Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 45

Náttúrufræðingurinn - 1986, Page 45
7. mynd. Myndin sýnir hvenær árs bleshænur hafa sést á fslandi. Skyggði hluti súlu segir til um það hversu oft tegundin hefur sést í viðkomandi viku, en heildarlengd súlunnar gefur fjölda fugla - The occurrence of Coots recorded in lceland. The dotted part ofthe column indicates the number of records and the total length shows the number ofbirds. fremst flækingsfugl. Eins og fleiri tíðir flækingsfuglar hér á landi, þá hefur hún orpið stöku sinnum. Bleshænur koma hingað til lands einkum síðla hausts, í nóvember og síðar (7. mynd). Þær eru harðgerar og þrauka furðan- lega í vetrarhörkum. Margar hafa lifað hér fram eftir vetri og lengur. Fartími í V-Evrópu á haustin er í október og fyrri hluta nóvember, en á vorin eink- um í mars. Bleshænur hafa sýnt nokkuð jafna tíðni hér á landi, ef undanskilinn er áratugurinn 1921-30, en frá þeim tíma eru aðeins skráðir fimm fuglar. A síðasta áratug jókst þó heldur tíðni þeirra. Frá þeim tíma eru skráð 23 tilfelli, og komu a.m.k. 32 fuglar við sögu, en þrisvar sáust tveir eða fleiri fuglar saman. Á Úlfljótsvatni sáust t-d. sjö bleshænur í febrúar 1977 og þrjár í mars 1980. Á 8. mynd eru sýndir fundarstaðir bleshænu hér á landi. Það vekur mesta athygli, að þær hafa verið fúrðu fáséð- ar á SA-verðu landinu, en hins vegar mjög tíðar á SV-landi. Það verður lík- lega helst skýrt með því, að á SV-landi eru skilyrði hvað hagstæðust fyrir bles- hænur að þrauka í harðindum. Sem dæmi má nefna, að á seinni árum hafa alls sjö bleshænur sést á Tjörninni í Reykjavík, þar sem þær hafa þegið brauð með öndunum (9. mynd). Þær hafa jafnvel haldið þar til vetrarlangt. Alls hafa þrjár bleshænur verið merktar hér á landi og hefur ein þeirra endurheimst erlendis. Sá fugl náðist í febrúar 1937 að Skriðu í Hörgárdal. Var hann hafður í haldi til 23. apríl en þá sleppt með merki. Hann var síðan skotinn 7. nóvember sama ár við Stor- sjöen, Sör-Odal í Noregi. Er því ljóst að bleshænur sem hingað villast geta skilað sér aftur út til Evrópu. Varp Kunnugt er um þrjár staðfestar varptilraunir bleshænu á Islandi. í heimildum má finna staðhæfingar um fleiri varptilfelli, sum hver e.t.v. á rök- um reist en þó ekki unnt að taka þau gild. Hér á eftir fara nokkur dæmi um það, hvernig fjallað hefur verið um bleshænu í eldri heimildum. P. Nielsen (1918) segir meðal annars: „Uden Tvivl yngler den flere Steder paa Is- land, f.Eks. i Ölfus, hvor der findes flere utilgængelige Sumpe og varme Kilder“. Júlíus Havsteen (1931) skrif- ar: „Fugl þessi verpir hjer á landi, bæði við Mývatn og við Hjeraðsvötnin 143
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.