nú-
tímans. Þar hafa engir litprúðir fuglar flögrað um með hugljúfu
kvaki, né heldur spendýr af neinu tagi verið á ferli, Jjví að þetta
var löngu fyrir þeirra tíma. — Hins vegar var þar krökkt af stór-
vöxnum froskdýrum, sem nefnd liala verið hreistursalamöndrur.
Þessi frumfroskdýr voru komin fram á sjónarsvið lífsins nokkru
áður en steinkolatímabilið hófst, en jrá náðu j:>au sarnt mestri fjöl-
breytni og mestum þroska. Þau stærstu urðu um fjórir metrar á