Náttúrufræðingurinn - 1986, Blaðsíða 69
Leiðbeinandi: Leifur Símonarson. Þátttak-
endur: 9.
Tvö tveggja kvölda námskeið í greiningu á
ætisveppum. Leiðbeinandi: Eiríkur Jens-
son. Fyrra námskeiðið var 15. og 17. ágúst,
hið síðara 16. og 18. ágúst. Þátttakendur:
26.
Námskeiðin voru á ýmsum stöðum úti í
bæ, og verður það að teljast bagalegt, að
félagið hafi ekki fasta aðstöðu fyrir þessa
þörfu starfsemi. Vonandi að úr rætist, þeg-
ar safnahús rís af grunni.
FRÆÐSLUFERÐIR
Átta fræðsluferðir voru fyrirhugaðar á ár-
inu en ein, fuglaskoðunarferð um Suður-
nes, féll niður vegna ónógrar þátttöku.
Þessar ferðir voru farnar:
Þörungaferð í fjöruna við Hvassahraun
5. maí. Leiðbeinendur: Karl Gunnars-
son og Vilhjálmur Þorsteinsson. Ferðin
var í samvinnu við Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands. Þátttakendur: 30.
Steingervingaferð á Kjalarnes, í Foss-
vog og út á Seltjarnarnes 25. maí. Leið-
beinandi: Leifur Símonarson. Þátttak-
endur: 8.
Grasaferð um suðurhlíðar Esju 29.
júní. Leiðbeinandi: Björn Gunnlaugs-
son. Þátttakendur: 14.
Hornstrandaferð 12. —15. júlí. Leiðbein-
endur: Haukur Jóhannesson og Eva Þor-
valdsdóttir. Þátttakendur voru 45 og flugu
flestir frá Reykjavík til ísafjarðar, en þar
komu tíu til móts við hópinn. Farið var
með Fagranesinu frá ísafirði. Fyrst fór bát-
urinn til Grunnavíkur, Hesteyrar og Aðal-
víkur en síðan norður í Hornvík. Mjög
vont sjóveður var síðari hluta leiðarinnar
og mörgum óvönum var brugðið. Eftir um
tólf klukkustundar ferðalag var komið til
Hornvíkur. Fyrirhugað var að tjalda á
Grænanesi austan víkurinnar en þar tókst
ekki að lenda, svo að farið var yfir að Höfn
og tjaldað þar.
Á laugardag var ágætis veður, sólskin og
hægviðri. Þá var gengið út í Rekavík bak
Höfn og þaðan í Hvannadal. Þar var litast
um, m.a. gengu margir fram Langakamb
og litu á bjargfugla.
Á sunnudag var veður kyrrt en dumb-
ungur til fjalla. Gengið var yfir að Horn-
bænum og þaðan upp á Miðdal og eftir
bjargbrúninni að Almenningaskarði.
Þarna er bjargið víðast þverhnípt í sjó og
fuglalíf mikið. Ekki er þar sundlgjörnum
hollt að ganga tæpt. í skarðinu skipti hóp-
urinn sér. Annar helmingurinn hélt niður
Innstadal og í tjaldstað, en hinn fór áleiðis
niður í Látravík. Þar voru Fjalirnar nafn-
toguðu skoðaðar. Því næst var haldið í átt
að Kýrskarði en þoku setti á fjöll og hitti
hópurinn ekki á sjálft skarðið heldur fór
beint yfir hrygginn á milli Kýrskarðs og
Hestskarðs. Var þar víða bratt. Þá er niður
kom rofaði og blasti Hornvík við.
Á mánudegi kom djúpbáturinn og sótti
liðið. Þar sem hann var seinn fyrir, varð að
snúa honum til Bolungarvíkur og þaðan
var ekið til ísafjarðar. Það stóð á endum,
að flugvélin var búin til flugs, þegar ferða-
langarnir óku í hlaðið á flugstöðinni.
Ekki var annað að heyra en þátttakend-
ur væru ánægðir með ferðina, en áætlun
var nokkuð stíf og hefði þurft tvo daga til
viðbótar.
Fræðsluferð um Fljótsdalshérað, inn að
Snæfelli og um Hrafnkelsdal 26.-28. júlí.
Farið var frá Egilsstöðum. Leiðbeinendur:
Hjörleifur Guttormsson, Oddur Sigurðs-
son og Skarphéðinn Þórisson. Hinn síðast
nefndi hafði allan veg og vanda af undir-
búningi ferðarinnar í samvinnu við Ferða-
miðstöð Austurlands. Þátttakendur: 60.
Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem félagið
efnir til ferðar á Austurlandi. Lagt var upp
frá Egilsstöðum og haldið inn Velli í Hall-
ormsstaðaskóg. Þar var áð í Mörkinni og
greindi Hjörleifur frá sögu hennar og skóg-
arins. Aftur var staldrað við í lerkireit við
Víðivelli í Fljótsdal. Síðan var haldið inn
að Snæfelli með örlitlum stans á Grenis-
öldu, þar sem ferðalangar þágu kaffi.
Nokkuð var áliðið dags, þegar hópurinn
kom að skála Ferðafélags íslands við rætur
Snæfells, en afbragðs gott veður var allan
daginn og kvöldsólin litaði Snæfellið rauð-
bleikt, enda vildu sumir leggja þegar á
brattann. Annan daginn var hins vegar
súld og rigning, en engu að síður hélt um
helmingur hópsins gangandi suður í Þjófa-
167