Náttúrufræðingurinn - 1986, Blaðsíða 67
Ágúst H. Bjarnason:
Skýrsla um
Hið íslenska náttúrufræðifélag
fyrir árið 1985
FÉLAGAR
í árslok 1985 voru skráðir félagar og
kaupendur að Náttúrufræðingnum samtals
1772. Þeir skiptust þannig: Heiðursfélagar
4, kjörfélagar 4, ævifélagar 31, ársfélagar
innanlands 1542, félagar og stofnanir er-
lendis 66 og innlendar stofnanir 125.
Þær breytingar, sem orðið hafa á fjölda
félaga eru þessar: 113 hurfu úr félaginu (38
sögðu sig úr því, 66 féllu út af félagaskrá
vegna vangoldinna gjalda og 9 létust).
Hundrað tuttugu og einn nýr félagi bættist
í hópinn. Samkvæmt þessum tölum hefur
því félögum og kaupendum að Náttúru-
fræðingnum fjölgað um átta á síðasta
ári.
Eins og áður segir létust níu félagsmenn
á síðasta ári. í þeim hópi var einn heiðurs-
félagi, tveir ævifélagar og sex ársfélagar.
Heiðursfélaginn, Stefán Stefánsson, bók-
sali, var afgreiðslumaður Náttúrufræðings-
ins frá 1950 til 1983 og sá jafnframt um alla
innheimtu fyrir félagið. Stefán rækti starf
sitt af mikilli alúð og var hið mesta ljúf-
menni í öllum samskiptum. I'il hans var
ávallt gott að leita og veit ég um marga,
sem hann hjálpaði við að ná Náttúrufræð-
ingnum saman. Hann var farinn að heilsu
síðustu æviárin og lést á jóladag, 82 ára að
aldri. Þá létust ævifélagarnir Björn Berg-
mann, fyrrv. kennari og Gísli Kristjáns-
son, fyrrv. ritstjóri.
STJÓRN OG STARFSMENN
Stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags
1985 var óbreytt frá árinu áður og þannig
skipuð: Formaður: Ágúst H. Bjarnason,
varaformaður: Bergþór Jóhannsson, gjald-
keri: Ingólfur Einarsson, ritari: Axel
Kaaber og meðstjórnandi: Jón Eiríksson. í
varastjórn sátu: Ingibjörg Kaldal og Þór
Jakobsson.
Á starfsárinu varð sú breyting á, að með
bréfi þann 24. janúar s.l. fór Axel Kaaber
fram á, að hann yrði leystur frá störfum í
stjórn og varamaður tæki sæti hans. Vara-
maður, Ingibjörg Kaldal, tók við af Axel,
sem sat í stjórn sem ritari frá 1981. Um leið
og ég færi Axel fyllstu þakkir fyrir marg-
háttuð störf í þágu félagsins, vil ég jafn-
framt geta þess, að hann vakti fyrstur
manna máls á því, að félagið gæfi út vegg-
myndir eins og „Flóru íslands“. Það er
trúa mín, að þvílík útgáfa verði félaginu
enn meiri lyftistöng en orðin er, þegar
tímar líða. Hafi hann heila þökk.
Aðrir, sem við sögu komu í starfi félags-
ins, voru:
Endurskoðendur: Einar Egilsson og
Magnús Árnason; varaendurskoðandi:
Sveinn Ólafsson.
Erling Ólafsson, Náttúrufræðistofnun
íslands, hélt félagaskrá, sá um innheimtu
og afgreiðslu á tímaritinu af mikilli
kostgæfni eins og áður.
Helgi Torfason lét af störfum sem rit-
stjóri Náttúrufræðingsins að eigin ósk en
við tók Árni Einarsson. Gerður var verk-
samningur við Árna til þriggja ára frá og
með 1. hefti 55. árgangs en þeir Helgi voru
báðir ritstjórar þess. Frá og með sama tíma
tók Haukur Jóhannesson sæti í ritstjórn.
María Guðmundsdóttir var ráðin í einn
mánuð einkum til þess að selja veggmynd-
ina „Flóru íslands" og Hildur Albertsdótt-
ir til sömu starfa í hálfan mánuð.
Þór Jakobsson var oddviti áhugahóps
Náttúrufræöingurinn 56(3), bls. 165-171, 1986. 165