Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 3
Jóhannes F. Skaftson og
Þorkell Jóhannesson:
Klórkolefnissambönd í
íslenskum vatnasilungi
INNGANGUR
í Rannsóknarstofu í lyfjafræði hcfur
verið fylgst með ýmsum klórkolefnis-
samböndum í smjörfitu allt frá árinu
1968. Vareinkum leitast við að ákvarða
DDT (klófenótan) og umbrotsefni þess
(DDE og DDD), ísómera hexaklór-
cýklohexans (alfa-, beta- og gammaísó-
mera), en síðar einnig hexaklórbenzen
(HCB) og að nokkru leyti pólýklór-
bífenýlsambönd (PCB-efni).
Af þessum efnum hefur notkun ísó-
mera hexaklórxýklóhexans (HCH) senni-
lega verið útbreiddust hér á landi, en
blanda þeirra hefur verið og er enn not-
uð til þess að útrýma kláðamaur í sauðfé
(Gammatox (R)). Sama gildir og um
mörg önnur lönd. Af ísómerum hcxa-
klórcýklóhexans er gamma-ísómerinn
virkastur gegn maurum og skordýrum.
Hann nefnist lindan (hexicíð). Er það
efni enn fremur notað í garðyrkju, eink-
um við rófnarækt (sbr. Jóhannes
Skaftason & borkell Jóhannesson
1979a). Notkun DDT hefur á undan-
förnum áruni hér á landi og i nálægum
löndum fyrst og Iremst verið bundin við
óþrif á mönnum og dýrum, öðrum en
mjólkurdýrum. Vera má, að hexaklór-
benzen hafi verið lítið citt notað í garð-
yrkju gcgn sveppum hér á landi. Er-
lendis cr hexaklórbenzen talsvert notað
m. a. í iðnaði og til þess að varna fúa í
tré, en getur einnig myndast við fram-
leiðslu sumra klórkolefnissambanda og
við bruna á þeim (Niimi 1979). Erfitt er
að átta sig á notkun PCB-efna hér á
landi. Þcssi efni liafa m. a. verið notuð
til einangrunar í rafkerfum og í hcntla-
kerfum viða unt heim. Þá hafa cfni þessi
verið notuð í pappírsiðnaði o. II. PCB-
cfni eru mjög hilaþolin og cr leitun á
fljótandi cfnum með betri rafeinangr-
andi og hitaeinangrandi eiginleika í
rafkerfum. PCB-efni eru talin stöðugri í
náttúrulegu umhvcrfi en flest önnur
NáttúruíræAingiirinn, .r)l (3), bls. 97— 104, 19111
97
7