Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 52
96
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
þar sem meðalhiti janúarmánaðar er nærri + 2°, en hér á landi vex hann
um allt land, meira að segja hátt uppi í Ijöllum, þar sem meðalhiti janúarmán-
aðar er líklega nærri -h 10°?
Maður íyllist aðdáun við að hala svona bók fyrir frarnan sig. Fyrst og
fremst á hinu óhemjumikla starfi vísindamannanna, sem að baki hennar ligg-
ur. En þó ef til vill fullt eins á örlæti og skilningi þeirra yfirvalda, sem kost-
að hafa alla vinnu við verkið, skilningi, sem óskandi væri að gæti gripið ís-
lenzk yfirvöld. Og í jjriðja lagi á Háskólaforlaginu í Osló, sem af mikilli rausn
hefir veitt verkinu þann ytri búning, sem því sæmir.
Eyþór Einarsson.
GEORGE MIKSCH SUTTON: Iceland summer. Adventures oj a bird painter.
University of Oklahoma press. Norman.
George Miksch Sutton er prófessor í dýrafræði við háskólann í Oklahoma.
Hann er vel metinn fuglafræðingur og frægur fuglamálari í sínu heimalandi,
hefur ferðazt bæði um heit lönd og heimskautalönd og skrifað nokkrar bækur.
Hér á landi dvaldist liann sumarið 1958 og ferðaðist víða um landið, oftast í
fylgd með öðrum amerískum fuglafræðingi, Olin Sewall Pettingill, Jr., sem kom
hingað ásamt konu sinni, Eleanor, til þess að taka kvikmyndir af íslenzku
fuglalífi.
Þær eru nú orðnar ærið margar bækurnar, sem erlendir fuglafræðingar hafa
skrifað um dvöl sína á íslandi, en bók Suttons er að mínu viti sú bezt skrifaða
og ánægjulegasta aflestrar, þótt e. t. v. sé hún ekki sú fróðlegasta. Frásagnar-
máti hans minnir ekki svo lítið á Jón Sveinsson, Nonna, að því leyti, að lionum
verður allt að ævintýri, jafnvel hinir hversdagslegustu hlutir. Hann er, eins
og margir amerískir menntamenn, hleypidómalaus, vingjarnlegur og góðviljað-
ur. Hann fer ekki dult með hrifningu sína af landi og þjóð og bók hans á
eflaust eftir að draga marga landa hans liingað. Ég efast um, að margir þeir, sem
skrifa um framtíð íslands sem ferðamannalands, geri sér fyllilega ljóst, að aðal
aðdráttarafl landsins er hin tiltölulega ósnortna náttúra þess, og það er því ekki
aðeins menningarleg skylda, heldur getur það einnig orðið fjárhagslega þýð-
ingarmikið, að varðveita hana og vernda. Með hverju árinu fjölgar þeim, sem
ferðast hingað til þess að kynnast einhverjum þáttum íslenzkrar náttúru og
slíkir ferðamenn niunu verða okkur tryggastir og tekjudrýgstir er til lengdar
lætur, ef við kunnum sómasamlega að þeirn að búa. Lúxustúristar eiga hingað
lítið erindi, enda óviðfeldin atvinna að stjana við þá.
Aðaltilgangur Suttons með sumardvöl sinni á íslandi virðist liafa verið að
mála fuglsunga. Eru allmargar myndir af þeim og sumar bráðhuggulegar. Ég
nefni sem dæmi myndina af skúmsunganum. En honum lætur einnig vel að
mála með orðum og sumar náttúrulýsingar hans eru ágætar. Bókin mun fyrst
og fremst ætluð þeim, sem yndi hafa af fuglalífi, en ég hygg, að allir náttúruunn-
endur hljóti að liafa ánægju af því að lesa liana. Þetta er þokkafull bók, skrifuð
af góðum náttúruskoðara og einlægum náttúruunnanda.
Sigurður Þórarinsson.