Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 23

Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 23
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 4. mynd. Setlög í Botni í Súgandafirði. Michael A. Akhmetiev stikar stórumfrá munna gömlu surtarbrandsnámunnar. - The sediments in the Botn mine, an abandoned coalmine at the base of Súgandafjöröur. Michael A. Akhmetiev walking away from the opening of the mine. Ljósmynd/Photo: Leifur A. Símonarson 1981. firði, Botni í Súgandafirði og í Breið- hillu og hjá Gili í Bolungarvík. Set- lögin í Þórishlíðarfjalli í Selárdal eru um 20 m þykk og hvíla á 90 m þykkri dílabasaltsyrpu (2. mynd). Ofan setlaganna er um 40 m þykk hraunlagasyrpa úr basalti af þóleiít- gerð.16 Setlögin eru að mestu úr sandsteini, en fínkorna silteiningar koma fyrir hér og þar og í efri hlut- anum má einnig sjá völuberg. í set- inu er allmikið af gosrænu efni, einkum gjósku (3. mynd). Mest ber á basaltefni en í ákveðnum lögum er áberandi mikið af hvítum og gul- leitum vikurmolum í hörðu setinu. Jóhannes Askelsson2 benti á að plöntuleifar væru í nokkurra senti- metra þykku gjóskulagi í miðri set- lagasyrpunni, en rannsóknir okkar leiddu í ljós að þó að áberandi lag- flötur sé þar með plöntuleifum þá er einnig nokkuð um plöntuleifar annars staðar í setlögunum. Einnig kom í ljós að við lagflötinn með plöntuleifunum eru laufblöð sem liggja ekki aðeins lárétt, samsíða lagskiptingu setsins, því að sum blöðin eru á ská og önnur meira eða minna lóðrétt. Gæti þetta bent til þess að blöðin hafi flust til samfara setefninu í eins konar gjóskuskýi, sem reif með sér blöðin af trjánum þegar það reið yfir skóglendið á svæðinu. I R Míllj. ára 13,53 ------ N ? N m 200 180 160 140 120 100 80 60 40 20 0 4-4- 1 Ib 11 Dílabasalt 2 HMH Ólivínbasalt 3 l-i*i I Þóleiít 4 ES3 Völuberg 5 BB Sandsteinn 6 !■ Siltsteinn 7 H Surtarbrandur 8 4-4- Blaðför 9 N/R Rétt/öfugt segulmagnað berg 5. mynd. Jarðlagasnið úr innanverðum Lambadal í Dýrfirði, fjallinu Töflu ofan Ketilseyrar í Dýrafirði og úr Hrútagili í Mókollsdal í Kollafirði. - Geological sections from the Lambadalur valley and the Mount Tafla above Ketilseyri in Dýrafjörður andfrom Hrútagil in Mókollsdalur in Kollafjörður. 1. Phorhyritic lava. 2. Olivine thoieiitic lava. 3. Tholeiitic lava. 4. Conglomerate. 5. Sandstone. 6. Siltstone. 7. Lignite. 8. Plant remains, mainlyfossil leaves. 9. Magiíetic polarity. 83

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.