Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 49

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 49
93 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN hvaða þörunga finnum við þarna helzt? Nær alltaf kísilþörunga. Aðalheimkynni þörunganna, annarra en sæþörunga, eru vötn og lækir og hvers konar rakur jarðvegur. Köllum við þessa þörunga einu nafni vatnaþörunga, enda þótt þeir geti sums staðar komizt af með lítið vatn. Vatnaþörungarnir eru flestir úr hópi blágrænþör- unga, grænþörunga og kísilþörunga, en margir eru og úr fylking- unum Euglenophyta og Pyrrliophyta. Aðeins sárafáir brúnþörung- ar og rauðþörungar finnast í fersku vatni. Vatnaþörungar eru að jafnaði lítt áberandi, en þeir eiga margir sín blómaskeið, sem oft eru stutt, stundum aðeins nokkrir dagar. Verður fjöldi þeirra þá skyndilega mjög mikill, svo að næringar- efnin ganga fljótt til þurrðar. Deyja þá þörungarnir eftir stuttan tíma, og leggur þá sterka rotnunarlykt af vatninu. Enda þótt vatnaþörungarnir virðist liarla veikbyggðir og við- kvæmir, rnegna sumir þeirra að lifa við mjög erfið skilyrði. Eru sumir blágrænþörungar sérstaklega liarðgerðir og lifa þar góðu lífi, sem engin önnur lifandi vera að undanskildum nokkrum gerl- um fær haldið velli. Á þetta einkum við í hverum. Þessi lífseigja blágrænþörunganna hefur verið talin stafa af því, hve frumstæðir þeir eru að byggingu. En hin frumstæða bygging blágrænþörung- anna, ásamt hitaþoli þeirra, er talin benda til þess, að þeir hafi verið meðal frumbyggja jarðarinnar. HEIMILDARIT A. Engler’s Syllabus der Pflanzenfamilien. I. Band, 12. Auflage, Berlin 1954. Jónsson, Helgi: The Marine Algal Vegetation of Iceland. The Botany of Iceland. Part I, 1, Copenhagen, 1912. Smith, Gilbert M.: Manual of Phycology. Waltham, Mass., 1951. Strasburger’s Lehrbuch der Botanik. 27. Auflage, Stuttgart 1958. Sjá ennfremur: Pétursson, Sigurður: Blágrænþörungar. Náttúrufræðingurinn 28 : 32—49. — Brúnþörungar. Náttúrufræðingurinn 30 : 74—97. Þórðardóttir, Þórunn: Um plöntusvifið í sjónum. Náttúrufræðingurinn 27 : 1-14.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.