Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 12

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 12
Fyrir áeggjan Magnúsar Stephensen yfirdómara flutti Bjarni kaupmaður Sí- vertsen í Hafnarfirði inn trjáplöntur. Svo segir í „íslenzkum sagnablöðum“ 1817: Kaupmaöur riddari Bjarni Sigurðsson flutti hingað á árinu 1813 500 viðar- plöntur af ýmsurn tegundum frá Skot- landi, svo enn væri tilreynt að koma hér upp skógi. Sú ógæfa vildi til að hann átti útivist langa í þetta sinn, mætti hrakn- ingum og varð að afferma skip sitt i Orkneyjum og bæta skaða þann er hann hafði fengiö í hafinu. Vegna þessara slysa voru nokkrar viðarplöntur hans, er hingað kom, nær dauða en lifi og sumar aldeilis viðskila. Sumar plöntur setti hann niður í Hafnarfirði og þó einstakar hafi síðan útdáið, eru þó fleiri lifandi og hafa náð nokkrum þroska . . . Trjáræktartilraunir báru meiri árangur á Norðurlandi. Um 1820 var hafin trjárækt á Skriðu í Hörgárdal. Jón bóndi Kærnested fór til Danmerkur og nam akuryrkju og garðrækt. Árið 1824 kom út í Viðey garðyrkjubæklingur eftir hann með leiðarvísi um trjárækt. Þar segir í lokin: Trjáviðarplöntunaraðferð er voru skóglausa landi yfrið nauðsynleg. Satt er það, að vér fáum ekki strax notið gagns- muna hennar. En þó vér dæjum fyrr en vér nytum þeirra, mundi meðvitund sú, að hafa bæði með trjáviðarplöntun og fleiru nytsamlegu gagnast eftirkomend- unum, auka allra velþenkjandi hugar rósemi. Jafnhliða því sem gerðar voru til- raunir með trjárækt fóru menn að vara við illri meðferð skóganna sem eftir 3. mynd. Austustu rofin í Bæjarstaðaskógi. Myndin er tekin árið sem skógurinn var girtur árið 1934. Ljósm. Hákon Bjarnason. 6

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.