Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 75
Ólafur G. Flóvenz:
Jarðhitinn á Reykjum
í Fnjóskadal
INNGANGUR
Reykir eru fremsti bær í byggð í
Fnjóskadal, en Vaðlaheiði skilur
Fnjóskadal frá Eyjafirði. Þeir eru und-
ir fjallshlíðinni vestanvert í dalnum,
skammt sunnan ármóta Fnjóskár, sem
fellur úr Bleiksmýrardal, og Tunguár
sem fellur úr Timburvalladal. Bærinn
er í u. þ. b. 200 m hæð yfir sjávarmáli.
Á Reykjum er jarðhiti, eins og nafnið
ber með sér. Á sléttum malareyrum
Fnjóskár koma um 5 1/s (lítrar á
sekúndu) af 90° C vatni upp í tveimur
laugum með fárra metra millibili. Á 1.
mynd, sem tekin er í nóvember 1979,
má glögglega sjá hvernig jarðhitinn
bræðir af sér snjóinn á stóru svæði
kringum laugarnar. Pá er einfaldað
riss af aðstæðum sýnt á 2. mynd.
Snemma á öldinni var vatnsmeiri
laugin byrgð og vatnið úr laugunum
látið renna í lokaðri rás undir kartöflu-
garð til að hita hann upp. Eftir að
vatnið kemur undan kartöflugarðinum
myndar það lítinn læk sem hlykkjast
100-200 m um sléttlendið, en fellur
loks í Fnjóská. Á einum stað hefur
lækurinn verið stíflaður og gerður
heitur baðpottur.
Á undanförnum árum hefur jarðhit-
inn á Reykjum verið rannsakaður ítar-
lega með það fyrir augum að nýta
hann til húshitunar á Akureyri, ef ekki
fæst nægt heitt vatn frá jarðhitasvæð-
um í Eyjafirði.
RANNSÓKNARAÐFERÐIR
OG MARKMIÐ ÞEIRRA
Hér á eftir er gerð stuttlega grein
fyrir þeim rannsóknum sem beitt er
við jarðhitaleit á lághitasvæðum. Að-
ferðunum sjálfum eru engin skil gerð,
enda hefur það verið gert áður á síðum
Náttúrufræðingsins (Axel Björnsson
1980, Kristján Sæmundsson og Ingvar
B. Friðleifsson 1980, Sveinbjörn
Björnsson 1980, Stefán Arnórsson
1980). Þegar leitað er að jarðhita-
svæði, sem nýta má til húshitunar eða
annars, er byrjað á að afla upplýsinga
um hveri, laugar og volgrur á
landsvæði því sem rannsóknin nær til.
Mælt er hitastig og rennsli úr þeim
öllum og tekin sýni til efnagreiningar.
Út frá efnainnihaldi vatnsins má fá
allgóða hugmynd um hve heits vatns
megi vænta við djúpborun á viðkom-
andi stað, hvort vatnið sé neysluhæft
og jafnvel hvaðan það er upprunnið.
Næsta skref felst venjulega í jarð-
fræðikortlagningu og rafleiðnimæl-
ingum. Jarðlög, berggangar, misgengi
og sprungur sem sjást í nærliggjandi
fjöllum eru færð á kort, reynt að meta
stefnu þeirra og halla. Kannað er
hvort gangar, misgengi eða sprungur
liggi um jarðhitastaðinn, en algengt er
að heitavatnsæðar séu tengdar þeim.
Mæld er rafleiðni í jörðu vítt og breitt
um rannsóknarsvæðið. Vatn, sem hef-
ur að geyma uppleyst efni, leiðir raf-
Náttúrufræðingurinn 53 (3—4), bls. 165—175, 1984
165