Náttúrufræðingurinn - 2006, Blaðsíða 56
Náttúrufræðingurinn
hefur látið bora eftir heitu vatni
með stórum jarðborum frá Jarðbor-
unum ríkisins og Jarðborunum hf. á
Suðurreykjum og í Mosfellsdal í
Mosfellssveit, Reykjavík og á Nesja-
völlum í Grafningi til húshitunar í
Reykjavík og öllum nágrannasveit-
arfélögunum nema í Seltjarnarnes-
kaupstað.
Hitaveita Reykjavíkur og Raf-
magnsveita Reykjavíkur voru sam-
einaðar undir nafninu Orkuveita
Reykjavíkur í ársbyrjun 1999. Réttu
ári síðar sameinaðist Vatnsveita
Reykjavíkur Orkuveitu Reykjavíkur.
Rafmagnsveita Reykjavíkur og
síðar Hitaveita Reykjavíkur stóð
fyrir jarðborunum í leit að hita og
vatni með eigin borum allt til janú-
ar 1965. Gullborinn var einn af
þremur litlum jarðborum í þeim
borflota.
Með Gullbornum voru alls borað-
ar 76 holur, samtals 21.246 metrar
að lengd. Þar af voru boraðar fjórar
holur eftir köldu vatni á Miðnes-
heiði á stríðsárunum fyrir banda-
ríska setuliðið, tvær holur, einnig
eftir köldu vatni, í Keflavík fyrir
Keflavíkurhrepp, ein hitaleitarhola
á Hliði á Alftanesi fyrir Sigurð Jón-
asson forstjóra (1896-1965) og ein
kjarnahola við Sogið í Grímsnesi til
rannsóknar á virkjun Irafoss.
Gullborinn stóð lengi á síðustu
holunni sem boruð var með honum
- sjávar- og vestanmegin við Aburð-
arverksmiðjuna í Gufunesi (4.
mynd). Jóhannes Zoéga (1917-2004)
verkfræðingur, hitaveitustjóri Hita-
veitu Reykjavíkur 1962-1987, lét
gera Gullborinn upp og setja á Ar-
bæjarsafnið í Reykjavík vorið 1978.
Aður hefur verið minnst á að
þýska höggbornum frá 1907 hafi
verið ruglað saman við hinn eina
sanna Gullbor - þýska haglaborinn
- á Arbæjarsafninu. Eins er danska
og þýska höggbornum ruglað sam-
an. Magnús Ólafsson (1862-1937)
ljósmyndari í Reykjavík tók með
vissu myndir af danska höggborn-
um í Gullmýrinni árið 1905. Ljós-
myndir Magnúar eru varðveittar á
Ljósmyndasafni Reykjavíkur og á
Þjóðminjasafninu. Sigfús Eymunds-
son bóksali í Reykjavík gaf út póst-
kort með einni myndinni. Sam-
kvæmt viðtali höfundar vorið 2006
við frú Ragnheiði Vigfúsdóttur,
safnara í Reykjavík, var útliti póst-
korta breytt árið 1906. Póstkort Sig-
fúsar af höggbornum í Gullmýrinni
er eins og þau voru fyrir breytingu.
Myndir af danska höggbornum
prýða endurminningar Knud Zim-
sen borgarstjóra, ævisögu Sigur-
björns Þorkelssonar kaupmanns í
Vísi og eitt rit Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins í stað þýska
haglaborsins.36
Gullborinn er einn fárra jarðbora
á Islandi sem náðu því að verða
tækniminjar en ekki brotajárn til
endurvinnslu.
Eftirmáli
Bygging Landspítalans sunnanmeg-
in í Skólavörðuholtinu hófst á þriðja
áratug síðustu aldar. Hornsteinn var
lagður 15. júní 1926 við hátíðlega at-
höfn að viðstöddum konungi Is-
lands, Kristjáni X. (1870-1947), og
ÁEafcfr. j|||rr . ag Wttk ■ '7' i||yg|gygjj
5. mynd. Gullholan frá 1922 eins og hún leit út vorið 2004. Holustúturinn sem þartia sést er þó ekki frá 1922, hann hefur líklega ver-
ið endurnýjaður um fyrir miðja 20. öld. Leikskólinn Sólbakki í baksýn. (Ljósm. Þ.J.)
116