Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2006, Qupperneq 4

Náttúrufræðingurinn - 2006, Qupperneq 4
Náttúrufræðingurinn Fréttir Örnólfur Thorlacius tók saman Birnir bæta vistkerfin Kyrrahafslaxinn, nokkrar tegundir af ættkvíslinni Oncor- hynchus, er um það frábrugðinn laxinum í Atlantshafi, Salmo salar, að hann hrygnir aðeins einu sinni og drepst nokkrum dögum eða vikum síðar. A leið laxanna upp ámar sitja bimir fyrir þeim og hremma fimlega með klónum. Bimimir þurfa að safna holdum fyrir langa vetrardvöl í híði, enda ganga þeir svo hart fram við veiðamar að laxveiðimenn í Alaska fóm fram á það rétt fyrir miðja síðustu öld að grisjað yrði í stofnum grábjama til að tryggja arðbæra framtíð sportveiðanna. Til þessa kom sem betur fer ekki og nú er að koma í ljós hversu mikilvægar laxveiðar bjamanna eru fyrir vistkerfin við ámar. Þegar bjöm hefur krækt í lax dregur hann feng sinn venjulega alllangt upp á árbakkann eða inn í skóg, þar sem hann getur notið matarins í friði fyrir öðmm bjömum. Ef veiði er nóg lætur bangsi sér nægja bestu bitana en leifir mestum hluta fisksins. Nær samstundis koma flugur, bjöllur og sniglar og verpa í hræið, og fuglar og spendýr taka líka þátt í veislunni - emir, mávar, hrafnar og krákur ásamt refum, minkum og fjölda annarra dýra. Og afurðir laxanna berast áfram eftir fæðukeðjunum: Skordýrin, sem skríða úr púpuham í hræjunum eða nærast fullvaxin á þeim, verða bráð vespna, fugla og smáspendýra svo sem músa, auk þess sem mörg þessara dýra leggjast beint á laxana sem bimimir skilja eftir. Ýmsar örverur taka svo við og að lokum verða steinefni úr skrokkum laxanna áburður fyrir jarðveginn á árbökkum og í skógum. A vatnasviðum laxáa í Alaska mælist meira af nitri, fosfór og öðrum steinefnum, sem oft setja gróðri á slíkum slóðum takmörk, heldur en búfræðingar mæla með að borið sé á slík svæði. Sitkagreni, sem er algengasta trjátegundin víða þar í landi, vex þrefalt örar hjá laxám en hjá sambærilegum fallvötnum sem enginn lax gengur í. Upp af ám þar sem lax gengur og birnir veiða þá fer sömuleiðis mun meira fyrir söngfuglum, sem lifa á skordýrum, en í laxalausum ám. Þar sem lax hefur minnkað í ám eða horfið úr þeim - og bimimir með þeim - hafa yfirvöld í Norður-Ameríku sums staðar látið losa úr vörubílum eða varpa úr þyrlum á árbakkana dauðum löxum (en talsvert er af þeim á reki í öðrum ám að hrygningu lokinni) til að endurheimta jafnvægið í vistkerfunum. Og framtakssamir athafnamenn í Alaska hafa sett á markað moltu til áburðar þar sem laxahræ em mulin saman við viðarkurl. Um þetta má lesa í grein eftir Scott M. Gende og Thomas P. Quinn: „The fish and the forest", í ágústhefti Scientific American 2006, bls. 66-71. Gefur sólin gálgafrest? Réttsýnir menn, í það minnsta þeir sem ekki eru háðir olíusölu um afkomu sína, viðurkenna að loftslag á jörðinni fer nú hlýnandi af völdum ýmissa efna, einkum koltví- oxíðs, sem bætast í lofthjúpinn við umsvif iðnaðarþjóða. En fleira kemur þar við sögu, þótt í minna mæli sé. Á langri ævi jarðar hefur loftslagið tekið verulegum breytingum, sem við skiljum sumar en aðrar miður vel eða alls ekki. Auk eiginlegra, langvarandi ísalda hafa gengið yfir minni sveiflur á lofthita. Má þar nefna „litlu ísöldina" sem breytti lífsháttum manna í Evrópu og víðar í heimi á síðari hluta sautjándu aldar og fram á þá átjándu. Á sama tíma, eða 1645-1715, fór lítið fyrir sólblettum. Þetta er kennt við enskan stjamfræðing, sem vakti á því athygli, og kallað Maunderlágmarkið. Menn þekktu víða snemma til sólbletta, dökkra dfla sem greina má berum augum, að vísu naumlega, þegar sól er lágt á lofti eða skín gegnum mistur. í sköpunarsögu Azteka er andlit sólguðsins sýnt bólugrafið og í kínverskum ritum frá árinu 28 f.Kr. kemur fram að menn tóku eftir ferðalagi blettanna um sólina. Grískir heimspekingar sáu þessa bletti á 4. öld f.Kr. en þeir komu illa heim við þann boðskap Aristótelesar að sólin og öll festing himins væru óbreytileg og flekklaus fyrirbæri. Með tilkomu stjömusjónauka snemma á 17. öld gátu stjamfræðingar greint sólbletti og sveiflur á þeim mun betur en áður. Galfleó sýndi fram á að þeir eru á sólinni sjálfri en ekki skuggamyndir af hnöttum sem um hana ganga, og hafnaði með því tveggja þúsalda arfleifð frá Aristótelesi um óbreytileika sólarinnar. Sólblettir vaxa og minnka reglulega og eru að meðaltali um 11 ár á milli hámarka - eða lágmarka. Raunar tekur sól- blettahringrásin 22 ár. Eftir 11 ára sveiflu á norðurhveli sólar tekur við önnur jafnlöng sunnan miðbaugs hennar. Á um 200 ára fresti virðast sólblettir hverfa nær algerlega. Þekking þess sem þetta skráir hrekkur hvergi til að greina frá eðli þessara bletta, en menn þekkja - og skilja að talsverðu leyti - sambandið á milli sólbletta og veðurfars: Lágmarki á sólblettum fylgir jafnan köld veðrátta. Þegar leið á tuttugustu öld fjölgaði sólblettum og þetta styrkti þá hlýnun lofthjúpsins sem varð fyrir gróðurhúsa- áhrif. Sólblettahámark var 1990-1991, svo nú binda menn vonir við kólnandi loftslag næstu árin, sem gæti gefið þjóðum heims svigrúm til að koma böndum á iðnmengun gufuhvolfsins. Því miður má búast við að þessi sveifla gefi þeim sem hag hafa af losun koltvíoxíðs tylliástæðu til að halda menguninni áfram. Þá munu áhrifin birtast af fullum þunga þegar næsta sólblettalágmark líður hjá. Sjá P. Foucal o.fl.: „Variations in solar luminosity and their effect on the Earth's climate". Nature 14. sept. 2006, bls. 161-166. Stuart Clark: „Saved by the sun". New Scientist 16. sept. 2006, bls. 32-36. 64
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.