Náttúrufræðingurinn - 2006, Síða 15
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
5. mynd. Teistur á varpstað við Kirkjuból. Grímsey á Steingrímsfirði í baksýn. - Black Guillemots at breeding site at Kirkjuból. The
istand Grímsey in the background. Ljósm./Photo: Jón Hallur Jóhannsson.
ins. Best hefur verið leitað í sunnan-
verðum Steingrímsfirði og Kolla-
firði en stopulla þar fyrir norðan,
einkum norðan Kaldbaksvíkur, og
sum ár ekkert (GS 1994). Einnig hef-
ur leitarátak verið lítið og tilviljana-
kennt á sunnanverðu svæðinu frá
Ennishöfða suður í Hrútafjarðar-
botn (GS 1994, 2004).
Mælingar hafa ekki verið gerðar á
þéttleika minkaóðala á rannsóknar-
svæðinu svo vitað sé. Þorvaldur
Björnsson15 kannaði, ásamt Guð-
brandi Sverrissyni, 21 km strand-
lengju skammt norður af rannsókn-
arsvæðinu, milli Drangavíkur og
Seljaness, vorið 1986. Alls fundust
þar 14 fullorðin dýr (7 karl- og 7
kvendýr) sem gerir 0,67 dýr á kíló-
metra að jafnaði. Gefur það e.t.v.
vísbendingu um þéttleikann þar
sem minkaleit er stopul. í Kollafirði,
þar sem leitarátak hefur verið talið
gott, fundust vorið 2003 sex dýr (5
læður komnar að goti og 1 karldýr)
á 18 km kafla strandar (GS 2004)
sem gerir að jafnaði 0,33 dýr á kíló-
metra. (Nánar verður fjallað um
áhrif minks á teistu í annarri grein:
Jón Hallur Jóhannsson og Björk
Guðjónsdóttir, í undirbúningi).
Kjörlendi minks og teistu fer mjög
saman á ströndinni. A rannsóknar-
svæðinu verpur teistan gjarnan í
landi þar sem minkur á greiðan að-
gang, enda fáar eyjar eða sker sem
hann kemst ekki í. Teistan virðist
ekki bregðast við afráni minks með
því að dreifa varpinu13 og ekki varð
þess vart að teistur flyttu sig upp í
kletta þar sem minkur kemst síður
eða ekki að. Þau fáu klettahreiður
sem fundust virðast vera leifar fyrr-
um stærri varpa og hafa hugsanlega
haldist við vegna þess að minkur
komst ekki í þau.
Ætla mætti að teistu gæti fjölgað í
Grímsey á Steingrímsfirði (5.
mynd), þar sem ekki er minkur að
staðaldri, ef hún hrekst úr vörpum
í landi eins og talið er að gerst hafi
á Breiðafirði.3-10 Sú hefur ekki orðið
raunin því henni fækkaði þar ein-
nig. Minkur hefur nokkrum sinn-
um komist út í Grímsey, oftast
steggir (GS 1995), en þau dýr eru
talin hafa verið unnin fljótlega.
Sumarið 2005 náðust níu fullvaxin
dýr í eynni, sem bendir til þess að
læða hafi gotið þar sumarið áður
(GS 2005). I Grímsey voru allt að 10
teistuhreiður 19936 en ekkert hreið-
ur fannst og enginn fugl sást við
könnun í júlí 2005, en lundi hafði
þá aukið þar verulega útbreiðslu
sína frá því sem var 1993. Ólíklegt
er að teista hafi hrakist úr eynni af
völdum minks enda er þar gnægð
annarra fugla, t.d. lunda, sem ein-
nig virðist vera viðkvæmur fyrir af-
ráni minks.18
75