Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 13
Landmótun í
Norðurardal
EFTIR ÍSÖLD
STURLA FRIÐRIKSSON
Þegar meginjökullinn tók að hopa af
hálendi Islands í lok síðasta jökul-
skeiðs hörfuðu jökultungur nokkuð
sem lágu niður dali Borgarfjarðar
og fram Mýrar. Við afturkipp í
hlýnandi veðurfari voru jökulranar
samt enn skríðandi af heiðum ofan
niður Norðurárdal og um Þverár-
hlíð, fram að láglendi héraðs. Þetta
var fyrir 12.000 árum, á svonefndu
Alftanesskeiði. Jökultungan sem lá
um Norðurárdal mœtti á þessari leið
sinni talsverðri fyrirstöðu við ásana í
mynni dalsins. Þetta eru hœðirnar
milli bœjanna Laxfoss og Munaðar-
ness í Mýrasýslu.
egar loftslag tók að hlýna á ný
og jöklar héldu áfram að hörfa
dvaldist jaðar jökultungunnar
samt um tíma norðan við þessa
sömu fyrirstöðu, við ásana fyrir utan dalinn.
Nokkur stöðnun hafði enn orðið í
hlýnuninni og hlóðust þá upp ruðnings-
garðar, sem nú má sjá liggja báðum megin
Norðurár við Laxfoss. Kann þetta að hafa
verið fyrir 10.000 árum, eða á svonefndu
Búðaskeiði. Fylgja má þessum görðum frá
syðri bakka árinnar við Eyrina, urn
Fossvaðið, yfir þjóðveginn og upp undir
Dr. Sturla Friðriksson (f. 1922) er erfðafræðingur,
fyrrverandi deildarstjóri jarðræktardeildar Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins. Hann var utn tfma
formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags.
Laxfosshálsinn, rétt norðan við útihús á
Laxfossbænum, en þar hefur Vegagerð
ríkisins stundað malarnám úr einni
ruðningsöldunni.
Jökultunga úr meginjöklinum á Arnar-
vatnsheiði í framhaldi af Langjökli lá þá
niður um eystri Borgarfjarðardalina, en gekk
einnig vestur um Hvítársíðu, Þverárhlíð og
Norðurárdal. Gengu þannig jökultungur
báðum rnegin við Hallarmúla. Framrás og
skriðstefnu vestari jökultungunnar til
suðvesturs má sjá í jökulrispum á hefluðum
klöppum og hvalbökum víða í dalnum, t.d. á
Neðsta-Stalli, sem Veiðilækjarvegur liggur
um. Og vestlægar rákir eru á Hallarmúla
(Guðmundur Kjartansson 1968). Vel kann að
vera að Þverárhlíðartungan hafi sveigst
nokkuð til vesturs og sameinast Norðurár-
dalsjöklinum. Jökull, sem skreið vestan
Hallarmúla, hefur skilið eftir jökulurð við
Almenninginn í Norðurá og rutt grjóti og
salla upp á Rjúpnahæðina, þar sem veiðihús
hefur verið reist. Hafa þessir jöklar jafnvel
teygt sig fram fyrir mynni Norðurárdals og
þannig lokað dalnum (1. rnynd).
■ JÖKULLÓN
Asarnir fyrir franran mynni dalsins og
jökultungan urðu sú fyrirstaða er hefti
framgang leysingavatnsins. A síðjökultíma
hefur því að baki ásanna legið stórt jökullón
sem hefur fyllt dalinn, jafnvel allt upp undir
Króksfoss, og hefur á einum tíma getað
verið enn stærra og víðáttumeira (1. rnynd).
11
Náttúrufræðingurinn 69 (1), bls. 11-18, 1999.