Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2006, Side 69

Náttúrufræðingurinn - 2006, Side 69
Náttúrufræðingurinn Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags A NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Alþýðlegt fræðslurit um náttúrufræði 74. árg. 3.-4. tbl. 2006 Leiðbeiningartil HÖFUNDAUM FRÁGANG GREINA Hér á eftir fara leiðbeiningar sem stjórn HÍN hefur sampykkt um frágang greina sem höfundar eru vinsamlega beðnir að kynna sér og fylgja þegar þeir ganga frá handriti til Náttúrufræðingsins. Almennt Náttúrufræðingnum var hleypt af stokkunum árið 1931 til þess að vera alþýðlegt fræðirit um náttúrufræði handa Islendingum og hefur ritstjórnarstefna hans verið óbreytt að þessu leyti frá upphafi. Höfundar eru beðnir um að hafa þetta í huga við skriftirnar. Náttúrufræðingurinn birtir efni um öll svið náttúrufræða og má skipta því í fimm flokka: (1) alþýðlegar yfirlitsgreinar um ákveðin svið, (2) hefðbundnar greinar um rann- sóknir og niðurstöður þeirra, (3) athugasemdir, fréttir og tilkynn- ingar, (4) gagnrýni og ritfregnir um náttúrufræðileg efni og (5) eftir- mæli um náttúrufræðinga. Al- mennt er óskað eftir því að greinar séu stuttar og hnitmiðaðar. Mælst er til þess að greinar í öðrum flokki séu ekki lengri en 16 prentaðar síður (A4) og að þeim fylgi enskt yfirlit sem og töflu- og mynda- textar á ensku. Aðrar greinar eiga að vera mun styttri og ekki er ætlast til að þeim fylgi enskir textar. Ritstjórn fer yfir handrit og getur gert tillögur til höfunda um breytingar á þeim. Greinar í fyrsta og öðrum flokki fá faglega ritrýni eins og tíðkast í vísindatímaritum. í því skyni leitar ritstjórn umsagnar færustu manna á hverju sviði um efni greina og sendir þær athugasemdir til höfunda. Handrit Handriti að grein skulu höfundar skila á tölvutæku formi ásamt útprentun á A4-pappír. Spássíur skulu vera rúmar (>3 cm) fyrir leiðréttingar og ábendingar. Blað- síður skulu tölusettar. Kynning á vef HÍN Ágrip á íslensku til birtingar á vef Hins íslenska náttúrufræðifélags (http://www.hin.is) skal fylgja greinum sem fjalla um alþýðlegar yfirlitsgreinar (fyrsti flokkur), hefð- bundnum greinum um rannsóknir (2. flokkur) og eftirmæli (5. flokkur). Ágripið á að draga fram meginatriði greinar í stuttu máli. Æskilegt er að lengd þess sé ekki meiri en 250 orð. Með ágripinu eiga að fylgja allt að sex lykilorð sem eru lýsandi fyrir efni greinarinnar. Framsetning og niðurröðun efnis Höfundar eru hvattir til þess að vanda frágang handrita svo sem framast er kostur og fylgja þeim leiðbeiningum sem hér eru gefnar. Þeim er jafnframt bent á að skoða frágang greina í nýjustu heftum Náttúrufræðingsins hverju sinni og hafa til fyrirmyndar við vinnslu handrita. 1. Titilsíða gefur heiti greinar og skal það vera stutt og gefa glögga mynd af því sem greinin fjallar um. Undir heiti komi nafn höfundar/ höfunda, stutt lýsing á ferli þeirra og heimilisfang (póst- og netfang). 2. Texti. Inngangur skal vera stuttur og gefa til kynna um hvað greinin fjallar eða af hvaða tilefni hún er skrifuð. Um greinar í öðrum flokki gildir að í inngangi (Intro- duction) skal gera grein fyrir fræðilegum bakgrunni efnis, kynna að því búnu aðferðir, niðurstöður og umræðu. Aðalfyrirsögn skal vera stutt og gagnorð og segja ótvírætt um hvað kaflinn fjallar. Millifyr irsagnir má hafa til þess að skipta köflum upp í smærri einingar. Erlend orð skal nota sem allra minnst. Þar sem ekki verður hjá því komist skulu þau höfð í „gæsalöppum", (innan sviga) eða skáletruð, eftir því sem við á hverju sinni. Þegar um nýyrði er að ræða er æskilegt að hafa með erlend orð sömu merkingar til glöggvunar. Latnesk tegunda- og ættkvíslaheiti dýra og plantna prentast skáletruð (nema í skáletruðum texta þar sem þau eru prentuð með beinu letri). Tilvitnanir í heimildir skulu auð- kenndar með hlaupandi númerum innan sviga; sú heimild sem kemur fyrst fyrir verður þá númer (1) o.s.frv. íslenskir höfundar skulu nefndir fullu nafni. Sé vitnað í einstakling sem heimild að óbirtum upplýsingum, skal hans getið með nafni í meginmáli en ekki í heimildaskrá. 129

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.