Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2006, Side 46

Náttúrufræðingurinn - 2006, Side 46
Náttúrufræðingurinn 5. mynd. íeftirlitsferð eftir að búrin höfðu veriðá stöðvum og á viðmiðunarstað í rúman mánuð kotn íIjós aðþau voru þakin ungviði kræk- linga. Greinarhöfundur er efst til vinstri á myndinni. - A good month after the cages were placed at the stations and control site, an in- spection revealed that they zvere almost covered with juvenile mussels. Ljóstn./Photo: Halldór P. Halldórsson/Jóhanna B. Weisshappel. því sem þau eru höfð lengur í sjó. Skipaumferð um vöktunarsvæðið getur haft slík áhrif, auk þess sem t.d. æðarfuglar og krossfiskar eru sólgnir í krækling (7. mynd). Rækt- un að sumarlagi er einnig talin mun öruggari en á öðrum árstímum þar sem hætta er á að slæm veður, ísing og meiri ólga sjávar geti skaðað búr- in á öðrum árstímum. Niðurstöður OGÁLYKTANIR Ræktun kræklinga Að lokinni ræktun kræklinganna kom í ljós að kræklingarnir höfðu dafnað vel allan ræktunartímann og dánartíðni var mjög lítil. Að meðal- tali voru átta kræklingar dauðir af 120 á hvoru dýpi eða 6,4% (staðal- frávik 2,4). Skoðun á skeljum dauðra kræklinga benti til þess að þeir hefðu verið dauðir eða nær dauðir í upphafi rartnsóknarinnar. Þegar kræklingarnir voru valdir í upphafi var oft erfitt að ganga úr skugga um ástand þeirra. Þetta sýn- ir að í rannsókn sem þessari ætti ekki að velja einstaklinga sem vafi leikur á að séu í góðu ástandi. Hér er þó bent á að 120 kræklingar á hvoru dýpi er ríflegt magn til mæl- inga. Því gefur fjöldi kræklinga í búrum ákveðið svigrúm hvað varð- ar þætti sem erfitt er að ráða við í slíkum rannsóknum. Ljóst er að ef búrin hefðu ekki ver- ið hreinsuð að utan í eftirlitsferðinni hefði sjór ekki átt jafngreiða leið í gegnum þau á seinni hluta ræktun- artímabilsins. Þá er hugsanlegt að minna streymi sjávar inn í búrin hefði haft áhrif á niðurstöður mæl- inganna. Rannsóknin í Hvalfirði sýndi að ef farið er eftir stöðluðum aðferð- um, þess gætt að dýrin séu í góðu ástandi í upphafi, geti síað sjó óhindrað allan ræktunartímann og hafi gott pláss til vaxtar, eiga kræk- lingarnir að dafna vel í búrunum. Gera má ráð fyrir að sá styrkur mengunarefna sem mælist í kræk- lingi sem „líður vel" endurspegli raunverulegt ástand sjávar yfir ræktunartímabilið eða að minnsta kosti þess hluta sem aðgengilegur er lífverum á borð við kræklinga. 106

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.