Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2006, Síða 61

Náttúrufræðingurinn - 2006, Síða 61
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Páll Einarsson BREIÐBOBBINN (OXYCHILUS DRAPARNAUDI (BECK, 1837)) ENDURFUNDINN Á ÍSLANDI Igrein Árna Einarssonar1 um landkuðunga á íslandi er m.a. fjallað um nýfundna tegund, Oxychilus draparnaudi (Beck, 1837), sem hann nefnir breiðbobba. Breið- bobbann fann Árni við Tjörnina í Reykjavík árið 1965, en þegar greinin var skrifuð hafði hann ekki fundið hann um nokkurra ára skeið þrátt fyrir talsverða eftirgrennslan. Helst leit út fyrir að tegundin hefði dáið út hér á landi. Leið nú fram til 1989 en þá flutti ég í íbúð að Lauf- ásvegi 26 í Reykjavík. Þegar farið var að róta í garðinum við húsið kom í ljós að þar lifði breiðbobbinn góðu lífi í grasi og laufhrúgum (1. mynd). Einnig kom í Ijós að hann lifði á nálægum lóðum, einkum á gamalli óræktarlóð á mótum Lauf- ásvegar og Hellusunds þar sem síð- ar var byggt yfir sendiráð Bretlands og Þýskalands. Síðar fannst breið- bobbi við Hólavallagötu, Hólatorg og Fjólugötu svo hann hefur greini- lega náð góðri fótfestu umhverfis Kvosina í Reykjavík. Auk þessara staða eru skráðir í gagnagrunn Náttúrufræðistofnunar fundarstað- ir við Ásvallagötu árið 1998 og í Hafnarfirði, við Hraunbrún árið 2003 og Norðurbraut árið 2004. 1. mynd. Breiðbobbi áferð ígarðinum að Laufásvegi 26. Blái liturinn er einkennandifyr- ir dýrið. - Oxychilus draparnaudi moving about in a garden in central Reykjavík. The blue colour ofthe animal is one ofthe characteristics ofthe species. Ljósm./Photo: Oddur Sigurðsson. Náttúrufræðingurinn 74 (3^), bls. 121-123, 2006 121

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.