Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 6
Úlfsvatni (9—10 ára). Aðrir silungar
voru taldir vera á aldrinum 4 — 7 ára.
Einn silungur (bleikja) úr Elliðavatni
var ákaflcga magur (fita 0,3%; aldur 6
ár ± 1; þyngd 370 g). I holdi þessa
silungs urðu engin klórkolefnissambönd
mæld og er honum því sleppt hér. I öll-
um hinum silungunum (15 talsins) urðu
mæld einhver klórkolefnissambönd í
mismunandi magni.
I flestum sýnum var magn PGB-efna
unt það bil 100 ng/g eða ef til vill á
bilinu 100 — 200 ng/g (greiningarmörk
ca. 100 ng/g). DDT eða umbrotsefni
jtess DDD varð livorki greint né mælt í
nokkru silungssýni (greiningarmörk
5—10 ng/g). Annað umbrotsefni DDT,
DDE, var liitis vegar greint, ca. 5 ng/g, í
silungssýnum úr Apavatni, en ekki í sil-
ungi úr öðrurn vötnum. Beta- eða
gamma-ísómerar hexaklórcýklóhexans
urðu ekki greindir i silungssýnum
(greiningarmörk 5—10 ng/g). Alfa-
ísómer hexaklórcýklóhexans og hexa-
klórbenzen voru hins vegar i mælanlegu
magni i öllum silungssýnum. Niður-
stöðutölur voru á þann veg, að rétt jrótti
að taka niðurstöðutölur frá silungum úr
Apavatni sér og niðurstöðutölur frá sil-
ungum úr öllum öðrum vötnum saman.
í Töflu I eru sýndar niðurstöðutölur
rannsókna á ellefu silungum úr öðrum
vötnum en Apavatni. Fitumagnið var á
bilinu 1,5 — 5,5'/, að meðaltali 3,6%.
Tafla I. Fita (%), HCB (ng/g fitu), alfa-HCH (ng/g fitu) i 5 bleikjum (b) og 6 urriðum (u) úr
fimm stöðuvötnum og þyngd jjeirra (g). Neðst eru sýnd mcðaltalsgildi og stöðluð frávik frá
meðaltalsgildum (S. D.). (b) aftan við númer silungs í öðrum dálki frá vinstri merkir bleikja
(iSalvelinus alpinus) og (u) urriði (Salmo trutta). — Fat (%J, ÍICB (ng/g fal), alfa-IICIi (ng/g fat)
in 5 charrs (h) and 6 trouts (u) and thcir body wcighls (g). Mean values and standard deviations (S. D.)
are shown at bottom.
Staður Nr. Fita (%) IICB * Alfa-HCH** h'ngd (g)
Locality Fat (%) (ng!g) (ngtg) Weight (g)
Elliðavatn 1 (b) 3,6 15 70 370
Elliðavatn 2 (u) 4,4 25 35 700
Elliðavatn 3 (u) 1,5 35 35 450
Eyjalón 4 (b) 5,5 25 20 960
Eyjalón 5(b) 4,0 50 30 820
Litla-Arnarvatn 6 (b) 2,5 20 120 560
Litla-Arnarvatn 7 (u) 4,2 35 120 940
Ulfsvatn 8 (b) 3,8 40 80 485
Úlfsvatn 9 (u) 3,8 40 105 485
Kálfdalavatn 10 (u) 3,5 30 85 150
Kálfdalavatn 11 (u) 3,0 25 65 140
Meðaltöl;
(Means): 3,6 30,9 69,5 551
S. D.: 1,04 10,2 36,2 282
*Hcxaklórbenzen (hexachlorobenzene).
**alfa-ísómer hexaklórcýklóhcxans (alfa-isomer of hexachlorocyclohexane).
100