Náttúrufræðingurinn - 1999, Síða 59
r
Migralions of Hernngs
between
4. mynd. Göngur Norðurlandssíldarinnar milli íslands og
Noregs voru sannaðar með merkingum (Árni Friðriksson &
Aasen 1950).
myndir sínar um göng-
ur síldarinnar og lifn-
aðarhætti. Bókinni
fylgdi ítarlegt ágrip á
ensku og var hún sann-
kallað tímamótaverk. 1
annan stað tók Arni sér
ferð á hendur vorið
1944 til Bandaríkjanna
því að þar hafði hann
frétt af nýrri aðferð til
að merkja síld. I stað
þess að festa útvortis-
merki á bak síldarinnar
fólst þessi nýja aðferð í
því að lítilli stálplötu
var komið fyrir í
kviðarholi síldarinnar.
Merkin voru síðan
endurheimt í síldar-
verksmiðjunum á raf-
seglum sem síldar-
mjölið fór fram hjá eftir
að síldin hafði verið
brædd. Þar sem allar
merkingartilraunir með
hefðbundnum aðferð-
um höfðu mistekist
þótti Árna nauðsyn-
legt að kynnast þessari nýju aðferð og strax
eftir að styrjöldinni lauk hóf hann í
samvinnu við norska starfsbræður sína,
einkum Olav Aasen, að undirbúa síldar-
merkingar. Fyrstu merkingarnar hér við land
fóru fram sumarið 1948 og strax á vetrar-
vertíðinni 1949 komu fyrstu endurheimturn-
ar fram við vesturströnd Noregs (4. mynd).
Þannig sannaðist að Ámi hafði haft rétt fyrir
sér, 14 árum eftir að hann setti ffam hugmyndir
sínar í tímaritinu Ægi 1935. Þessum
síldarmerkingum var fram haldið í 20 ár, eða
uns norsk-íslenski sfldarstofninn hrundi í lok
7. áratugarins. Á þeim tíma komu fram mörg
þúsund merki í Noregi úr sfld sem merkt hafði
verið við ísland og einnig fjöldi merkja á
íslandi úr sfld sem merkt hafði verið á
hrygningarslóðinni við Noreg. Niðurstöður
merkinganna sýndu ekki einungis göngur
síldarinnar heldur reyndist unnt að nota
hlutfall endurheimtra íslenskra merkja við
Noreg til þess að meta stærð sfldarstofnsins í
byrjun 7. áratugarins. Eins og nærri má geta
varð Ámi víðfrægur af þessum rannsóknum,
enda þótt norskir starfsbræður ættu ákaflega
erfitt með að kyngja því að það hefði verið
Islendingur sem komst að hinu sanna um
göngur norsku vorgotssfldarinnar, eins og
þeir kalla gjaman þennan sfldarstofn. Meira að
segja Finn Devold, helsti sfldarsérfræðingur
Norðmanna á þessum ámm og mikill og góður
kunningi Áma, lagði sitt af mörkum til að þegja
niðurstöðumar í hel og eigna sjálfum sér og
öðrum norskum starfsbræðrum heiðurinn.
Til að fylgja merkingunum eftir kom Árni
Friðriksson því til leiðar að nýtt fiskileitar-
tæki (Asdic) var setl urn borð í varðskipið
Ægi árið 1953 og má segja að það hafi
markað tímamót í sfldarrannsóknum og sfld-
veiðum íslendinga, því allir vita hve gífurleg
aflaaukning varð í sfldveiðunum með til-
komu þessara tækja.
57