Náttúrufræðingurinn - 2006, Blaðsíða 16
N á ttúrufræðingurinn
Röskini varpstaða
Vegur var lagður yfir Tungugrafar-
voga í Steingrímsfirði árið 1972" og
eyðilögðust við það allt að 10 hreið-
ur (ML 1995). Við vegagerð um Slit-
ur í Bitrufirði á árunum 1977-1979
voru sjávarklettar sprengdir og fjör-
ur fylltar upp á um tveggja kíló-
metra kafla. Þar var fyrrum mikið
teistuvarp en talið er að það hafi þá
verið liðið undir lok af völdum
minks (SrM 2004). Við Selvog í
landi Broddaness var vegarfylling
við sjó breikkuð árið 1999 og
eyðilögðust við það 5-6 varpholur
teistu í sjávarbökkum. Rekaviður er
oft fjarlægður þar sem teistuhreiður
eru undir (6. mynd), einkum við
sunnanverðan Steingrímsfjörð.
Röskun varpstaða af beinum
mannavöldum hefur verið lítil og
líklegt að þær teistur sem urðu fyrir
truflun hafi fært sig um set enda
teistuvarp yfirleitt beggja vegna
röskunarstaðar.
Veiðar
I tengslum við rannsóknina voru á
árunum 1992-2005 merktar 1688
teistur, langmest ungar, og í lok árs
2005 höfðu 60 merki (3,6%) endur-
heimst (2. tafla). Sjö af endurheimt-
unum (12%) voru ungar sem ekki
höfðu náð að komast á sjó, 30 (65%)
voru ungfuglar, þ.e. fuglar sem ekki
höfðu náð fjögurra ára aldri og voru
því líklega ókynþroska, og þar af
voru 16 (53%) á fyrsta æviári. Flest-
ir endurheimtir ungfuglar drukkn-
uðu í hrognkelsanetum í nágrenni
rannsóknarsvæðisins á tímabilinu
apríl-maí er fuglar leituðu aftur til
varpstöðvanna. Sú teista sem end-
urheimtist lengst frá merkingarstað
(fugl á 3. æviári) var skotin í nóv-
ember fyrir Austurlandi. Alls náð-
ust 49 fullorðnir fuglar á hreiðrum
og voru merktir. Ellefu náðust aftur
á hreiðrum, sumir oftar en einu
sinni, en tveir endurheimtust dauð-
ir (einn úr neti og annar rekinn).
Teista er skotin á sjó sem og aðrir
svartfuglar. Samkvæmt upplýsing-
um frá veiðistjórnunarsviði Um-
hverfisstofnunar veiddust árlega að
jafnaði 4.116 teistur á landinu öllu á
tímabilinu 1995-2002. Þetta eru
háar veiðitölur miðað við það að
varpstofninn er áætlaður 10.000-
15.000 pör.16 Þarna er um að ræða
fugla sem skotnir eru að vetrarlagi
þegar ætla mætti að stór hluti nátt-
úrulegra affalla ungfugla sé að baki.
Veiddir fuglar (skotnir og úr veiðar-
6. mynd. Teistur verpa gjarnan undir rekaviði, einkum við sunnanverðan Steingrímsfjörð. - Black Guillemots frequently nest under
drift wood, especially on the south coast of Steingrímsfjörður. Ljósm./Photo: ]ón Hallur jóhannsson.
76