Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Jón Hallur Jóhannsson og Björk Guðjónsdóttir
BREYTINGARÁ VARPÚTBREIÐSLU
OG STOFNSTÆRÐ TEISTU
Á Ströndum
1. mynd. Teista með sprettfisk sem er ein aðalfæða unga í hreiðri. - Black Guillemot with butterfish, an important food for nestlings.
Ljósm./Photo: Jóhann Óli Hilmarsson.
í grein þessari er fjallað um rannsókn sem höfundar gerðu á varpút-
breiðslu teistu í Strandasýslu á árunum 1995-2005. Samkvæmt gögnum
sem þeir öfluðu hefur dregið mjög úr útbreiðslu teistu og stofninn minnk-
að á þessu svæði frá því laust eftir miðja síðustu öld og virðist þessi sam-
dráttur viðvarandi. Samhliða kortlagningu teistuvarpa og talningu varp-
para voru sex teistuvörp við Steingrímsfjörð og Kollafjörð vöktuð yfir tíu
ára tímabil. Fjallað verður um niðurstöður úr vöktuninni, svo sem varpár-
angur og þá þætti sem hafa áhrif á hann, í annarri grein (Jón Fíallur Jó-
hannsson og Björk Guðjónsdóttir, í undirbúningi).
INNGANGUR
Teista Cepphus grylle (1. mynd) er
útbreiddur varpfugl með ströndum
landsins, þó einna síst við suður-
ströndina1,2 (2. mynd). Vitað er að
staðbundnar breytingar hafa orðið
á varpdreifingu teistu hér á landi á
undanförnum áratugum en vöktun
Náttúrufræðingurinn 74 (3—4), bls. 69-80, 2006
69