Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1980, Síða 10

Náttúrufræðingurinn - 1980, Síða 10
2. mynd. Birkihrísla sem orðið hefur illa úti — olnbogabarn í gróðurríki Islands. arnar voru brotnar og allur börkur flettur af þeim. Fólk þar i sveitinni kunni frá því að segja, að fyrir 50 árum hefði þarna staðið hinn fegursti birkiskógur, sem varla mun nú eiga nokkurn sinn líka á landinu, svo var hann beinvaxinn og trén vel fallin til raftviðar og að smíða úr þeim sleða og hvers konar nauðsynleg verkfæri . . . Eggert og Bjarni lýsa aðferðum sem tíðkuðust við skógarhögg. Þeir segja: Til þess að gefa hugmynd um skógar- högg viljum við taka Húsafellsskóg til dæmis, en hann er einn hinn vöxtulegasti skógur á íslandi. Flestir Borgfirðingar sækja þangað við til húsagerðar. Sá hluti skógar þessa, sem kallast gæti því nafni eftir erlendri málvenju, er nálægt mílu á lengd og fjórðungi mílu á breidd, en ef með er talinn sá skógur sem liggur sunnan Hvítár er hann miklu víðlendari. Meðalstór tré í honum eru sex álna há og handleggsgild. Flest trén eru kræklótt. Þeir sem höggva i skóginum verða að gjalda prestinum á Húsafelli fyrir við og kol. . . . Mönnum er vísað á þá staði sem höggva má, en allt um það hefur skóg- urinn eyðst mjög á síðastliðnum hundrað árum. Sérstaklega hefur honum hnignað vegna þess að leyft er að höggva hann á öllum árstímum og menn látnir sjálfráðir um, hvað höggvið er, hvort heldur það er ungviði eða gömul tré. Menn sækjast jafnvel mest eftir ungviðinu, jrví að þeir halda því fram að það sé betra til kola- gerðar og þar að auki auðunnarra en hitt . . . Sveinn læknir Pálsson, sem var í rannsóknarferð á Austurlandi árið 1797 lýsir þungum áhyggjum af yfirvofandi örlögum Hallormsstaðaskógar, sem hann segir að se einn besti skógur á landinu. Hann lýsir fyrst staðháttum þar með fögrum orðum en segir svo: • • • en svo mun fara um þetta fagra hérað sem aðrar skógarsveitir á íslandi. Það verður lagt í örtröð til skammar fyrir aldna og skaða fyrir óborna. Alls staðar og þó einkum hjá Hall- ormsstað og innst í dalnum blasa við hryggileg verksummerki. Hin fegurstu 4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.