Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2006, Side 22

Náttúrufræðingurinn - 2006, Side 22
Náttúrufræðingurinn 3. mynd. Setlögin í Selárdal eru pykk og hörð, að mestu af gosrænum uppruna og gjóska er áberandi í lögunum. - Sediments at Selárdalur valley are thick and massive, they are mainly of volcanic origin and tephra is most conspicuous in the material accumulated. Ljósmynd/Photo: Friðgeir Grímsson 2005. tegundir. Með hjálp steingervinga var ætlunin að fá heildaryfirlit yfir hlut beykis í tertíerflóru landsins og fá úr því skorið hvenær það var áberandi og ráðandi í flórunni. Þar að auki var reynt að komast að nið- urstöðu um það hvaða útdauðar og núlifandi beykitegundir sýna mest- an skyldleika við steingerðu beyki- leifarnar frá íslandi. í því sambandi er ekki síst áhugavert að rannsaka hvort þær sýni nánari skyldleika við útdauðar eða núlifandi tegundir í Evrópu eða Norður-Ameríku. Slík rannsókn gæti hugsanlega gefið okkur upplýsingar um flutnings- leiðir beykitegimda til íslands á mis- munandi tímum á síðtertíer og varpað ljósi á þær loftslagsbreyting- ar sem urðu þess valdandi að sumar tegundir komu inn í íslenska síðter- tíerflóru meðan aðrar hurfu þaðan. JARÐLÖG OG STEINGERVINGAR Jarðfræðilega séð er ísland ungt land, elsta berg ofansjávar er frá míósentíma á tertíertímabili, um það bil 16 milljón ára gamalt.101112 Jarðmyndanir frá tertíer eru út- breiddar á blágrýtissvæðunum sem einkenna landslag á Vesturlandi, Vestfjörðum, Austfjörðum og víða á Norðurlandi. Blágrýtissvæðin eru að meginhluta mynduð úr hraun- lögum, en á milli þeirra eru víða misþykk setlög, sums staðar jafnvel þykkar setlagamyndanir. Víða í þessum setlögum hafa fundist til- tölulega vel varðveittar plöntuleif- ar, en staðsetning landsins mitt á milli Evrópu og Norður-Ameríku gerir ísland að einstöku svæði til rannsókna á flutningi plöntusamfé- laga á seinni hluta nýlífsaldar. Flest- ir plöntusteingervingar sem hefur verið lýst úr íslenskum setlögum frá tertíertímabili hafa fundist á Vest- fjörðum og Vesturlandi.2'31314 Á Vestfjörðum er elsti hluti íslenska hraunlagastaflans, en myndunar- saga hans var á mið- og síðmíósen og hófst fyrir um það bil 16 milljón árum og lauk þar fyrir um 8 milljón árum.11'12'15 Selárdals - Botns setlagasyrpan (15 millj. ára) er á annesjum Vestfjarða lengst í norðvestri (1. mynd). Syrpuna má rekja í norðaustur-suð- vestur stefnu og í henni eru vel- þekktar jarðlagaopnur, m.a. í Selár- dal í Arnarfirði, Öfæruvík í Dýra- Jarðlagasnið úr Þórishlíðar- fjalli í Selárdal í Arnarfirði (325 m.y.s.) Jarðlagasnið frá Botni í Súgandafirði (140 m.y.s.) 4-4- I ||L I í i E3 Dílabasalt m s II 11 II 2 ED Þóleiít 4-4- 3 I____I Gjóska 4 n Sandsteinn 5 ■§ Surtarbrandur 6 1^1 Þunn surtarbrandslög 7 I I Surtarbrandsflís 8 4-4- Blaöför 9 N/R Rétt/öfugt segulmagnað berg 2. mynd. jarðlagasnið úr Þórishlíðarfjalli í Selárdal í Arnarfirði og Botni í Súgandafirði. Jarðlagasniðið frá Botni er að hluta til byggt á gögnum frá Freysteini Sigurðssyni og Kristjáni Sæmundssyni 198454 en sniðið frá Þórishlíðarfjalti er að nokkru leyti byggt á óbirtum gögnum frá Sveini Jakobssyni 196816 og persónulegum upplýsinngum frá Birni Harðarsyni (2005). - Geological sections from Þórishlíðarfjall in Arnarfjörður and Botn in Súgandafjörður, Northwest lceland. 1. Phorphyritic tava. 2. Tholeiitic lava. 3. Tephra. 4. Sandstone. 5. Lignite. 6. Thin lignite layers. 7. Lignite splinters. 8. Plant remains, mainiy fossil leaves. 9. Magnetic polarity. 82

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.