Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2006, Side 45

Náttúrufræðingurinn - 2006, Side 45
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 4. mynd. Búrin voru sótt um miðjan september, kræklingarnir losaðir úr búrunum ogfrystir þegar í land var komið. Næsta skref var að gera ýmsar mælingar á og í kræklingunum. - The cages were retrieved in mid-September, the mussels released from the cages and then put into afreezer. The next step was to make various measurements in the mussels. Ljósm./Photo: Halldór P. HaUdórsson/Jóhanna B. Weisshappel. voru 120 kræklingar (lengd skelja: 40-45 mm) sem var deilt jafnt niður í þrjú búr (20 kræklingar í hverju hólfi). Reynt var að velja eingöngu einstaklinga í góðu ástandi í búrin. í byrjun júlí voru 6 lagnir færðar á jafnmargar stöðvar utan við Grund- artanga og Katanes og hafðar þar í 2 mánuði. Ein lögn var sett í frysti sem viðmiðunarsýni 1 og ein höfð áfram á viðmiðunarstaðnum í tvo mánuði (viðmiðunarsýni 2). Eftirlitsferð var farin eftir mitt ræktunartímabilið. Um miðjan september voru lagnirn- ar teknar upp, kræklingarnir losaðir úr búrunum (4. mynd) og frystir þegar í land var komið. Áherslur við ræktun í rannsókninni var mikið lagt upp úr því að skapa sem bestar aðstæð- ur fyrir kræklingana í búrunum. Stuðst var við staðlaðar aðferðir við kræklingavöktun, m.a. ASTM-stað- alinn frá árinu 2001.12 Þess var gætt að kræklingarnir gætu óhindrað síað sjó allan ræktunartímann og hefðu gott rými til vaxtar. Einnig var þess vandlega gætt að kræk- lingarnir löskuðust ekki við með- höndlun. Mælingar að ræktun lokinni Á Rannsóknastöðinni í Sandgerði var dánartíðni kræklinganna metin. Því næst voru 50 einstaklingar af svipaðri lengd (~ 55 mm) valdir af hvoru dýpi úr hverri lögn og þeir mældir með tilliti til vaxtar og holdafars (lengd, hæð, þykkt skelja, heildarþyngd kræklinga, þyngd vöðva og þyngd skelja). Á vegum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins voru eftirtaldir þætt- ir mældir í mjúkvef: • Þurrefni, aska, salt og fita. • 23 PAH, 8 þungmálmar (járn, kadmín, kopar, króm, kvika- silfur, nikkel, sink, vanadín), selen, arsen, blý, ál og flúor. Niðurstöður mælinganna lágu fyrir fyrri hluta árs 2005 og verður fjallað stuttlega um þær hér á eftir. Að ýmsu þarf að huga Að mati greinarhöfundar er eftir- litsferð á miðju ræktunartímabilinu, að loknum hrygningartíma kræk- linganna, mikilvægur hluti af vökt- un á mengunarástandi sjávar með hjálp kræklinga. í rannsókninni í Hvalfirði sumarið 2004 voru búrin tekin upp eftir að hafa verið í rúm- lega einn mánuð á stöðvum og við- miðunarstað. Tilgangurinn var að kanna ástand búra og kræklinga. I ljós kom að búrin voru nánast þak- in 1-2 mm stóru kræklinga-ungviði, auk nokkurs magns þörunga og ásæta á borð við hrúðurkarla og mosadýr (5. mynd). Búrin voru burstuð að utan, ofangreindar líf- verur fjarlægðar og búrin sjósett á ný (6. mynd). I rannsókn sem þessari er nauð- synlegt að hafa kræklingana í sjó- num í a.m.k. einn mánuð eftir að hrygningu lýkur svo að þeir geti safnað í sig mengunarefnum í stað þess magns sem hugsanlega var los- að með kynvef við hrygningu.13 Þó verður að gæta þess að kræklingarn- ir séu ekki hafðir of lengi í sjó (2-3 mánuðir duga vel) svo að tryggt sé að sá styrkur mengunarefna sem mælist í þeim sýni raunverulegt ástand sjávar hverju sinni. Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að skeldýr sem eru lengi í sjó menguðum af þung- málmum geta aðlagast aðstæðum með myndun málmþíonína (afeitr- unarprótín) sem geta komið af stað útskilnaði málmanna úr vefjum dýr- anna. Einnig er meiri hætta á að búr tapist eða verði fyrir áföllum af völdum utanaðkomandi þátta eftir 105

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.